Rokkland

Rokkland

By RÚVMusic
Download on the App Store

Rokkland episodes

  • Oasis og Definitely Maybe og endurkoma Utangarðsmanna
    Rokkland er 30 ára í ár og af því tilefni höfum við verið að endurflytja gamla þætti í sumar.
    Rokkland stendur heldur betur undir nafni í dag vegna þess að við heyrum brot úr tveimur þáttum þar sem eru í aðalhlutverki tvær magnaðar og frábærar ROKK-hljómsveitir; Utangarðsmenn og Oasis.
    Í seinni hlutanum heyrum við brot úr þætti 176 (21. mars 1999) þegar Utangarðsmenn komu saman í fyrsta skipti síðan 198, en hljómsveitin skrapp með miklum hvelli. Þeir fóru í tónleikaferð um Ísland sumarið 2000, enduðu í Laugardalshöll og svo sprakk allt aftur.
    Í fyrri hlutanum rifjum við þátt frá 9. september 2019, Þátt 1152 - sem fjallar um Oasis og plötuna Definitely Maybe sem þá var 25 ára.
    1 hr 55 min
  • U2 og I-phone platan
    Rokkland er 30 ára í ár – og af Því tilefni eru afmælistónleikar í HOFI 1. Nóvember.
    En við erum líka að endurflytja vel valda þætti í sumar – af þessum 1379 sem eru búnir – og þátturinn í dag er frá 14. september 2014 og í aðalhlutverki er hljómsveitin U2 og platan Songs of innocence sem kom út þarna í septmeber 2014 með miklum látum í tengslum við kynningu Iphone 6 á blaðamannafundi í Cupertino í Kaliforníu. Þetta er platan sem Apple gaf öllum notendum I-tunes - og það voru ekki allir hrifnir af því.
    1 hr 54 min
  • Með Hljómum í Cavern og öðrum Bítlaslóðum
    Rokkland er 30 ára í ár og af því tilefni erum við að endurflytja nokkra vel valda gamla þætti á Rokklands-tímanum í sumar.
    Rokkland dagsins er endurflutt frá 8. júní 2008 og þetta er Bítlaþáttur. Í helstu hluverkum eru Paul Mccartney, Liverpool, Hljómar frá Keflavík, og 100 Íslendingar sem smelltu sér í bítla-pílagrímsferð til Bítla-borgarinnar undir dyggri fararstjórn Jakobs Frímanns Magnússonar Stuðmanns, þáverandi miðborgarstjóra Reykjavíkur og formanns FTT sem stóð fyrir ferðinni.
    1 hr 47 min
  • Höfundur óþekktur - 100 ára kosningaréttur kvenna
    Rokkland er 30 ára í ár – og af Því tilefni erum við að endurflytja vel valda þætti í sumar – af þessum 1379 sem eru búnir – og þátturinn í dag er frá 21. júní 2015 og er að uppistöðu upptaka frá tónleikum sem Kítón stóð fyrir í Hörpu í tilefni af hundrað ára afmæli kosningaréttar kvenna þann 19. júní með hátíðartónleikum.
    Á öldum áður þóttu konur ekki hafa hæfileika til að iðka tónlist og leifar af þeim hugarburði sitja enn eftir í jafnréttisbaráttunni þar sem kvenhöfundar tónlistar á Íslandi fá tæplega tíu prósent af útgreiddum stefgjöldum þrátt fyrir mikla grósku í tónlistarlífinu almennt. Íslenskir kvenhöfundar í tónlist eru því í forgrunni þetta kvöldið með sérstökum kynjasnúningi þar sem karlflytjendur syngja lög kvenhöfunda við undirleik og hljómsveitarstjórn kvenna.
    Grýlan Ragga Gísla, Dúkkulísurnar og Kolrassa Krókríðandi verða að lokum með heljarinnar endurkomu. Kvenhöfundarnir eru meðal annarra Björk Guðmundsdóttir, Emilíana Torrini, Hafdís Huld, Ingibjörg Þorbergs, Lára Rúnars, Ólöf Arnalds, Ragnheiður Gröndal, Sóley, Svala Björgvins, Védís Hervör og Þórunn Antonía.
    Flytjendurnir eru meðal annarra Arnór Dan, Björgvin Halldórsson, Bubbi Morthens, Friðrik Ómar, Friðrik Dór, Helgi Björns, Jón Jónsson, Páll Óskar, Raggi Bjarna og Valdimar. Listrænn stjórnandi er Védís Hervör Árnadóttir og framkvæmdastjóri er Diljá Ámundadóttir.
    Höfundur óþekktur er titill tónleikanna og er tilvísun í fjöldann allan af vísnakverum og nótnablöðum þar sem höfundur er skráður óþekktur. Þjóð- og mannfræðilegar rannsóknir benda til þess að í lang flestum tilfellum sé um konur að ræða en ekki þótti mikilvægt að skrásetja þeirra verk til jafns við karlmenn.
    1 hr 52 min
  • Popp í Reykjavík 1998
    Í tilefni af 30 ára afmæli Rokklands endurflytjum við vel valda þætti á Rokklands-tímanum í sumar. Þáttur vikunnar var upphaflega á dagskrá 6. júlí 1998, sunnudaginn eftir tónlistarhátíðina Popp í Reykjavík, og var tileinkaður hátíðinni sem sett var upp í þeim tilgangi að gera kvikmynd um tónlistarlífið í Reykjavík sumarið 1998.
    1 hr 50 min

About Rokkland

From the publisher's feed

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.

More shows like Rokkland

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners