Rokkland

Rokkland

By RÚVMusic
Download on the App Store

Rokkland episodes

  • Rúnar Þórisson í 70 ár
    Fyrsti þáttur Rokklands 2026 er á dagskrá í dag og gestur hans er Rúnar Þórisson sem heldur afmælis og ferilstónleika í Bæjarbíó í Hafnarfirði næsta laugardag.
    rúnar var gítarleikari í Grafík með Helga Björns og AndrEu Gylfa og Raafni Jónssyni og fleirum á sínum tíma – en hann var líka í Dögg, Haukum, Ýr og fleiri sveitum á sínum tíma og hefur svo gert nokkrar sólóplötur. Sú nýjasta heitir Svo fer og er nýkomin út. Við ræðum um allt mögulegt í þættinum og spilum músík sem Rúnar hefur gert og hefur haft áhrif á hann.
    1 hr 52 min
  • Utangarðsmenn - Geislavirkir
    Í Rokklandi vikunnar ætlum við að hlusta á eina plötu eins og við gerum stundum í þessum þætti: Geislavirkir með Utangarðsmönnum sem Alda music gaf nýlega út í 45 ára afmælisútgáfu sem hefur bæði að geyma upphaflegu plötuna með Sigurður var sjómaður og Hiroshima, og líka ensku útgáfuna sem var hugsuð fyrir útlönd. Hún var gefin út í litlu upplagi en var aldrei fáanleg hér á Íslandi.
    Í aðalhlutverki eru tveir Utangarðsmenn af fimm, bræðurnir og gítarleikararnir Michael og Daniel Pollock. Þeir segja okkur frá þessari mögnuðu plötu sem kom út árið 1980 – fyrir 45 árum – og markaði nýtt upphaf í tónlistarlífinu og menningunni á íslandi. Utangarðsmenn er hljómsveitin sem Bubbi sló í gegn með og hljómsveitin sem kveikti neistann sem varð á endanum kvikmyndin Rokk í Reykjavík – og svo framvegis og svo framvegis.
    1 hr 48 min
  • Happy Xmas - War is over (JólaRokkland 2025)
    Bítlarnir eru besta hljómsveit sögunnar og John mikilvægasti Bítillinn. Já þetta eru sannarlega fullyrðingar en höfum þetta svona í dag. Og ég ætla að bæta um betur og segja: jólalag Lennons – Happpy Christmas - War is over er hugsanlega og líklega og jafnvel það Bítlalag (köllum það Bítlalag) sem á eftir að lifa lengst allra Bítlalaga.
    Við köfum við tilurð lagsins í Rokklandi dagsins og skoðum hvaðan það kom - og hvað var að gerast í lífi Bítlastrákanna á þessum tíma rétt eftir að hljómsveitin lagði upp laupana árið 1970-1971.
    Við kíkjum líka á Akranes og hittum þá Jón Jónsson, KK, Mugison og Þorleif Gauk í Bíóhöllinni á Akranesi, en þeir komu við þar rétt fyrir jól.
    1 hr 48 min
  • Aðventugleði Rásar 2 2025
    Aðventugleði Rásar 2 fór fram föstudaginn 5. desember – var send út beint hér á Rás 2 og á RUV 2.
    Við fengum fjölda af frábæru tónlistarfólki í heimsókn allan daginn: Jazzkonur, Margrét Eir mætti með kór og hljómsveit, Vitringarnr þrír komu í heimsókn með svaka band, Dóra og Döðlurnar. Við vorum með atriði frá Akureyri – Svavar Knút og Jónínu Björt, og svo komu Páll Óskar og Benni Hemm Hemm líka í heimsókn.
    1 hr 50 min
  • Majones Jól og Spíra Ólafar Arnalds
    Það er sunnudagur í aðventu í dag og Rokkland dagsins ber þess merki. Við komum aðeins við í aðventugleði Rásar 2 sem fór fram á föstudaginn – heyrum í Páli Óskar og Benna Hemm Hemm sem fluttu meðal annars lagið hans Magga Eiríks, Gleði og friðarjól.
    Ólöf Arnalds var að senda frá sér plötuna Spíru á föstudaginn. Spíra er fimmta platan hennar og sú fyrsta sem er öll sungin á Íslensku síðan fyrsta platan, Við og við kom út 2007. Ólöf Arnalds kemur í heimsókn í seinni hluta þáttarins en fyrri hlutinn er að mestu helgaður plötuni Majones jól sem kom 2006 en var að koma út á vinyl í fyrsta skipti í vikunni. Bogomil Font og Samúel Jón Samúelsson rifja upp hvernig það vildi til að þessi plata kom út.
    1 hr 51 min
  • Pétur Ben - Uppáhalds jólalmúsík Jonna í Reykjavík Record Shop og Jimmy Cliff
    Það er fyrsti í aðventu í dag og við verðum í aðventufötunum í seinni hluta Rokklands í dag – heimsækjum Jonna í Reyjavík record Shop á Klapparstígnum og hann velur fyrir okkur 5 jólalög sem passa fyrir fyrsta í aðventu og heyra aðeins um búðina hans og hvað hann er að gefa út líka.
    Svo er það Pétur Ben og nýja platan hans sem heitir Painted Blue, þriðja sólóplatan hans á 19 árum.
    Pétur hefur líka samið tónlist fyrir kvikmyndir og sjónvarpsþætti – td. Kvikmyndina Málmhaus og þáttaröðina Fangar og Pétur hlaut Edduverðlaun fyirr hvort tveggja.
    Hann hefur unnið líka sem upptökustjóri – útsetjari og gítarleikari fyrir hina og þessa - Nick Cave og Warren Ellis, Mugison, Efterklang, Oyama, Slowblow, Valdimar, Sóley, Amiina, Lay Low og Emiliönu Torrini og Bubba.
    Svo minnumst við Jimmy Cliff sem lést síðasta mánudag – 81 árs, en Jimmy Cliff er einn af merkisberum Reggí-tónlistarinnar og á stóran þátt í því að fólk opnaði eyrun fyrir reggí-músíkinni frá Jamaíka.
    1 hr 49 min

About Rokkland

From the publisher's feed

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.

More shows like Rokkland

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners