Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Fréttastofa RÚV kryfur augnablikið á 7 mínútum alla mánudaga, miðvikudaga og föstudaga.Umsjón: Freyr Gígja Gunnarsson.... more
FAQs about Sjö mínútur með fréttastofu RÚV:How many episodes does Sjö mínútur með fréttastofu RÚV have?The podcast currently has 64 episodes available.
February 21, 2024Læknirinn sem segist vera að bjarga fíklumÁrni Tómas Ragnarsson segist vera læknir af gamla skólanum. Hann hefur verið sviptur starfsleyfi sínu að hluta eftir að hafa ávísað morfinlyf til hóps fíkla. Í dag er væntanleg ný þáttaröð Péturs Magnússonar um Árna Tómas, skaðaminnkunarúrræði og af hverju landlæknir svipti hann starfsleyfinu sínu að hluta. Pétur segir frá en umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson....more8minPlay
February 19, 2024Fyrrverandi formenn verja Kristrúnu og sárir Grindvíkingar í röðKristrún Frostadóttir fór í viðtal við hlaðvarpsþátt og upplýsti hver stefna flokksins væri í útlendingamálum. Tveir formenn Samfylkingarinnar sáu ástæðu til að koma henni til varnar. Af hverju? Grindvíkingar eru sárir og spyrja; hvers vegna fær Bláa lónið að hafa opið en ekki önnur fyrirtæki? Magnús Geir Eyjólfsson og Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir segja frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson....more8minPlay
February 16, 2024Leitin að Jóni Þresti og ofbeldi danskra barnaÍ fimm ár hefur fjölskylda Jóns Þrastar Jónssonar barist fyrir því að halda máli hans opnu eftir að hann hvarf í Dyflinni. Til tíðinda dró fyrir viku þegar greint var frá tveimur nafnlausum bréfum og í vikunni var svæði girt af í almenningsgarði. En hvað gerist í dag? Ein af mest lesnu fréttunum á ruv.is í vikunni var frá Danmörku þar sem greint var frá ofbeldi barna í garð annarra barna í grunnskóla. Viðbrögð skólastjórnenda hafa verið harðlega gagnrýnd. Bjarni Pétur Jónsson og Róbert Jóhannsson segja frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson...more8minPlay
February 14, 2024Fjölskyldusameining sem reyndi á þolrif ríkisstjórnarflokkannaÞrír starfsmenn á vegum utanríkisráðuneytisins eru komnir til Kaíró til að reyna greiða leið þeirra Palestínumanna á Gaza sem eiga rétt á dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar. Utanríkisráðherra segist trúa því að ferðin skili einhverjum árangri. Málið hefur samt reynt á þolrif ríkisstjórnarflokkanna. Höskuldur Kári Schram segir frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson....more8minPlay
February 12, 2024Farið að bera á gremju á Suðurnesjum vegna heitavatnsleysisÍbúar Suðurnesja hafa mátt búa við heitavatnsleysi og skert rafmagn eftir að stutt en afdrifaríkt eldgos skemmdi Njarðvíkurlögnina og ekki tókst að tengja hjáveitulögnina. Unnið er á vöktum við að búa til nýja heitavatnslögn en Suðurnesjamenn vilja vita; hverjum er þetta að kenna? Linda Blöndal segir frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson....more8minPlay
February 09, 2024Eldgos sem ógnaði heitu vatni og Ofurskál í uppbótartímaOfurskálin í bandarísku NFL-deildinni átti að vera ein í aðalhlutverki en svo byrjaði að gjósa og glóandi hraunbreiða ógnaði heita vatninu á Suðurnesjum. Því var gripið til uppbótartíma sem þau Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir, Andri Ólafsson og Fanney Birna Jónsdóttir nýttu til fulls. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson....more11minPlay
February 07, 2024Hryðjuverkamálið fyrir dóm: Var Sindra Snæ og Ísídór fúlasta alvara?Á morgun hefjast réttarhöld í einu sérkennilegasta sakamáli seinni ára; hryðjuverkamálinu. 504 dögum eftir að ríkislögreglustjóri hélt blaðamannafund og sagði íslenskt samfélag vera öruggara eftir handtöku tveggja manna koma þeir fyrir fjölskipaðan Héraðsdóm Reykjavíkur og reyna að sannfæra dóminn um að þeir séu meinleysisgrey. Ákæran er ítarleg og þar er ýmislegt sem vekur upp spurningar. Stígur Helgason segir frá en umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson....more8minPlay
February 05, 2024Eru ekki allir spenntir fyrir næstu stýrivaxtaákvörðun?Á miðvikudag kynnir peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands stýrivaxtaákvörðun sína. Af hverju skiptir það þig máli og hvaða áhrif hafa hlutir eins og kjaraviðræður og Grindavík? Magnús Geir Eyjólfsson útskýrir þetta . Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson....more7minPlay
February 02, 2024Engin vöffluilmur í Karphúsinu en kannski gos á næstu dögum og tvenn GrammyÞað er komið fjölmiðlabann í Karphúsinu og það er yfirleitt vísbending um að staðan sé viðkvæm og kjaraviðræður séu að þokast áfram. Það hefur ekkert bann verið sett á eldgos á Reykjanesskaga; það er ekki spurning hvort heldur hvenær það sjötta kemur. Og svo eru það Grammy-verðlaunin sem hvorki Haukur Holm né Ingunn Lára Kristjánsdóttir hafa unnið en Laufey og Ólafur Arnalds gætu gert það....more8minPlay
January 31, 2024Getur Eurovision orðið eitthvað annað en pólitík?Sænskir tónlistarmenn bættust í hóp þeirra sem hvetja forsvarsmenn Eurovision til að banna Ísrael frá keppni vegna stríðsreksturins á Gaza. Það flækir aðeins málið að Svíar halda keppnina í ár. Við sögu kemur líka framlag Lúxemborgar sem er ísraelsk söngkona og framlag Íra en hán vill ekki að Ísraelar fái að taka þátt. Birta Björnsdóttir segir frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson....more8minPlay
FAQs about Sjö mínútur með fréttastofu RÚV:How many episodes does Sjö mínútur með fréttastofu RÚV have?The podcast currently has 64 episodes available.