Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Fréttastofa RÚV kryfur augnablikið á 7 mínútum alla mánudaga, miðvikudaga og föstudaga.Umsjón: Freyr Gígja Gunnarsson.... more
FAQs about Sjö mínútur með fréttastofu RÚV:How many episodes does Sjö mínútur með fréttastofu RÚV have?The podcast currently has 64 episodes available.
March 15, 2024Hvað er málið með Tiktok og bandaríska þingið?Bandaríska fulltrúadeildin samþykkti í vikunni frumvarp sem gæti orðið til þess að Tiktok verði bannað vestanhafs. Við hvað eru bandarískir þingmenn hræddir? Safnar Tiktokt eitthvað meiri upplýsingum um okkur en Facebook og Twitter? Ingunn Lára Kristjánsdóttir og Hallgrímur Indriðason svara því. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson....more8minPlay
March 13, 2024Konungsfjölskyldan sem ekkert hefur lærtKatrín prinsessa af Wales fór í aðgerð um miðjan janúar og síðan þá hefur netið logað af samsæriskenningum um hvar hún sé og hvernig hún líti út. Breytt mynd sem hún birti á mánudag hefur gert lítið til að lægja þær öldur. Anna Lilja Þórisdóttir veit meira um málið. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson...more8minPlay
March 11, 2024Pútín gegn Biden eða TrumpUm helgina ganga Rússar að kjörborðinu og kjósa Pútín áfram sem leiðtoga sinn. Vestanhafs er öllu meiri spenna þar sem Trump og Biden reyna að vinna kjósendur á sitt band. Skipta þessar kosningar okkur hin einhverju máli? Hallgrímur Indriðason reynir að svara þeirri spurningu. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson....more8minPlay
March 08, 2024Hulunni svipt af huldumanninum DavíðFrá áramótum hefur Urður Örlygsdóttir aðeins hugsað um eitt; athafnamanninn Quang Lé sem er ættaður frá Víetnam og vill láta kalla sig Davíð Viðarsson. Hann er einn þeirra sex sem úrskurðuð voru í gæsluvarðhald eftir umfangsmiklar aðgerðir lögreglu sem beindust að viðskiptaveldi Quang. Urður segir frá Kveiksþættinum og vinnunni á bakvið hann. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson....more8minPlay
March 06, 2024Þarf Sjálfstæðisflokkurinn ekki á VG að halda í útlendingafrumvarpinu?Þingflokksformaður VG upplýsti í ræðu á Alþingi að flokkurinn setti ákveðna fyrirvara við útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra. Þetta kom stjórnarandstöðunni á óvart. Af hverju gerði VG þessa fyrirvara og skipta þeir einhverju máli? Höskuldur Kári Schram fer yfir stöðuna. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson....more8minPlay
March 04, 2024Bíddu - átti ekki að koma gos?Það héldu allir að það væri að fara að gjósa á laugardag. En svo gerðist ekki neitt. Þýðir það að það er stutt í næsta gos? Benedikt Sigurðsson fylgdist með jarðhræringunum á laugardag og segir frá skemmtilegri uppákomu á Veðurstofunni og túristum sem vildu sjá gos. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson....more7minPlay
March 01, 2024Nærri búinn að kaupa samningajakka þegar allt fór í háaloftSamningamaður í kjaraviðræðum breiðfylkingar stéttarfélaganna og Samtaka atvinnulífsins væri nærri búinn að kaupa jakka sem hann ætlaði klæðast við undirritun kjarasamninga þegar allt fór í háaloft. Boðað hefur verið til fundar í dag en er líklegt að deiluaðilar nái saman um helgina? Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir spáir í spilin. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson....more7minPlay
February 28, 2024Hver er sannleikurinn um blóðmerahald?Kveikur fjallaði í gær um blóðmerahald og hver staðan er í þessari umdeildu atvinnugrein tæpum þremur árum eftir að svissneskir dýraverndunarsinnar birtu myndskeið frá hestahaldi sem fáir vissu af. María Sigrún Hilmarsdóttir segir frá tilraunum Kveiks til að fá að mynda blóðmerahald og ræða við forsvarsmenn Ísteka, eina fyrirtækið sem kaupir blóðið. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson....more8minPlay
February 26, 2024Staða Alberts eftir ákvörðun héraðssaksóknara og vopnahlésvon á GazaHéraðssaksóknari felldi á fimmtudag niður mál Alberts Guðmundssonar. Þýðir það að hann komi til greina í landsliðshóp Íslands fyrir umspilsleikinn gegn Ísrael? Það hefur kviknað von um að hægt sé að koma á vopnahléi á Gaza? Hvernig yrði það? Magnús Geir Eyjólfsson og Ólöf Ragnarsdóttir segja frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson....more7minPlay
February 23, 2024Flóknar umræður framundan um útlendingamálin á AlþingiRíkisstjórnin segist hafa náð samstöðu um aðgerðir í útlendingamálum en framundan eru flóknar umræður um málaflokkinn. Hverjum finnst hvað og hvers vegna? Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir reynir að svara þessum spurningum. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson....more8minPlay
FAQs about Sjö mínútur með fréttastofu RÚV:How many episodes does Sjö mínútur með fréttastofu RÚV have?The podcast currently has 64 episodes available.