Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni. Hosted on Acast. See ... more
FAQs about Silfrið:How many episodes does Silfrið have?The podcast currently has 5 episodes available.
September 30, 20255. þáttur: Borgarstjóri situr fyrir svörum og fall PlayHeiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri er í viðtali um ýmis mál sem hefur verið deilt um í borginni að undanförnu. Þá ræða Hörður Ægisson ritstjóri Innherja, Ásta Kristín Sigurjónsdóttir framkvæmdastjóri íslenska ferðaklasans og Jón Karl Ólafsson fyrrverandi forstjóri Icelandair um fall Play. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information....more46minPlay
September 23, 20254. þáttur: Gervigreindarkapphlaupið - möguleikar og ógnirGervigreind er farin að setja mark sitt á samfélagið svo um munar. Hún greinir fyrir okkur gögn, velur fyrir okkur tónlist - eða semur hana ef því er að skipta - og tekur jafnvel ákvarðanir sem áður voru á mannanna höndum. En tilvist hennar vekur líka stór og mikil álitamál, bæði praktísk og siðferðisleg um orkuöflun, atvinnulíf, jöfnuð, lýðræði og jafnvel sjálfa mennskuna. Gestir Silfursins eru Henry Alexander Henryson heimspekingur, Hjálmar Gíslason, framkvæmdastjóri Grid og tækniáhugamaður, og Sigríður Mogensen, sviðsstjóri hugverka hjá Samtökum iðnaðarins, og Errol Norlum, stofnandi The AI Framework. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information....more45minPlay
September 16, 20253. þáttur: Menningarstríðið blossar uppVið ætlum að tala um menningarstríðið svonefnda, sem hefur blossað rækilega upp í kjölfar morðsins á bandaríska áhrifavaldinum Charlie Kirk fyrir helgi, auk þess sem fjölmenn mótmæli gegn flóttafólki voru í Bretlandi um helgina. Við freistum þess að henda reiður á stöðu mála með þeim Ingvari Smára Birgissyni lögmanni, Maríu Rut Kristinsdóttur alþingismanni, Kolbeini Stefánsyni, dósent í félagsráðgjöf, og Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur, framkvæmdastjóra Courage International og fyrrverandi þingmanni Pírata. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information....more47minPlay
September 09, 20252. þáttur: Þvingunaraðgerðir gegn Ísrael og fjárlög næsta ársÞingmennirnir Sigríður Á. Andersen, Sigurður Ingi Jóhannsson, Pawel Bartoszek og Guðmundur Ari Sigurjónsson ræða þvingunaraðgerðir stjórnvalda gegn Ísrael og fjárlagafrumvarp næsta árs. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information....more46minPlay
September 02, 20251. þáttur: Mótmæli í Háskóla Íslands og verkefni vetrarinsSilja Bára Ómarsdóttir rektor Háskóla Íslands ræðir um atvik í síðasta mánuði, þar sem hætt var við fyrirlestur ísraelsks fræðimanns vegna mótmæla gegn framferði Ísraelsmanna á Gaza. Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri Akureyrar, Baldur Þórhallsson stjórnmálafræðingur og Gylfi Magnússon hagfræðingur ræða verkefni vetrarins framundan; sveitarstjórnarmálin, efnahagsmálin og ókyrrð og væringar á alþjóðavettvangi. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information....more44minPlay
FAQs about Silfrið:How many episodes does Silfrið have?The podcast currently has 5 episodes available.