Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Fréttastofa RÚV kryfur augnablikið á 7 mínútum alla mánudaga, miðvikudaga og föstudaga.Umsjón: Freyr Gígja Gunnarsson.... more
FAQs about Sjö mínútur með fréttastofu RÚV:How many episodes does Sjö mínútur með fréttastofu RÚV have?The podcast currently has 64 episodes available.
January 29, 2024Ísland frystir neyðaraðstoð og flóknir búferlaflutningarAlþjóðadómstóllinn í Haag sagði að auðvelda yrði íbúum Gaza að fá neyðaraðstoð. Á sama tíma frystu nokkur ríki peninga sem áttu að renna til Palestínuaðstoðar Sameinuðu þjóðanna eftir að grunur vaknaði að nokkrir starfsmenn hennar hefðu aðstoðað við hryðjuverkaárás Hamas. Og einir flóknustu búferlaflutningar í sögu Íslands hefjast á morgun. Andri Yrkill Valsson og Brynjólfur Þór Guðmundsson segja frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson....more8minPlay
January 26, 2024Jarðhræringar sem halda takti og íbúar sem bíða eftir lausnEf ekkert breytist næstu daga gætu íbúar Grindavíkur fengið að vitja eigna sinna í fyrsta skipti síðan gossprunga opnaðist við bæjarmörkin og hraun rann inn í bæinn. En hvernig er staðan í bænum, sprungunum sem þar hafa myndast og landrisinu við Svartsengi? Benedikt Sigurðsson og Alma Ómarsdóttir segja frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson....more7minPlay
January 24, 2024Gaza og Söngvakeppnin og þau sem Óskarinn hunsaðiStríðsrekstur Ísraela heldur áfram á Gaza og hungursneyð vofir yfir hálfri milljón íbúa. RÚV hefur skipt um stefnu varðandi Eurovision og ætlar að leyfa sigurvegara Söngvakeppninnar að ráða. Og svo eru það Margot Robbie og Leonardo DiCaprio sem hafa leikið hjón og fengu hvorug tilnefningu til Óskarsverðlauna. Dagný Hulda Erlendsdóttir, Andri Yrkill Valsson og Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir segja frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson. ATH: Næsti þáttur er á föstudag en ekki miðvikudag eins og umsjónamaður segir í afkynningu....more8minPlay
January 22, 2024Facebook-færsla Bjarna og vantrauststillaga Ingu SælandUtanríkisráðherra skrifaði færslu á Facebook sem vakið hefur mikla athygli. Voru einhver dulin skilaboð í færslunni og hvað verður um vantrauststillögu Ingu Sæland? Alma Ómarsdóttir og Magnús Geir Eyjólfsson setja sig í stellingar fyrir þing sem gæti hafist með hvelli. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson...more8minPlay
January 19, 2024Grindavík ekki afskrifuð og óhugnanlegt morðmál þingfestGrindavík er stærsta verkefni ríkisstjórnarinnar þessa dagana og fátt annað komist að hjá henni. Í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag verður þingfest óhugnanlegt morðmál. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir og Stígur Helgason segja frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson....more7minPlay
January 17, 2024Grindavík illa leikin af náttúruöflunumÞað er hætt að gjósa við Grindavík en það sér ekki fyrir endann á jarðhræringunum. Benedikt Sigurðsson fór til Grindavíkur þegar byrjaði að gjósa og segir frá upplifun sinni. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson...more8minPlay
January 15, 2024Þegar ein versta sviðsmyndin rættist í GrindavíkÍ gær rættist ein versta sviðsmynd vísindamanna þegar gossprungur opnuðust nærri Grindavík. Ingunn Lára Kristjánsdóttir og Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir segja frá sólarhring sem gleymist seint. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson....more7minPlay
January 12, 2024Taugarnar þandar fyrir fyrsta leikinn á EM í handboltaHvað fer í gegnum kollinn á leikmönnum fyrir fyrsta leik á stórmóti? Af hverju er leikur Íslands í dag einn sá erfiðasti í riðlinum? Ásgeir Örn Hallgrímsson og Kári Kristján Kristjánsson, sérfræðingar EM-stofunnar, fara yfir það sem er framundan á EM í handbolta. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson....more8minPlay
January 10, 2024Fíflið, prinsinn og kóngurinnKynnir Golden Globe skráði sig á spjöld sögunnar, Andrés prins fær líklega ekki að snúa heim en Friðrik heimsækir móður sína sem krónprins og gengur þaðan út sem kóngur. Ingunn Lára Kristjánsdóttir og Birta Björnsdóttir segja frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson...more7minPlay
January 08, 2024Pattstaða forsætisráðherraUmboðsmaður Alþingis komst að þeirri niðurstöðu á föstudag um að matvælaráðherra hefði ekki farið að lögum þegar hún stöðvaði hvalveiðar. Hún ætlar ekki að segja af sér. Benedikt Sigurðsson, fréttamaður fer yfir stöðuna. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson....more8minPlay
FAQs about Sjö mínútur með fréttastofu RÚV:How many episodes does Sjö mínútur með fréttastofu RÚV have?The podcast currently has 64 episodes available.