Rokkland

Rokkland

By RÚVMusic
Download on the App Store

Rokkland episodes

  • Rokkland á Roskilde
    Rokkland er 30 ára í ár og af því tilefni verða nokkrir eldri þættir endurfluttir á Rokklands-tímanum í sumar. Þáttur dagsins er frá 3. Júlí árið 2011 og var sendur út beint frá Roskilde festival, en Hróarskelduhátíðin fer einmitt fram núna í vikunni og um næstu helgi.
    1 hr 53 min
  • Karl J. Sighvatsson
    Rokkland er 30 ára í ár og af því tilefni verða nokkrir eldri þættir endurfluttir á Rokklands-tímanum í sumar. Þátturinn sem við heyrum núna er frá 31. Ágúst 2014 og maður dagsins er Karl J. Sighvatsson – orgel og hljómborðs-séníið Kalli Sighvats - Skagamaðurinn Kalli sem var lykilmaður í öllum helstu hljómsveitunum þegar rokkið var að slíta barnsskónum á Íslandi. Hann var í Dátum, Flowers, Náttúru, Trúbroti og Þursaflokknum – og spilaði eftir það inn á fjölda platna með hinum og þessum....þar á meðal Utangarðsmönnum og Mannakorni.
    Kalli er einn merkasti og flinkasti tónlistarmaður sem íslendingar hafa átt –sannkallað séní, en kalli var bara 40 ára gamall þegar hann lést í bílslysi á Hellisheiðinni sumarið 1991.
    1 hr 51 min
  • Brian Wilson - Beach Boys og Pet Sounds
    Rokkland vikunnar fjallar um Brian Wilson leiðtoga Kaliforníu-hljómsveitarinnar Beach Boys og meistaraverk hans og sveitarinnar, plötuna Pet Sounds, en Brian Wilson féll frá á dögunum.
    Brian Wilson er einn af stærstu meisturum popp og rokksögunnar. Hann er .t.d. maðurinn sem Paul McCartney segir að sé séní, og Gunni Þórðar segir það líka. Paul hefur sagt að Brian Wilson hafi haft áhrif á sig bæði sem lagasmið og bassaleikara.
    Áhrif Pet Sounds plötunnar sem er ellefta breiðskífa Beach Boys leyna sér ekki í rokksögunni og poppfræðingar segja að það megi greina þau t.d. hjá sveitum og listamönnum eins og Fleet foxes, Of Montreal, Neutral Milk Hotel, Apples in Stereo, R.E.M. meira að segja My Bloody Valentine, Animal Collective, Radiohead og Bítlunum. Allt eru þetta lærisveinar Brians Wilson, eins og Gunni Þórðar sem er gestur þáttarins, en hann var lykilmaður í vinsælustu hljómsveit Íslands (Hljómum) þegar Beach Boys kepptust um hylli æskunnar í heiminum ásamt Bítlunum.
    Brian Wilson segir líka sjálfur frá í þættinum. Hann er á þeirri sköðun eins og Gunni Þórðar og flestir, að Pet Sounds sé besta plata Beach Boys.
    Þátturinn var áður á dagskrá í september 2016.
    1 hr 49 min
  • Springsteen og Trump, Bono og Joe Rogan, Suzanne Vega, Gulli og Finnbogi í Chicago og hjá Prince
    Bruce Springsteen og Donald Trump koma aðeins við sögu í Rokklandi vikunnar - en forsetinn sagði á Truth Social um daginn að hann hefði aldrei verið hrifinn af Bruce eða hans músík og hans róttæku vinstri pólitík. Hann væri hæfileikalaus ýtinn asni sem hafi stutt Crooked Joe Biden – þann heilalausa hálfvita – versta forseta sögunnar. Við skoðum þetta aðeins og hvað varð til þess að forsetinn skrifaði svona um Bruce sem hann hélt uppá í eina tíð amk.
    Svo er það U2 - Bono og Joe Rogan – Bono heimsótti Joe Rogan á dögunum og sumir segja að Rogan hafi „grillað“ lágvaxna söngvarann frá Dublin. U2 hlaut á dögunum heiðursverðlaun Ivor Novello og við það tilefni spiluðu allir 4 liðsmenn U2 opinberlega saman í fyrsta sinn í 5 ár. Það er ný U2 plata á leiðinni.
    Susanne Vega var að senda frá sér nýja plötu sem við skoðum aðeins en fyrri hlutinn fer í restina af ferðasögu Þeirra Gulla og Finnboga um Bandaríkin. Í síðasta þætti sem hægt er að hlusta á á ruv.is og í RÚV spilaranum (appinu) voru þeir í Memphis og Nashville, heimsóttu Elvis, Sun, Stax ofl.
    Þeir enduðu sitt langa ferðalag (5800 km) í Chicago og Minneapolis Þar sem þeir heimsóttu blús-útgáfuna Chess Records og heimavöll Prince – Paisley park.
    1 hr 53 min
  • Á ferð um rætur rytmans í Nashville - Clarksdale og Nashville með Gulla og Finnboga
    Í Rokklandi vikunnar förum við í ferðalag að rótum rythmans með tveimur gömlum vinum og tónlistaráhugamönnum sem hafa safnað músík – plötum og diskum síðan þeir voru börn – eiga óheyrilegt magn af plötum – hafa klikkaðan áhuga á músík – og annar þeirra á græjum lika – hljómflutningstækjum – og báðir safna þeir fyrst og fremst geisladiskum – segja að það sé besta formatið og sándið.
    Þetta eru þeir Finnbogi Marinósson og Gunnlaugur Sigfússon sem eiga það líka sameiginlegt að hafa gert þætti fyrir Rás 2. Gulli gerði 4 þætti um sögu Stax útgáfunnar í Memphis í fyrra og var þar áður í Plötuskápnum á föstudagskvöldum. Finnbogi leysti Gest Einar jónasson stundum af á sínum tíma með Hvíta máva.
    Þeir Finnbogi og Gulli fóru í ferð til USA – músíkferð – að Rótum rytmans. Þeir ferðuðust gegnum 12 af ríkjum bandaríkjunum - keyrðu c.a. 5800 km á 20 dögum og viðkomustaðir voru:
    Suður Karólína - Georgía - Norður Karólina - Alabama - Tennessee - Mississippi - Kentucky - Ohio - Michigan - Illinois - Wisconsin - Minnesota.
    Þeir Gulli og Finnbogi segja frá í Rokklandi -
    1 hr 52 min
  • PS & CO - Helgar - Þorleifur Gaukur ofl.
    PS & CO er í aðalhlutverki í Rokklandi í dag. Þar er aðal maðurinn Pjetur Stefánsson myndlistarmaður og rokkskáld. Hann kemur í heimsókn í seinni hluta þáttarins og við spjöllum um nýju plötuna, Í Brennandi húsi, lífið og listina.
    Helgi Pjetur heitir maður sem var að senda frá sér sitt fyrsta lag og hann kallar sig HELGAR.
    Hann hefur komið nálægt músík á ýmsa vegu í langan tíma, en ekki sem flytjandi og höfundur fyrr en núna. Helgi Pjetur tók þátt í stofnun tonlist.is uppúr aldamótum og síðar stofnaði hann plötuútgáfuna Cod Music sem gaf mörgum ungum íslenskum listamönnum byr undir báða vængi. Eftir það fór hann í tæknigeirann og stofnaði ýmsi sprotafyrirtæki, en nú er það músíkin – Helgar.
    Þorleifur Gaukur Davíðsson er fimmti maðurinn í Kaleo – hefur verið að túra með þeim og taka upp í nokkur ár. Hann er staddur í kaliforníu og við heyrum aðeins í honum og kynumst tónlistarvinum hans sem eru að koma með honum til landsins í byrjum júní og saman ætla þau að spila í Fríkirkjunni, Midgard Basecamp á Hvolsvelli og á Vagninum á Flateyri.
    1 hr 52 min
  • GG Blús, Dóra og Döðlurnar, Pétur Ben, Chris Cornell og Sleep Token
    Dúettinn GG Glús var að senda frá sér plötuna Make it right sem er önnur stóra platan þeirra og í raun einskonar systurplata plötunnar Punch sem kom út 2019.
    GG Blús er tveggja manna blúshljómsveit – skipuð þeim Gumma trommara og Gumma gítarleikara sem syngja báðir og svo eru þrjár konur gestir á plötunni, Brynhildur Oddsdóttir, Bryndís Ámundsdóttir og Unnur Birna Björnsdóttir. Þeir Gummi og Gummi koma í heimsókn í Rokkland.
    Pétur Ben var með tónleika í Iðnó á fimmtudaginn en undanfarin 11 ár hefur hann eingöngu sent frá sér 2 ný frumsamnin lög, og það nýjasta; Painted blue pt. 2 kom út í vikunni. Pétur kemur í heimsókn.
    Dóra og Döðlurnar kepptu í Músíktilraunum í ár í fjórða sinn. Þær ætluðu að vinna, en það gekk ekki eftir. Þær sendu nýverið frá sér lagið Leyndarmál og eru að spila hér og þar í sumar.
    Þungarokkshljómsveitin Sleep Token frá London er leyndardómsfull og áhugaverð hljómsveit. Sleep Token var að senda frá sér plötu númer fjögur og hún fór beina leið í toppsæti Breska vinsældalistans núna í vikunni. Við kynnumst Sleep Token aðeins í Rokklandi vikunnar og minnumst Chris Cornell úr Soundgarden og Audioslave, en hann lést þennan dag – 18. Maí fyrir 8 árum.
    1 hr 54 min
  • Neil Young heiðursplata, Pavarotti ofl.
    Neil Young kemur við sögu í þættinum en það var að koma út plata sem gefin er út honum tiul heiðurs – en líka til að safna peningum fyrir Bridge skólann í Kaliforníu sem fyrrum eiginkona hans, Pegi, stofnaði fyrir næstum 40 árum. Bridge skólinn er fyrir fjölfötluð börn – eins og Ben son þeirra Neil og Pegi. En Neil er líka að fara að senda frá sér nýja plötu með nýrri hljómsveit, The Chrome Hearts, og er á leiðinni í tónleikaferð. Hann verður 80 ára í nóvember.
    Luiciano Pavarotti kemur líka við sögu, Hörður Torfason, Fiona Apple, Brandi Carlile, Elvis og fleiri.
    1 hr 50 min
  • Bryan Adams - beinin ber og hvað ef það væru engin lið...
    Bryan Adams er aðalgestur Rokklands að þessu sinni. Hann var með tvenna tónleika hérna um daginn í Eldborg í Hörpu sem seldist upp á - á svipstundu.
    Rokkland spjallaði við hann nokkrum dögum áður en hann kom og við heyrum það spjall í þættinum í bland við músíkina hans Bryans Adams.
    1 hr 53 min
  • Karl Hallgrímsson og lög um skólastarf, Steindór Andersen, Egill og Soffía og fleira.
    Egill Ólafsson kemur aðeins við sögu í Rokklandi í dag, Steindór Andersen sem lést núna á dögunum – mikill heiðursmaður – vann mikið með Sigur Rós – einn helsti kvæðamaður Íslands undanfarna árutugi – Soffía Björg Óðinsdóttir – Teitur Magnússon – Mark Knopfler – allskonar – splunkuný músík og eldri.
    En við heyrum líka á eftir í Karli Hallgrímssyni sem er Meistaranemi í stjórnun menntastofnana, en hann er búinn að vera að vinna að rannsókn um hvaða svipmyndir af skólastarfi og hvaða viðhorf til náms og menntunar birtast í textum íslenskra dægurlagatextahöfunda?
    Hann er búinn að gera tvo þætti um málið fyrir Rás 2 – sá fyrri er á ruv.is og í spilaranum og seinni er á dagskrá 1. Maí.
    1 hr 54 min

About Rokkland

From the publisher's feed

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.

More shows like Rokkland

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners