
Sign up to save your podcasts
Or


Í þessum þætti af Ræðum það... er rætt við Árna Jón Pálsson, fjárfestingastjóra og einn stofnenda Alfa Framtak. Árni Jón hefur starfað í átta ár á fjármálamarkaði og hefur á þeim tíma gegnt ýmsum stjórnarstörfum, þar á meðal hjá skráða félaginu Heimavöllum. Árni er þekktur fyrir að vera gríðarlega metnaðargjarn og er jafnan kallaður „Vélin“ af samstarfsfólki sínu enda einn af þeim sem virðist hafa fleiri klukkustundir í sólarhringnum.
Ræðum það er hlaðvarp Góðra samskipta, sérhæfðs ráðgjafafyrirtækis á sviði almennatengsla, stefnu og stjórnendaleitar. Við ræðum við fólk sem okkur finnst áhugavert og er að gera spennandi hluti.
Stef: Ræðum það – Dire & Nolem
Í þessum þætti af Ræðum það... er rætt við Lovísu Önnu Finnbjörnsdóttur, sviðsstjóra fjármálaráðgjafar hjá Deloitte á Íslandi. Hún hefur unnið sig upp hjá Deloitte á síðustu 10 árum en ætlaði aldrei að vera þar svo lengi en vegna þess hve spennandi verkefnin eru þá hefur hún orðið heltekin af ráðgjöf. Hún hefur unnið í mörgum af áhugaverðustu kaupum og sölum á Íslandi ásamt því að veita stærstu fyrirtækjum á Íslandi fjármálaráðgjöf. Í viðtalinu ræðum við ráðgjöf og hvernig verkefnum hún hefur verið í undanfarin ár.
Ræðum það er hlaðvarp Góðra samskipta, sérhæfðs ráðgjafafyrirtækis á sviði almennatengsla, stefnu og stjórnendaleitar. Við ræðum við fólk sem okkur finnst áhugavert og er að gera spennandi hluti.
Stef: Ræðum það – Dire & Nolem
Í þessum þætti af Ræðum það... var rætt við Önnu Kristínu Pálsdóttur, framkvæmdastjóra nýsköpunar og þróunar hjá Marel. Anna var á lista okkar 40/40 og hefur vakið athygli fyrir fljótan framgang hjá Rúv og Marel. Tinni og Andrés eru spenntir að leyfa hlustendum að kynnast þessari upprennandi stjörnu í íslensku atvinnulífi. Hún segir m.a. frá því hvernig Marel hefur þróað sitt nýsköpunarferli og Tinni kemur með sína eigin kenningu um hvað það sé sem geri hana svona öfluga í sínu starfi.
Ræðum það er hlaðvarp Góðra samskipta, sérhæfðs ráðgjafafyrirtækis á sviði almennatengsla, stefnu og stjórnendaleitar. Við ræðum við fólk sem okkur finnst áhugavert og er að gera spennandi hluti.
Stef: Ræðum það – Dire & Nolem
From the publisher's feed

139 Listeners