Rokkland

Rokkland

By RÚVMusic
Download on the App Store

Rokkland episodes

  • Palli & Benni og Alveg + Oyama í std. 12 + Bowie og Life on mars
    Í Rokklandi vikunnar heyrum við söguna á bakvið eitt af lögunum (Life on Mars eftir Bowie) sem verða flutt á 30 ára afmæli Rokklands í Hofi á Akureyri 1. nóvember, en þar mun SinfoniaNord – Todmobile bandið og fjöldi frábærra söngvara flytja haug af frábærum lögum.
    Við heyrum líka aðeins í hljómsveitinni Oyama sem er afskaplega fín hljómsveit sem gaf út plötuna Everyone Left fyrir tæpu ári. Oyama kom í sdt. 12 í vikunni og tók upp fjögur lög fyrir Rokkland sérstaklega og við heyrum tvö af þeim á eftir.
    En mesta púðrið fer í þá Benna Hemm Hemm og Pál Óskar Hjálmtýsson sem sendu frá sér plötu á föstudaginn sem heitir Alveg og varð eiginlega til ALVEG óvart.
    Þetta er áhugaverð plata og mikilvæg, hún á erindi við samtímann á margan hátt. Á plötunni eru þeir að fjalla um ýmis mikilvæg málefni sem koma okkur öllum við og pakka þeim inn í sykursætt og huggulegt popp.
    1 hr 53 min
  • ROKK GEGN HER - Árný Margrét
    ROKK GEGN HER voru tónleikar eða listahátíð sem ungt fólk stóð fyrir í Laugardalshöll í september fyrir 45 árum síðan.
    Unga fólkið sem stóð fyrr þessu var úr röðum herstöðvarandstæðinga – friðarsinna sem vildu losna við bandaríska herinn af keflavíkurflugvelli í nafni friðar – sögðu að herstöðin í Keflavík virkaði hreinlega eins og segull fyrir kjarnorkusprengjur – á marga vegu.
    Þeir Sveinn Rúnar Hauksson og Tolli Morthens sem voru í fararbroddi fyrir þessa tónleika koma í heimsókn og rifja þá upp.
    En Árný Margrét sem er að fara að halda sín lengstu sóló-tónleika á Íslandi kemur líka í heimsókn. Hún er líka að fara að gefa út nýja útgáfu af plötunni sinni I miss you – I do - og þar að auki er hún að fara í tónleikaferð um Bandaríkin með Of Monsters And men. Byrjar í október og verður allan nóvember.
    1 hr 50 min
  • Hildur Vala - Rock´n roll trip - Rokkland 30 ára
    Hildur Vala er aðalgestur Rokklands í dag - hún hélt upp á 20 ára tónlistarafmæli með tónleikum í Salnum laugardaginn fyrir viku.
    Það eru 20 ár síðan hún bar sigur úr býtum í annari Idol stjörnuleitinni og varð landsþekkt á augabragði.
    Síðan eru liðin 20 ár - hún er að vinna í fjórðu stóru plötunni og hún á líka fjögur börn sem komu í heiminn á þessum 20 árum. Hildur Vala er tónlistarkennari við FÍH í dag og hefur látið til sín taka í KÍTÓN. Það er um nóg að tala.
    Páll Óskar og Benni Hemm Hemm koma aðeins við sögu, líka Atli Þór Matthíasson sem fer í Rock´n roll trip á sumrin sem hann er allan veturinn að undirbúa. Og svo eru 30 ára afmælistónleikar Rokklands í Hofi á Akureyri 1. nóvember - við skoðum það aðeins.
    1 hr 49 min
  • Radiohead- hail to the thief (2003)
    Rokkland vikunnar er endurtekið frá 8. júní 2003 og í brennidepli er hljómsveitin Radiohead og platan Hail to the thief sem kom út 9. júní 2003.
    Radiohead tilkynnti núna í vikunni að það væri tónleikaferð framundan um nokkur Evrópulönd.
    1 hr 50 min
  • Rokkland í 15 ár (frá 2010)
    Rokkland vikunnar er endurfluttur þáttur frá 7. nóvember 2010 og hann var settur saman úr brotum úr ýmsum þáttum frá fyrstu 15 árum Rokklands.
    Við sögu koma t.d. Oasis, Björk, U2, Strokes, White Stripes, Beatles, Rolling Stones, Led Zeppelin, Hróarskelduhátíðin, John Lennon, Neil Young, Coldplay, Wilco, Micahel Jackson, Blur og Jeff Buckley.
    1 hr 51 min
  • Neil Young í 60 ár
    Rokkland vikunnar er endurfluttur frá 13. nóvember 2005 og viðfangsefnið er þá - 60 ára Neil young. Hann var nýbúinn að senda frá sér plötuna Praire Wind.
    1 hr 54 min

About Rokkland

From the publisher's feed

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.

More shows like Rokkland

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners