Rokkland

Rokkland

By RÚVMusic
Download on the App Store

Rokkland episodes

  • TÞM - útrás Utangarðsmanna og Europe´s Biggest Gig
    Í Rokklandi dagsins/vikunnar kemur Daníel – Danny Pollock í heimsókn, en hann er búin að vera forstöðumaður TÞM Tónlistarþróunarmiðstöðiní meira en 20 ár á Grandanum í Reykjavík. Þar æfa um það bil 40 hljómsveitir alla daga í 15 æfingaherbergjum en nú er uppnám í tónlistarborginni Reykjavík vegna þess að TÞM missir húsnæðið í lok apríl og hvað þá? Við ætlum að spjalla um TÞM og líka gömlu hljómsveitina hans Danna, Utangarðsmenn - og útrásardrauma þeirra sem voru sannarlega til staðar fyrir 45 árum síðan. Og núna fyrir síðustu jól kom plata Utangarðsmanna – Geislvirkir út í viðhafnarútgáfu með aukaplötu sem er öll sungin á ensku.
    Europe´s Biggest Gig er sameiginlega útvarpsútsending 5 Evrópskra útvarpsstöðva sem átti sér stað síðasta þriðjudag og gengur út á að kynna nýja tónlist frá þessum 5 sömu löndum fyrir útvarpshlustendum þessarara sömu landa - 5 listamenn/hljómsveitir sem spiluðu LÆV í stúdíóum þessara fimm útvarpsstöðva sem voru BBC Radio One, RTÉ 2 á Írlandi, WDR 1 í þýskalandi og Antenna 3 í Portúgal. Okkar listamaður – þeas okkar Íslendinga og Rásar 2 var Spacestation Hver stöð fékk hálftíma til umráða og við heyrum okkar hluta af þessu prógrammi í Rokklandi.
    1 hr 48 min
  • Öskudagar U2 - Elvis - Rosalía og Fela Kuti
    U2 fær stærsta plássið í Rokklandi vikunnar en þessi gamla og merkilega hljómsveit frá Dublin sem á hvorki meira né minna en 50 ára afmæli í ár sendi algjörlega óvænt frá sér sér 6 laga plötu á Öskudag sem heitir einmity Days of Ash. Þessi plata er mikil fríðar-pólitík og ekki veitir okkur nú af þessa dagana en að berjast fyrir friði – tala fyrir honum og syngja um hann.
    U2 aðdáendur skoða plötuna með umsjónarmanni lag fyrir lag: Hildur Eir Bolladóttir prestur á Akureyri, Jón Knútur Ásmundsson á Reyðarfirði, Illugi Jökulsson, Helga Vala Helgadóttir og Arnar Eggert Thoroddsen.
    Svo ætlum við að skoða Fela Kuti sem hlaut dögunum Grammy verðlaun fyirr avistarfið - Lifetime Achievement Award fyrstur Afríkumanna og næstum 30 árum eftir að hann lést.
    Við beinum sjónum að Elvis myndinni sem er verið að sýna í kvikmyndahúsum í borginni þessa dagana – td. í kvöld. Baz Luhrman gerði þessa mynd sem er byggð upp á áður óséði efni frá árunum 1970-1972 að mestu.
    Olivia Dean var sigursælust á Bresku tónlistarverðlaununum (Brit Awards) sem voru afhent í Manchester í gærkvöldi. Björk var á svæðinu og steig á svið með vinkonu sinni Rosaliu sem hluta verðlaun sem „alþjóðlegur listamaður ársins“.
    1 hr 50 min
  • KK í 60 ár
    Tónlistarmaðurinn KK - Kristján Kristjánsson ætlar að fagna 70 árum á jörðinni með afmælistónleikum í Háskólabíó 8. maí.
    Þegar hann varð 60 ára fyrir áratug heimsótti hann Rokkland í std. 12 í útvarpshúsið og ræddi við umsjónarmann um líf og störf Kristjáns.
    KK talaði um æskuna í Kaliforníu, pabbann sem týndist í Vietnam, um mömmu sína og systkini, um gítarana sína, unglingsárin á Íslandi, Bítlana, JJ Cale, Kris á Frakkastígnum, um Vegbúann, leikhúsið, útvarpið, Magga Eiríks, Bubba Morthens, eiginkonuna frá Akranesi, um óttann og margt fleira. Hann var með einn af gíturunum sínum með sér og spilaði nokkur lög eftir sig og aðra.
    Þessi þáttur er endurfluttur frá 2016.
    1 hr 52 min
  • Hver er Bad Bunny og hver er Ívar Ben?
    Í Rokklandi vikunnar kynnumst við Jarðfræðiprófessornum Ívari Ben sem var að senda frá sér sína fyrstu plötu – og á vinyl. Hann er búinn að vera að búa til lög árum saman en svo vatt þetta upp á sig og nú er komin út plata.
    En í fyrri hluta þáttarins kynnumst við Bad Bunny sem vakti mikla athygli fyrir skemmtiprógrammið sem boðið var upp á í hálfleik á Superbowl í bandaríska fótboltanum síðasta sunnudag – Ofurskálinni.
    Þetta 13 mínútna skemmtiatriði Bad Bunny frá Puerto Rico hefur skipt fólki í fylkingar og einn af þeim sem er óánægður er foringinn í hvíta-húsinu í Bandaríkjunum sem sagði á samfélagsmiðlinum sínum að þetta atriði hafi verið eitt það versta frá upphafi skemmtiatriða á Superbowl og móðgun við mikilleika Bandaríkjanna. Þá hafi dansatriðin verið ógeðsleg, sérstaklega fyrir börnin sem horfðu á. „það skilur enginn orð af því sem þessi gaur segir“ sagði hann líka – en hann söng á spænsku sem er hans tungumál og móðurmál eins og c.a. 45 milljóna bandaríkjamanna – c.a. 13% bandarísku þjóðarinnar.
    1 hr 50 min
  • Elín Hall á ESNS 26 - Sú Ellen og Ási í Paradís - Hellfoss 2026
    Í seinni hluta Rokklands í dag kíkjum við í Sandgerði og heimsækjum feðgana Jóa og Ása – Jóa í Messoforte og Ása tromara son hans sem reka í Sandgerði Stúdíói Paradís sem er byggt á landi sem afi Ása – KK – hljómsveitarstjórinn KK (Kristján Kristjánsson – KK sextett) átti. Við heyrum spjall við Ása og strákana í hljómsveitinni Sú Ellen frá Neskaupsstað sem er jafn gömul Rás 2 og er búin að vera að taka upp plötu í Paradís.
    Þaðan lá leiðin á Selfoss á HELLFOSS – nýja þungarokkshátíð sem 12 hljómsveitir spiluðu á um helgina á Sviðinu á Selfossi. Dr. Spock – Une Misere – Volcanova – Slysh – Auðn og fleiri. Rokkland spjallaði við Rúnar Hroða Geirmundsson stjórnanda Hellfoss , Sigga Pönk -Smára Tarf – Finna á Prikinu og Óttar Proppé.
    Svo setjum smá fókus á Minnieapolis – ICE - Bruce Springsteen og Billy Bragg. En byrjum á Elínu Hall sem Rokkland spjallaði við á Eurosonic festival í háskólaborginni Groningen í Hollandi um miðjan janúar.
    1 hr 51 min
  • Kiddi Hjálmur - Baggalútur og Hljóðriti
    Undanfarna fjóra sunnudaga hefur Sjónvarpið sýnt okkur bráðskemmtilega þætti um HlJóðrita – hljóðverið í Hafnarfirði sem er elsta starfandi hljóðver landsins - stofnað árið 1975 af nokkrum kraftmiklum ungum mönnum af miklum metnaði.
    Þættirnir segja sögu Hljóðrita – hvernig það skipti sköpum varðandi íslenska tónlist og útgáfu á sínum tíma en þar voru teknar upp allar vinsælustu plöturnar sem komu út á íslandi í áratug eða meira – Mannakorn – Spilverkið- Grýlunar – Villi Vill – Gunni Þórðar – Magnús Þór – Bubbi – Megas – Þeyr – Tappi Tíkarrass – Brunaliðið - Grafík – jólaplötur og svo framvegis.
    En tíminn leið og tímarnir breyttust – hljóðverum fjölgaði í borginni og um allt land og Hljóðriti missti flugið af ýmsum ástæðum. Það stóð til um tíma að loka alveg, rífa hljóðverið og breyta húsnæðinu í skrifstofur. En sem betur fer gerðist það ekki og það má segja að bjargvættur Hljóðrita sé rauðhærður eldhugi frá Keflavík sem heitir Guðmundur Kristinn Jónsson. Hann er búinn að ráða ríkjum í Hljóðrita í um 20 ár og Hljóðriti hefur verið hans heimavöllur meira en helming þess tíma sem Hljóðriti hefur verið aktífur.
    Í fjórða og síðasta Hljóðritaþættinum kemur vel fram hvað Kiddi – eins og hann er kallaður - Kiddi Hjálmur – Kiddi í Hljóðrita – Kiddi Baggalútur – Kiddi í Hljómskálanum – hefur haft mikil áhrif á íslenskt tónlistarlíf síðasta aldarfjórðunginn amk, en hann er lykilmaður í Hjálmum – Baggalúti – Hljómskálanum – Hljóðrita – Sigurði Guðmundssyni – Megasi og Senuþjófunum – Memfismafínunni - Ásgeiri Trausta – Árnýju Margréti og svo framvegis.
    Kiddi er gestur Rokklands þessa vikuna. Rokkland heimsótti hann í Hljóðrita.
    1 hr 52 min
  • Rokkland 2025 - brot frá árinu sem leið
    Í þessum þætti rifjum við upp brot úr ýmsum Rokklandsþáttum frá árinu sem var að kveðja. Við heyrum í Björk – Roslíu – Páli Óskari og benna Hemm hemm – Atla rock´n roll ferðalangi – Hafdísi Huld – Hildi Völu – Ellen kristjáns - Robert Plant og Led Zeppelin – Bryan Adams – Steinari Berg og Mugison t.d.
    1 hr 51 min

About Rokkland

From the publisher's feed

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.

More shows like Rokkland

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners