Rokkland

Rokkland

By RÚVMusic
Download on the App Store

Rokkland episodes

  • Bubbi og við
    Bubbi Morthens er maður dagsins í Rokklandi en hann ætlar ekki að segja margt sjálfur í dag.
    Við eigum öll okkar uppáhalds Bubba – hann er búinn að vera yfir og allt um kring síðan við vorum börn svo mörg – hann er alltaf þarna- eins og Esjan.
    Stundum finnst okkur hann frábær og stundum kannski ekki - en við höfum alltaf skoðun á honum – alveg eins og hann hefur skoðun á öllu.
    Eiríkur Örn Norðdahl skrifaði skemmtilegan pistil á Facebook í gær:
    "Tónlistina þarf ekkert að ræða. Hún er fyrir löngu handan þess að vera góð eða slæm – við debaterum ekki klassíkina –hún er einsog norðanáttin og sumarsólin, óaðskiljanlegur hluti af tilverunni hér".
    Rokkland vikunnar er þannig að samferðafólk Bubba – gamlir samstarfsfélagar og nýjir, og vinir eins og Guðmundur Pétursson, Jakob Smári Magnússon, Jón Óskar, Elín Hall, Ragga Gröndal, Ólafur Egill og Esther Talía, Þorleifur Guðjónsson, Stefán Jón Hafstein, Sigrún Stefánsdóttir, Halldór Gunnar Pálsson, Inga Sólveig, Silja Aðalsteinsdóttir og Halla Tómasdóttir forseti íslands segja okkur frá sínum Bubba – Bubbi og ég - Bubbi og við.
    1 hr 50 min
  • Miðstöðin Grafarvogi - Ívar Klausen - Sonny Rollins RIP
    Í Rokklandi dagsins komum við við á þremur stöðum-
    Í seinni hlutanum kynnumst við starfsemi Miðstöðvarinnar í Grafarvogi, en Miðstöðin er einskonar school of rock Í Grafravogi. Skólameistari Miðstöðvarinnar er Ólafur Elíasson píanóleikari og kennari en hann hefur innréttað iðnaðarhúsnæði sem er í senn ævingahúsnæði fyrir hljómsveitir – hljóðver – tónlistarskóli og félagsmiðstöð fyrir ungt fólk sem ætlar sér að vera í músík og vera í hljómsveit.
    Miðstöðin hefur alið af sér hljómsveitir eins og White Signal – Karma Brigade – 5K sem spilar meðal annars á Kaleo tónleikunum á Þingvöllum – og Dóraog Döðlurnar. Rokkland heimsótti Miðstöðina í vikunni.
    Saxófónleikarinn Sonny Rollins lést í vikunni sem leið og Sigurður Flosason segir okkur aðeins frá Sonny Rollins sem var einn af þeim allra bestu og mikilvægustu – við höfum öll heyra hann spila án þess kannski að hafa pælt í því.
    En byrjum á Ívari Klausen (Ívar Andri Klausen) sem var að senda frá sér sína fyrstu sólóplötu um daginn. Ívar er að austan – tók þátt í Músíktilraunum á sínum tíma með hljómsveitinni Dopamine Machine, er að spila með hinum og þessum og er búinn að vera bassaleikari í MÚR árum saman.
    1 hr 52 min
  • Bob Dylan í 85 ár - Hver er þessi maður eiginlega?
    Bob Dylan á afmæli - hann er 85 ára í dag og þess vegna er Rokkland vikunnar helgað honum og hans músík.
    Bob Dylan er einn merkasti tónlistarmaður sögunnar og ég er búinn að vera aðdáandi síðan ég var 15 ára eða þar um bil.
    Hann var hafinn upp til skýjanna af ungu fólki um allan heim þegar hann kom fram fyrst fyrir meira en 60 árum – rétt rúmlega tvítugur spámaður með gítar sem söng fyrst og fremst um óréttlæti heimsins og illsku mannanna. Hann olli mörgum miklum vonbrigðum þegar hann fór af þeirri braut nokkrum árum síðar og fór að spila einskonar Bítlarokk – syngja illskiljanlega texta – og líka um ástina. Síðan þá hefur margt gerst og Dylan hefur verið meira og minna á tónleikaferðalagi í næstum 40 ár – hann er t.d. að spila í allt suma í Bandaríkjunum.
    Plöturnar eru margar eins og raddirnar og karekterarnir sem hann hefur sýnt okkur gegnum tíðina. Hver er hann eiginlega þessi maður?
    Guðmundur Andri Thorsson er Dylan maður og hann er gestur Rokklands á morgun. Guðmundur þýddi sjálfsævisöguna Chronicles sem kom út fyrir nokkrum árum og þar er í bókarlok viðauki frá Guðmundi Andra – lagalisti sem hann setti saman. Við skoðum hann í Rokklandi og förum hingað og þangað.
    1 hr 51 min
  • Baldvin Hlynsson - Bjössi Basti og The Hangmen - Angine de Poitrine og Iron Maiden
    Í Rokklandi vikunnar kynnumst við rokkhljómsveitinni The Hangmen frá Los Angeles sem spilar á tónleikum í Tjarnarbíó næsta föstudagskvöld ásamt Dr. Gunna (Hljómsveitin Dr. Gunni – hOFFMAN og Bleiku Böstunum. Bjössi Basti (Bjorn Helgi Baldvinsson sem t.d. stofnaði X-ið á sínum tíma og er söngvari Bleiku Bastanna stendur að tónleikunum og segir okkur frá The Hangmen.
    Við skoðum aðeins kanadísku hljómsveitina Angine De Poitrine sem hefur vakið mikla athygli undanfarið fyrir skemmtilegt stærfræði-jazz-proggrokk – feluleik og áhugaverða búninga.
    Svo er það Baldvin Hlynsson sem er hljómsveitarstjóri í Ormstungu í Þjóðleikhúsinu – upptökustjóri – lagasmiður og hljómborðsleikari í 70 ára afmælisbandi Bubba Morthens þar sem Halldór Gunnar Pálsson Fjallabróðir er hljómsveitarstjóri. Við kynnumst Baldvin en það er margt í gangi hjá honum alla daga.
    Svo kemur Iron Maiden aðeins við sögu en splunkunýrri heimildarmynd um Iron Maiden sem var frumsýnd síðasta föstudag.
    1 hr 53 min

About Rokkland

From the publisher's feed

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.

More shows like Rokkland

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners