Rauða borðið

Rauða borðið

By Gunnar Smári EgilssonNewsPoliticsDaily News
Download on the App Store

All Rauða borðið episodes

  • Rauða borðið 18. nóv - Öldrunarþjónusta, gervigreind, geðlæknir, trans, tónlist og Geir Ólafs
    Miðvikudagur 18. nóvember
    Öldrunarþjónusta, gervigreind, geðlæknir, trans, tónlist og Geir Ólafs
    Sigrún Huld Þorgrímsdóttir, sérfræðingur í öldrunarhjúkrun, ræðir við Ásdísi Olsen um nýja hugsun í öldrunarþjónustu þar sem kærleikurinn er kjarninn og lífsgæði fólks leiðarljósið. Þorsteinn Siglaugsson heimspekingur og hagfræðingur og Hanna Kristín Skaftadóttir dósent og fagstjóri forystu og gervigreindar á Háskólanum á Bifröst ræða við Gunnar Smára um gervigreind, einkum hvaða áhrif hún hefur á stéttaskiptingu. Ólafur Ævarsson geðlæknir ræðir starf geðlæknisins, greiningar, meðferðir, horfur. Ólafur stendur á persónulegum tímamótum, hann lauk störfum fyrir nokkrum dögum. Björn Þorláks ræðir við hann. Reyn Alpha Magnúsdóttir, forseti Trans Íslands, er gestur Örnu Magneu Danks í nýjum lið við Rauða borðið um málefni hinsegin fólks. Atli Ingólfsson tónskáld, Hanna Dóra Sturludóttir prófessor og söngkona, Eyþór Ingi Jónsson organisti kórstjóri og Bergljót Kristjánsdóttir íslenskufræðingur segja Gunnari Smára frá tónleikum á sunnudaginn, stöðu nýrrar tónlistar, hrekksemi og fleira. Geir Ólafs söngvari heimsækir Gunnar Smára og fræðir hann um tónlist og söng.
    5 hr 34 min
  • Rauða borðið 17. nóv - Húsnæðiskrísa, dýravelferð, ADHD, stjúptengsl, Grettla og tónlist
    Þriðjudagur 17. nóvember
    Húsnæðiskrísa, dýravelferð, ADHD, stjúptengsl, Grettla og tónlist
    Fasteignamarkaðurinn er helfrosinn, bankar eru farnir að kaupa óseldar íbúðir af verktökum og merki um örþrifaráð í bransanum. Páll Heiðar Pálsson fasteignasali ræðir við Björn Þorláks. Rósa Líf Darradóttir læknir og formaður Samtaka um dýravelferð á Íslandi ræðir blóðmerarald í samtali við Björn Þorláks. Ásdís Olsen ræðir við Hrannar Björn Arnarson um ADHD. Valgerður Halldórsdóttir ræðir við Ásdísi Olsen um stjúptengsl. Torfi Túliníus og Guðvarður Már Gunnlaugsson fræðimenn ræða við Björn Þorláks vegna málþings um Grettis sögu. Furðu margt í sögunni kallast á við samtímann. Páll Guðmundsson, kenndur við Húsafell, og Hilmar Örn kórstjórnandi ræða sérstakan tónlistarviðburð á morgun þar sem leikið verður á framandi hljóðfæri. Björn Þorláks ræðir við þá félaga.
    4 hr 26 min
  • Rauða borðið 16. nóv - Framsókn, yfirheyrsla, dánaraðstoð, hagspá og hernám
    Mánudagur 16. nóvember
    Framsókn, yfirheyrsla, dánaraðstoð, hagspá og hernám
    Lilja Dögg Alfreðsdóttir formaður Framsóknarflokksins er gestur Sigurjóns. Þau ræða um stjórnmál dagsins. Um Framsóknarflokkinn og eins gagnrýni hans á núverandi ríkisstjórn. Formaður Bændasamtakanna, Trausti Hjálmarsson, hefur verið gagnrýndur harðlega síðustu daga vegna ummæla hans og afstöðu til Stjörnugríss. Hafa margir sakað hann um að verja dýraníð. Björn Þorláks yfirheyrir formanninn. Skiptar skoðanir eru um dánaraðstoð hér á landi en mikill meirihluti landsmanna vill heimila hana að sögn Ingrid Kuhlman sem berst fyrir lögleiðingu. Um viðkvæmt mál er að ræða sem á sér margar hliðar. Björn Þorláks ræðir við Ingrid. Hagfræðingarnir Erna Björg Sverrisdóttir hjá Arion og Una Jónsdóttir hjá Landsbanka ræða við Gunnar Smára um efnahagshorfur, vexti, verðbólgu og stöðu atvinnulífsins. Leifur Reynisson sagnfræðingur hefur skrifað bók um hernámsárin byggða á heimildum en ekki síður munnlegum frásögnum fólks sem þá voru börn. Gunnar Smári ræðir við Leif.
    4 hr 43 min
  • Synir Egils 15. nóv - Gervigreind og almenn heimska, biðlistar, efnahagskrísa og sveiflur í pólitík
    Sunnudagurinn 15. nóvember
    Synir Egils: Gervigreind og almenn heimska, biðlistar, efnahagskrísa og sveiflur í pólitíkinni
    Við ræðum fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins við góða gesti; fyrst koma þau Ingibjörg Isaksen þingkona Framsóknar, Gísli Freyr Valdórsson hlaðvarpari og Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi og ræða helstu fréttir og stöðu mála í samfélaginu okkar og heiminum. Síðan kemur Ragnar Freyr Ingvarsson læknir og ræðir við okkur um biðlista í heilbrigðiskerfinu, áhrif á fólk, kerfið og samfélagið og hvað gæti verið til bóta. Í lokin fara þeir bræður, Sigurjón Magnús og Gunnar Smári, yfir pólitíkina með sínu nefi.
    2 hr 16 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 46
    Föstudagur 13. nóvember
    Vikuskammtur: Vika 46
    Þau koma að Rauða borðinu, Rósa Líf Darradóttir læknir og dýravinur, Grace Achieng stofnandi og framkvæmdastjóri House of Grace, Kjartan Orri Þórsson Miðausturlandafræðingur og Riitta Anne Maarit Kaipainen, viðskiptafræðingur og stjórnarkona hjá VG og VGR og ræða við Gunnar Smára um fréttir vikunnar sem einkenndust af framhjáhaldi, njósnum, illri meðferð og snjókomu.
    1 hr 40 min
  • Rauða borðið 12. nóv - Uppljóstrari, Grindavík, reynsluboltar, fyrirgefningin og kommúnulíf
    Fimmtudagur 12. nóvember
    Uppljóstrari, Grindavík, reynsluboltar, fyrirgefningin og kommúnulíf
    Einar Logi Pétursson dýra-aðgerðasinni segir Gunnari Smára frá því hvers vegna hann braust inn í svínabúið Stjörnugrís, hvað hann sá og hverju hann vill áorka með uppljóstrun sinni. Hvað segja Grindvíkingar þremur árum eftir hamfarirnar þegar uppkaupatilboð á húsnæði hafa verið kynnt? Björn Þorláks ræðir við Pál Val Björnsson. Sigurjón Magnússon fær til sín í fréttaspjall Steingerði Steinarsdóttur, Guðmund Þ. Ragnarsson og Sigga Storm í þættinum Reynsluboltar. Séra Vigfús Bjarni ræðir fyrirgefninguna, Ásdís Olsen ræðir við hann. Ásdís Olsen kynnir sér kommúnulífsstíl á Suðurlandi.
    4 hr 8 min
  • Rauða borðið 11. nóv - Hjólhýsasamfélag, útlendingar, gervigreind, geðvernd, heimsmálin og Samstöðin
    Miðvikudagur 11. nóvember
    Hjólhýsasamfélag, útlendingar, gervigreind, geðvernd, heimsmálin og Samstöðin
    Hvers vegna er litið niður á fólk sem kýs að lifa öðruvísi? Bergþóra Pálsdóttir, talskona Samtaka hjólabúa, segir mikla fordóma og ranghugmyndir ríkja um hjólabúa og gagnrýnir harðlega framkomu Reykjavíkurborgar, ekki síst Einars Þorsteinssonar. Ásdís Olsen ræðir við hana. Margt er líkt með viðhorfum Íslendinga til útlendinga í dag og fyrir ríflega 30 árum. Stefán Jón Hafstein rýnir í eigin þáttagerð á Stöð 2 í beinni útsendingu árið 1995, 31 árs gamla heimild þegar margir Íslendingar höfðu áhyggjur af örfáum útlendingum. Hanna Kristín Skaftadóttir, dósent og fagstjóri forystu og gervigreindar á Háskólanum á Bifröst, og Þorsteinn Siglaugsson heimspekingur og hagfræðingur ræða við Gunnar Smára um hvaða áhrif gervigreindin hefur þegar haft og mun hafa. Ólafur Þór Ævarsson geðlæknir snýr aftur í umræðu með Birni Þorláks eftir nokkurt hlé. Hann ræðir nýjar rannsóknir um hvernig heilinn starfar og hvernig ný vísindaleg sannindi breyta viðhorfum og meðferð. Vaxandi veikindi opinberra starfsmanna verða einnig til umfjöllunar. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor á Akureyri ræðir við Gunnar Smára um heimsmálin, Úkraínu- og Íranstríðin og afleiðingar þeirra á valdahlutföll í heiminum. Gunnar Smári ræðir við nokkra þáttastjórnendur á Samstöðinni utan Rauða borðsins. Þau María Hjálmtýsdóttir í Bókaborðinu, Kári Jónsson í Sjávarútvegsspjallinu, Kristín Helga Gunnarsdóttir við Græna borðið og Sigurður Jóhannesson í Manngildi ræða við hann og Valur Gunnarsson segir frá þætti sem hefur göngu sína innan tíðar, Hvernig í ósköpunum enduðum við hér?
    5 hr 36 min
  • Rauða borðið 10. nóv - Trumptíminn, neytendur, hagspá, fæðingarorlof, ljóð og elsti bílstjórinn
    Þriðjudagur 10. nóvember
    Trumptíminn, neytendur, hagspá, fæðingarorlof, ljóð og elsti bílstjórinn
    Kristján Guy Burgess alþjóðastjórnmálafræðingur, Þorsteinn Þorgeirsson hagfræðingur og Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur ræða við Gunnar Smára um sögulegar kosningar í Bandaríkjunum og stöðu Trump eftir þær. Breki Karlsson formaður Neytendasamtakana ræðir við Björn Þorláks um hvers vegna vöruverð í búðum ætti að hafa lækkað í mörgum tilvikum þegar jafnvel hækkanir hafa orðið ofan á. Róbert Farestveit sviðstjóri hagsviðs Alþýðusambandsins og Ágúst Arnórsson hagfræðingur ræða við Gunnar Smára um horfur í efnahagslífinu en ASÍ sendi nýverið frá sér hagspá. Er íslenska fæðingarorlofskerfið hugsað út frá vinnumarkaði eða þörfum barna? spyr Ásdís Olsen í viðtali við Rögnu Sigurðardóttur, þingmann Samfylkingarinnar og Ásdísi Arnalds, doktor í félagsráðgjöf. Jovana Pavlović og Miriam Petra Ómarsdóttir Awad voru að senda frá sér ljóðabækur og ræða við Gunnar Smára um ljóðið, íslenskuna, pólitík og ástina. Hilmar Mýrkjartansson, 98 gamall, fyrrum atvinnubílstjóri, hóf akstur strætó árið 1948 og ekur enn. Hann segir Birni Þorláks sögur við Rauða borðið.
    4 hr 8 min
  • Rauða borðið 9. nóv - Kynlífsglæpir, undanþágur, mistök, hraðakstur og afneitun
    Mánudagur 9. nóvember
    Kynlífsglæpir, undanþágur, mistök, hraðakstur og afneitun
    Drífa Snædal, talskona Stígamóta, segir okkur frá ótrúlegum staðreyndum um glæpi sem koma á borð Stígamóta. Því miður er ekkert lát á. Konur sem leiðast út í vændi gera það oft til þess að eiga fyrir mat, fyrir sig og börnin. Sigurjón Magnús ræðir við Drífu. Ill meðferð dýra á svínabúi hefur valdið undrun og fordæmingu. Andrés Ingi Jónsson, stjórnarformaður í samtökum um dýravelferð, segir að undanþágur stýri eftirliti. Grísir hjá Stjörnugrís fara að hans sögn óttaslegnir inn í dauðann. Björn Þorláks ræðir við Andrés. Stytting framhaldsskólans í þrjú ár var mistök að mati þriggja nemenda í tómstunda- og félagsmálafræði við HÍ, sem láta sig dreyma um að stjórnvöld vindi ofan af skaðanum. Björn Þorláks ræðir við Margréti Norðfjörð, Óliver Elvarsson og Silja Kolbrún Skúladóttir. ,,Þau halda að þau séu ódauðleg og séu í tölvuleikjum,” segir Páll Halldór Halldórsson sem er þekktur sem Rally Palli en hefur rannsakað hræðilega banaslysið sem varð á Krísuvíkurvegi nýlega þar sem 3 ungmenni létust. Ásdís Olsen ræðir við Pál. Jean-Remí Chareyre, sjálfstætt starfandi blaðamaður, gefur lítið fyrir nýlega umfjöllun í Kastljósi um loftslagsmál. Hann ræðir umhverfismál og fjölmiðlun í samtali við Björn Þorláks.
    2 hr 31 min