Rokkland

Rokkland

By RÚVMusic
Download on the App Store

Rokkland episodes

  • Björgvin Halldórsson kvaddur
    Rokkland dagsins er dálítið sérstakt vegna þess að þar verður útvarpað styttri útgáfu af útför Björgvin Halldórssonar sem var mikil tónlistarveisla eins og við var að búast.
    Björgvin (Bo Halldorson var lagður til hinstu hvílu á þriðjudaginn síðasta og mörg hundruð manns fylgdu honum síðustu metrana í Hallgrímskirkju. SÝN sá um beina útsendingu frá útförinni á Visi og við á Rás 2 fengum leyfi hjá Sýn og fjölskyldu Björgvins til að útvarpa hluta af útöförinni í Rokklandi í dag.
    Þau sem sungu í útförinni voru landslið og vinir Börgvins: Eyþór Ingi Gunnlaugsson, Páll Rósinkranz, mugison, Daníel Ágúst, Ragnheiður Gröndal og Sigríður Thorlacius– Fóstbræður og svo börnin hans 2 af þremur – Krummi Bjorgvinsson og Svala Björgvins. Andrea Ingvarsdottir söng með þeim. Óskar Einarsson spilaði á píanó og var tónlistarstjóri og Guðmundur Pétursson spilaði á gítar. Jakob Frímann talar og líka Ari Eldjárn. Prestur var Guðni Már Harðarsonsem stjórnaði öllu saman.
    Í lok þáttar eru svo brot frá nokkrum heimsóknum Björgvins í Rokkland gegnum tíðina ❤ 🎵
    1 hr 54 min
  • Jesse Welles og MÚR
    Í Rokklandi vikunnar kynnumst við hinum 34 ára Jesse Welles sem ætlaði sér alltaf að verða tónlistarmaður en gafst svo upp þegar ekkert gekk fyrir nokkrum árum og flutti aftur heim til Ozark í Arkansas. Það var svo þegar hann sat við hlið föður síns sem hafði fengið hjartaáfall - á sjúkrahúsi – sem hann ákvað að halda áfram í músíkinni en skipta um aðferð.
    Síðan 2024 hefur Jesse Welles gefið út 8 plötur og honum er líkt við ungan Bob Dylan. Í einu nýjasta laginu hans (No Kings) syngur Joan Baez með honum. Við kynnumst Jesse Welles í Rokklandi vikunnar og Bubbi Morthens leggur orð í belg.
    Við förum líka á Eurosonic festival í Hollandi og hittum þar Maríu Rut Reynisdóttur framkvæmdastjóra Tónlistarmiðstöðvar Íslands og þá Kára og Haukur úr hljómsveitinni MÚR sem spilaði á hátíðinni og er á hraðri siglingu út í heim þessa dagana.
    1 hr 51 min
  • Akranes krú - Tíbrá - Gaddavír - Bubbi - Falinn Gjóður
    Hljómsveitin Tíbrá frá Akranesi er jafn gömul U2 – var stofnuð árið 1976 og hefur verið starfandi með hléum síðan þá en var öflugust milli 1980 og 1990.
    Núna næsta laugardag ætlar Tíbrá að fagna 50 ára afmæli með tónleikum í Bíóhöllinni á Akranesi og Rokkland fór og hitti þá Eirík trommara og Flosa hljómborðsleikara á æfingu í vikunni!
    Rokkland spjallaði líka lítillega við sigursveit Músíktilrauna eftir sigurinn í Hörpu um daginn. Þetta eru þrír stákar í 10unda bekk sem kalla sig Galinn Gjóður og þeir hlusta aðallega segja þeir á Frank Zappa og Þursaflokkinn.
    Halldór Gunnars Pálsson segir okkur frá nýja laginu hans Bubba sem kom út í gær og heitir Við föllum – og Halldór er líka hljómsveutarstjóri Bubba á afmælistónleikunum sem verða í Laugardalshöll 6. Júní.
    Svo er það grjótmulningsvélin frá Akranesi – hljómsveitin Gaddavír sem sigraði í Wacken Metal Battle 2025 og tók þátt í Músíktilraunum fyrir áratug.
    Gaddavír fór út til þýskalands til að spila á Wacken Open Air – ásamt hljómsveitum frá 30 öðrum löndum í fyrra og var líka að senda frá sér plötuna Akranes krú. Brynjólfur Þór Guðmundsson Skagamaður og fréttamaður hér á RÚV er Wacken maður og hann ræddi við Gaddavír fyrir Rokkland.
    1 hr 53 min
  • TODMOBILE II
    Hljómsveitin Todmobile hlaut á dögunum heiðursverðlaun ÍTV fyrir framlag sitt til tónlistarlífsins á Íslandi í næstum 40 ár, en rætur hljómsveitarinnar liggja allt aftur til tímans þegar rokk í Reykjavík var að verða til.
    Þorvaldur Bjarni heldur áfram að segja frá í Rokklandi vikunnar!
    2 hr 6 min
  • TODMOBILE
    Hljómsveitin Todmobile hlaut á dögunum heiðursverðlaun ÍTV fyrir framlag sitt til tónlistarlífsins á Íslandi í næstum 40 ár, en rætur hljómsveitarinnar liggja allt aftur til tímans þegar rokk í Reykjavík var að verða til.
    Þeir Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson og Eyþór Laxdal Arnalds höfðu þekkst frá 6-7 ára aldri og fyrsta hljómsveitin hans Þorvaldar sem hét Exodus spilaði í Stundinni okkar. Skúli Sverris spilaði á bassa í Exodus og Björk Guðmundsdóttir söng. Eyþór Arnalds stal Björk svo úr Exodus og í Tappa Tíkarrass.
    Seinna voru þeir Eyþór og Þorvaldur skólabræður í tónfræðideild Tónlistarskólans í Reykjavík og þriðja púslið í Todmobile framlínuna var svo söngkonan Andrea Gylfadóttir sem hafði slegið í gegn með hljómsveitinni Grafík og hafði lokið prófi sem óperusöngkona frá Söngskólanum í Reykjavík með hæstu einkun.
    Todmobile sló í gegn með fyrstu plötunni sinni- Betra en nokkuð annað sem kom út 1989 og þegar ÍTV voru afhent í fyrsta sinn árið 1994 fékk Todmobile næstum öll verðlaunin.
    Hljómsveitin hefur verið starfandi með hléum allar götur síðan 1988 og á undanförnum árum hefur Todmobile einbeitt sér að því að halda stóra tónleika í stærstu tónleikahúsum landsins. Þau hafa fengið erlendar stórstjörnur til samstarfs við sig – hetjur og átrúnaðargoð sérstaklega Þorvaldar Bjarna sem hefur mest verið við stýrið í Todmobile- Jon Anderson úr Yes og Steve Hacket úr Genesis - og núna síðast voru það Nik Kershaw – Midge Ure úr Ultravox og Tony Hadley úr Spandau Ballet.
    Þorvaldur Bjarni segir frá í Rokklandi vikunnar!
    1 hr 52 min
  • Víkingur Heiðar
    Gestur Rokklands þessa vikuna er enginn annar en píanósnillingurinn OKKAR – Víkingur Heiðar Ólafsson
    En Víkingur Heiðar er með 2 og hálfa milljón hlustenda á mánuði á Spotify - hann ferðast um heiminn þveran og endilangan og spilar í glæsilegustu tónleikahúsum heims – Carnegie Hall – Royal Albert Hall- og svo framvegis.
    Hann býr á Seltjarnarnesinu - spilar yfir 100 tónleika á ári í útlöndum - er dáður og virktur – gefur út hjá elsta plötufyrirtæki heims – hinu virta Deutche Grammophone.
    Hann hefur komið fram hjá Jools Holland á BBC – var í löngu viðtali hjá upptökustjóranum Rick Rubin fyrir skemmstu og þannig mætti lenggi halda áfram. Víkingur Heiðar er stórstjarna – og ekki bara í útlöndum vegna þess að við landar hans erum líka afskaplega hrifin af honum. Hann er að spila í Eldborg í Hörpu í næstu viku – þrisvar sinnum – miðvikudag – skírdag og laugardaginn fyrir páska.
    Hann gaf sér tíma til að koma í upptöku fyrir Rokkland í stúdíó 12 í stuttu stoppi hérna heima - hann stoppaði í tæpa tvo sólarhringa – var að koma frá París þar sem hann var að spila – og var á leiðinni til Bandaríkjanna til að spila nokkra tónleika – áður en hann kom svo aftur heim – og hann var veikur.
    Undir lok þáttarins förum við svo í Hljóðrita í Hafnarfiði og hlustum á Vintage Caravan ásamt Tómasi Jónssyni og Eyþóri Inga spila og syngja Deep Purple – en þeir eru með tónleika í Eldborg og Hofi núna í apríl þar sem þeir ætla að spila Deep Purple – og ég get sagt ykkur að það er ekki hægt að gera það betur en þeir gera það. Frábærir!
    1 hr 52 min
  • Atli Örvarsson
    Atli Örvarsson sagði skilið við hljómsveitalífið á Íslandi fyrir rúmum 30 árum – hætti í Sálinni hans Jóns Míns sem þá var vinsælasta hljómsveit landsins og fór til Ameríku í nám í hinum virta Berklee tónlistarháskóla með höfuðáherslu á kvikmyndatónlist. Í beinu framhaldi kláraði hann mastersnám í North Carolina School of Arts.
    Síðan þá hefur hann samið og útsett tónlist fyrir kvikmyndir og sjónvarpsþætti sem við þekkjum flest – og Atli Örvarsson er í dag eitt eftirsóttasta kvikmyndatónskáld í heims. Hann hefur hlotið allskyns viðurkenningar - verið tilnefndur til Grammy verðlauna og fyrir tveimur árum hlaut hann Bafta verðlaun fyrir tónlistina í sjónvarpsþáttunum Silo sem sýndir eru á Apple TV+.
    Atli er líka einn af sigurvegurum Músíktilrauna – sigraði 17 ára með Stuðkompaníinu sem hann var ásamt Kalla bróður sínum og fleiri strákum frá Akureyri.
    Lukkan hefur verið í liði með Atla – honum hefur gengið alveg ótrúlega vel, en hvað er þetta mikið lukka og hvað mikið af allt öðru?
    Við ætlum að kynnast Atla Örvarssyni í Rokklandi í dag – hann segir sjálfur sögu sína en hann verður á sviðinu í Hofi á Akureyri á skírdag með SinfoniuNord – stjórnar hljómsveitinni og músíkin er öll eftir hann.
    1 hr 52 min
  • Ragga
    Borgarlistamaður 2025 – Ragga Gísla er gestur Rokklands þessa vikuna.
    Ragga úr Grýlunum og Stuðmönnum sem er búin að gleðja okkur Íslendinga með söng og músík og frumleigheitum ýmiskonar. Og Ragga á sér svo margar hliðar en hún er alltaf í tengingu við sjálfa sig. Hún veit hvað hún vill og er með stíl sem hefur einnkennt hana í áratugi.
    Ragga er söngkona/tónlistarmaður/tónmenntakennari/Stuðmaður/tónskáld/Grýla og svo margt fleira.
    Ragga er fyrirmynd kvenna í músík og kvenna almennt - hún stofnaði fyrstu kvennahljómsveitina á Íslandi og hún er mikill jafnréttissinni.
    Rokkland vikunnar er RögguRokkland!
    1 hr 50 min

About Rokkland

From the publisher's feed

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.

More shows like Rokkland

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners