
Sign up to save your podcasts
Or


Sendu okkur skilaboð!
Þáttur dagsins er helgaður boltabrjálæðingunum þarna úti. Það er full vinna að brauðfæða hungrað fótboltaáhugafólk á Íslandi og þar hefur fótbolti.net staðið sig með prýði og er vinsælasta fótboltafréttasíða landsins. Við kíkjum inn fyrir pyngjur miðilsins og ræðum hvernig hægt væri að auka tekjur félagsins á einfaldan hátt. Góða hlustun!
Sendu okkur skilaboð!
Það var alvöru orka í Seðlabanka Kópavogs þegar Davíð Örn Símanorson meðstofnandi og framkvæmdastjóri Smitten mætti til okkar í kaffi. Þar jós hann úr sínum viskubrunni en það er óhætt að segja það að hann er einn okkar allra efnilegasti frumkvöðull. Spjallað var um fortíð, nútíð og framtíð auk öflugrar vegferðar Smitten sem hefur verið í gífurlega örum vexti frá stofnun. Við afsökum öll "censore" hljóðin í þættinum. Góða helgi!
Sendu okkur skilaboð!
Það var alveg kominn tími á að kíkja inn fyrir pyngjur í hótelgeiranum og fyrir valinu varð Hótel Rangá. Frissi Páls hefur gert vel í uppbyggingu hótelsins en segja má að Hótel Rangá sé orðið að nokkurskonar veldi í dag. Góða hlustun!
Sendu okkur skilaboð!
Þegar að við héldum að það væri ekki hægt að gera Föstudagskaffið bragðbetra, þá kemur til okkar Heiðar Guðjónsson og ausir yfir okkur visku úr sínum botnlausa brunni. Farið er yfir víðan völl í þættinum, allt frá bekkpressu og upp í fall siðmenningar, en milljónamæringur vikunnar verður að sjálfsögðu á sínum stað og það vildi svo til að milljónamæringur sá er vinur Heiðars. Stórskemmtilegur þáttur sem er bannað að láta framhjá sér fara. Góða hlustun!
Sendu okkur skilaboð!
Áfram höldum við með Reykajvíkurþemað og að þessu sinni er það Golfklúbbur Reykjavíkur. Golf er vaxandi áhugamál í heiminum en þar er Ísland engin undantekning og prentun seðla klúbbsins í samræmi við það. Við afsökum staðreyndavillur sem kunna að koma fram í þættinum. Góða hlustun.
Sendu okkur skilaboð!
Það var drekkhlaðið föstudagskaffið þennan morguninn. Mikið af fréttum og mikið fjör. Auðæfi Scam Bankfraud þurrkuðust út á einum sólarhring, allir brjálaðir út af Svala, Bubbi Morthens prentar peninga, Bláa Lónið á markað og fl. fréttir. Svo hafa fjöldauppsagnir verið í tísku á árinu og fer Iddi yfir stærstu hópuppsagnir sögunnar og fleira til. Góða helgi!
Sendu okkur skilaboð!
Í þætti dagsins er akademían sjálf tekin fyrir og njörvuð niður. Háskólinn í Reykjavík er einkarekinn skóli sem þó reiðir sig á talsverð fjárframlög frá hinum opinbera. Í þættinum koma fram ýmsar merkilegar staðreyndir um sögu og rekstur skólans en einnig skoðum við stöðu annara menntastofnanna til samanburðar. Það er óhætt að segja að þessi batterí séu ansi fjárfrek, sem er þó eðlilegt enda er menntun mikilvæg undirstaða siðmenningar. Ekki viljum við að hún falli, gott fólk. Góða hlustun!
Sendu okkur skilaboð!
Það er sjóðheitt föstudagskaffið í dag og við þorum að fullyrða að það hafi aldrei verið betur blandað. Uppfærsla um stöðu SS, Grikk eða *ott, Ársreikningar listafólks, viðskiptaeldi Mr. Beast, óábyrgar viðskiptaráð og fl. á boðstólnum. Góða hlustun og góða helgi kæru launþegar nær og fjær.
Sendu okkur skilaboð!
Þáttur dagsins er stórmerkilegur. Við kryfjum m.a. gangverkið sem liggur að baki bókaútgáfu. Sömuleiðis veltum við fyrir okkur bókabransanum í heild, samkeppni við hljóðbækur og að sjálfsögðu förum við yfir nýjasta ársreikning Forlagsins. Jólabókaflóðið er handan við hornið svo þetta er okkar framlag í flóruna. Góðar stundir.
Þátturinn er í boði:
Jómfrúin - https://www.jomfruin.is/
Landsbankinn - https://www.landsbankinn.is/postlistar
Keldan - https://keldan.is/
Payday - https://payday.is/
Dominos - https://www.dominos.is/
Sendu okkur skilaboð!
Þáttur dagsins er í styttra lagi en þó er bollinn sterkur og góður. Við förum yfir einhverja verstu söluherferð sem heyrst hefur á mp3 formi og dreypum á fréttum vikunnar. Góða helgi!
Þátturinn er í boði:
Brauð og co. - https://www.braudogco.is
Gorilla vöruhús - https://gorillavoruhus.is/
Lavazza - https://www.lavazza.is/
Aukakrónur Landsbankans - https://www.landsbankinn.is/einstaklingar/kort-og-greidslur/aukakronur