Hvenær byrjuðu Japanir að borða súshí? Af hverju er Japan kallað Japan? Og hver er þessi Himiko, nornadrottning sem kínversk sagnarit skrifa um og drottnar yfir eyjum í austri skammt frá löndum nakta fólksins, dverganna og mannanna með svörtu tennurnar?
Þessum spurningum og fleirum verður svarað í þessum þætti sem gerist undir lok Yaoyoi tímabilsins milli 50-300 eftir krist þegar fyrstu rituðu heimildir um mannfólk í Japan eru ritaðar. Persónur og leikendur eru keisarinn af Cao Wei, konungurinn af Na og að sjálfsögðu Himiko, goðsagnakennda drottningin sem hugsanlega var fyrsta konan til að stýra Japan.