
Sign up to save your podcasts
Or


Sendu okkur skilaboð!
Uppgjörið er þáttur þar sem við kryfjum uppgjör fyrirtækja á markaði ásamt stjórnendum. Við fórum í höfuðstöðvar Nova og tókum þau Margréti Tryggvadóttur forstjóra og Þórhall Jóhannsson fjármálastjóra tali og fórum yfir þriðja ársfjórðung fyrirtækisins.
Sendu okkur skilaboð!
Þó þú hafir kannski ekki heyrt um SalesCloud, þá eru miklar líkur á því að þú hafir átt viðskipti við þau, en SalesCloud er hugbúnaðarfyrirtæki sem hefur verið að vaxa gríðarlega síðustu misserin. Ein af vörum fyrirtækisins eru nýstárleg kassakerfi sem sífellt verða vinsælli hjá rekstraraðilum en sömuleiðis halda þau úti fjölda annara lausna. Þessi þáttur er fullkomin blanda af fróðleik og djús, m.a. stórmerkileg saga stofnandans, og því ætti enginn aðdáandi Pyngjunnar að láta þáttinn fram hjá sér fara!
Þátturinn er í boði:
Jómfrúin - https://www.jomfruin.is/
Landsbankinn - https://www.landsbankinn.is/postlistar
Keldan - https://keldan.is/
Payday - https://payday.is/
Dominos - https://www.dominos.is/
Sendu okkur skilaboð!
Föstudagskaffi dagsins er hið fullkomna jafnvægi á milli tuðs, fræðslu og glens. Yfir fréttum vikunnar var tuðað, yfir hagvexti og milljónamæringi vikunnar var fræðst og yfir ráðum vikunnar var glensað. Hin fullkomna blanda. Í guðanna bænum missið ekki af!
Þátturinn er í boði:
Brauð og co. - https://www.braudogco.is
Gorilla vöruhús - https://gorillavoruhus.is/
Lavazza - https://www.lavazza.is/
Aukakrónur Landsbankans - https://www.landsbankinn.is/einstaklingar/kort-og-greidslur/aukakronur
Sendu okkur skilaboð!
Flest höfum við heyrt minnst á Múlakaffi í gegnum tíðina án þess þó að átta okkur á því hvurslags veldi liggur þar að baki. Fyrirtækið er rótgróið og líklega með elstu fjölskyldufyrirtækjum landsins, en sögu þess má rekja aftur til ársins 1962. Fyrirtækið er með veglegt og vel dreift eignasafn en við vorum sammála því að þarna vantaði inn rafmyntir til að fullkomna eignasafnið. Góða hlustun!
Þátturinn er í boði:
Jómfrúin - https://www.jomfruin.is/
Landsbankinn - https://www.landsbankinn.is/postlistar
Keldan - https://keldan.is/
Payday - https://payday.is/
Dominos - https://www.dominos.is/
Sendu okkur skilaboð!
Í Föstudagskaffi dagsins veltum við fyrir okkur tryggingum og hvernig þær hafa þróast. Það er bókstaflega hægt að tryggja allt núorðið, en tæknin kallar á breytingar. Í seinni hluta þáttar fáum við til okkar Friðrik Þór Snorrason framkvæmdastjóra Verna, sem hefur verið að ryðja sér til rúms á bílatryggingamarkaði, og ræðum þessar breytingar á léttu nótunum.
Þátturinn er í boði:
Jómfrúin - https://www.jomfruin.is/
Landsbankinn - https://www.landsbankinn.is/postlistar
Keldan - https://keldan.is/
Payday - https://payday.is/
Dominos - https://www.dominos.is/
Þátturinn er unninn í samstarfi við Verna.
Sendu okkur skilaboð!
Solid Clouds er íslenskt tölvuleikjafyrirtæki sem skaust upp í almenningsvitund þegar þau skráðu sig á First North markað í fyrra í vel heppnuðu útboði. Félagið vinnur nú myrkranna á milli í þróun á nýjum tölvuleik, Starborne: Frontiers sem löngu er kominn á gjalddaga og því er eðlilegt að hluthafar leiti eftir svörum, sem þó eru torfundin. Í þættinum veitum við aðhald og veltum steinum, bæði um fyrirtækið og leikjaiðnaðinn í heild. Takið kvittun.
Þátturinn er í boði:
Jómfrúin - https://www.jomfruin.is/
Landsbankinn - https://www.landsbankinn.is/postlistar
Keldan - https://keldan.is/
Payday - https://payday.is/
Dominos - https://www.dominos.is/
Sendu okkur skilaboð!
Kaffið er milt í dag með dass af flóaðri mjólk. Í fyrsta sinn í íslenskri hlaðvarpssögu var hellt upp á Lavazza í beinni. Umræður dagsins voru mismunandi, allt frá graskerskryddi og upp í loðnubrest. Svo má ekki gleyma því að það er góðæri hjá bændum eftir hækkanir vikunnar. Við minnum á fréttabréf Pyngjubandalagsins - skráning á pyngjan.is. Góða helgi!
Þátturinn er í boði:
Gorilla vöruhús - https://gorillavoruhus.is/
Aukakrónur Landsbankans - https://www.landsbankinn.is/einstaklingar/kort-og-greidslur/aukakronur
Lavazza - https://www.lavazza.is/
BAKABAKA - https://www.bakabaka.is/
Sendu okkur skilaboð!
Já kæru hlustendur, lengi höfum við beðið eftir þessum ársreikning! Svens kom eins og stormsveipur inn á markað í apríl mánuði 2020 og hefur síðan átt ævintýralegu gengi að fagna. Svens rekur 9 verslanir í dag þrátt fyrir aðeins 2 og hálft ár í rekstri sem hlýtur að vera einhverskonar einsdæmi á Íslandi. Lífleg yfirferð og skemmtilegar pælingar sem þú vilt ekki missa af. Munið að taka kvittun!
Þátturinn er í boði:
Jómfrúin - https://www.jomfruin.is/
Landsbankinn - https://www.landsbankinn.is/postlistar
Keldan - https://keldan.is/
Payday - https://payday.is/
Dominos - https://www.dominos.is/
Sendu okkur skilaboð!
Þáttur dagsins er ljúffengur eins og volg flóuð mjólk í veikindum. Fréttir vikunnar drekkhlaðnar af fróðleik, stórar ráðningar og Addi fór yfir 5 arðbærustu fjárfestingakostina m.v. áhættu, a.k.a. fasteignir, en Iddi dreypti á velgengi Roger Federer utan vallar. Sá hefur þénað! Munið svo í guðanna bænum að taka kvittun!
Þátturinn er í boði:
Gorilla vöruhús - https://gorillavoruhus.is/
Aukakrónur Landsbankans - https://www.landsbankinn.is/einstaklingar/kort-og-greidslur/aukakronur
Lavazza - https://www.lavazza.is/
BAKABAKA - https://www.bakabaka.is/
Sendu okkur skilaboð!
Fyrirtækið Já ætti að vera orðið flestum landsmönnum kunnugt, enda hefur það snert líf okkar flestra á einn hátt eða annan síðastliðin 17 ár. Í upphafi hélt Já utan um rekstur símaskrárinnar sem þó hefur verið lögð niður í dag, en þá hefur fyrirtækið gegnt mikilvægu hlutverki hér á landi á sviði upplýsingatækni síðustu ár og heldur meðal annars úti já.is, 1818, Vöruleit Já og Gagnatorgi.
Þátturinn er í boði:
Jómfrúin - https://www.jomfruin.is/
Landsbankinn - https://www.landsbankinn.is/postlistar
Keldan - https://keldan.is/
Payday - https://payday.is/
Dominos - https://www.dominos.is/