Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Í Skaparanum hittir tónlistarkonan Hildur Kristín Stefánsdóttir aðra listamenn og spjallar við þá um sköpunarferli þeirra, lífið sem listamenn og tilveruna eins og hún leggur sig.... more
FAQs about Skaparinn:How many episodes does Skaparinn have?The podcast currently has 38 episodes available.
January 07, 202012. þáttur - Elísabet Hugrún GeorgsdóttirTólfti viðmælandi Hildar í Skaparanum er Elísabet Hugrún Georgsdóttir, arkitekt. Hún útskrifaðist sem arkitekt frá Konunglegu Listaakademíunni í Kaupmannahöfn árið 2015 með áherslu á heimspeki og myndlist. Síðan hefur hún unnið hjá arkitektastofunni Design Group í Kaupmannahöfn ásamt PKDM arkitektastofunni á Íslandi. Hún keypti sér nýlega hús í miðbæ Kaupmannahafnar sem hún er nú að gera sjálf upp. Elísabet og Hildur ræða meðal annars um ábyrgðina sem er fólgin í að hanna manngert umhverfi, hvernig það var að vinna í verkefni sem fór fram mestmegnis á rússnesku, hvernig henni finnst verst að vinna á milli kl 2 og 5, hvernig er að hanna hús þar sem þarf að byggja í kringum tré og meðalaldur húsa í Japan....more0minPlay
January 06, 202016. Líkið í álminumVorkvöld eitt árið 1943 voru nokkrir táningspiltar á flækingi um skóg í nágrenni borgarinnar Birmingham í Bretlandi, í leit að fugslhreiðrum. En í stað hreiðra fundu þeir beinagrind ungrar konu, sem var falin inni í holum álmi í útjaðri skógarins. Nokkru síðar birtust svo torkennilegt veggjakrot í bæjum í nágrenni skógarins og ljóst einhver vissi meira um líkið í álminum en hann lét uppi. Rannsókn lögreglu stóð í áratugi, og komu þar við sögu nornir, njósnarar og kabarettsöngvarar....more0minPlay
December 30, 201915. Dauðsfallið á SuðurskautslandinuÞað er varla nokkur staður á jörðinni afskekktari og einangraðri en Amundsen-Scott-rannsóknarstöðin á Suðurskautslandinu. Yfir heimskautaveturinn er þar stöðugt myrkur, stöðugt hvassviðri og svo mikið frost að enginn flugvél getur lent þar. Þeir vísindamenn sem þar dvelja yfir vetrartímann búa í því algerri einangrun og kolniðamyrkri mánuðum saman, og eiga sér engrar undankomu auðið. Það var eina slíka eilífa vetrarnótt sem dularfullt dauðsfall átti sér stað í Amundsen-Scott-rannsóknarstöðinni....more0minPlay
December 23, 201914. Aleppó handritiðEitt dýrmætasta fornhandrit Gyðingdómsins, sem talið er vera eitt fullkomnasta eintak af hebresku biblíunni sem til er, Aleppó-handritið, er geymt við stranga öryggisgæslu í neðanjarðarhvelfingu á þjóðminjasafni Ísraelsríkis í Jerúsalem. Handritið er kallað Aleppó-handritið því í meira en sex hundruð ár geymdu Gyðingar í sýrlensku borginni Aleppó handritið eins og sjáaldur augna sinna....more0minPlay
December 17, 201911.þáttur - Aníta HirlekarAníta Hirlekar er fatahönnuður frá Akureyri. Hún útskrifaðist árið 2014 úr mastersnámi í fatahönnun með áherslu á textíl frá hinum virta Central Saint Martins skóla í London. Hún var valinn einn af fjórum fatahönnuðum til þess að fylgjast með á London Fashion Week 2016 þar sem hún sýndi en hún hefur einnig sýnt á Paris Fashion week og hafa föt hennar birtst í virtum tímaritum á borð við Elle, i-D og fleira. Aníta og Hildur ræddu um mikilvægi þess að prófa sig áfram, muninn á að vinna frá Íslandi og erlendis, innblásturinn við það að gera umhverisvæna hönnun og hvernig Alfred Hitchcock og málningarsull getur veitt innblástur....more0minPlay
December 16, 201913. Eitraða konanKvöld eitt árið 1994 veiktust tugir starfsmanna á bráðamóttöku sjúkrahúss í Kaliforníu, fengu heiftarleg flog og misstu meðvitund í hrönnum. Veikindi þeirra virtust tengjast komu ungrar krabbameinssjúkrar konu á bráðamóttökuna fyrr um kvöldið. Grunur lék á að einhverskonar dularfullar eiturgufur hafi lagt frá konunni, en enginn botn fékkst í málið fyrr en kjarnefnafræðingar voru fengnir til rannsóknar....more0minPlay
December 10, 201910. þáttur - Einar Lövdahl GunnlaugssonEinar Lövdahl Gunnlaugsson er tíundi gestur Skaparans. Hann er textahöfundur, rithöfundur og tónlistarmaður sem hefur komið víða við. Hann vinnur sem textahöfundur á auglýsingastofu, gaf síðasta út bókina Aron um landsliðsfyrirliðann Aron Einar Gunnarsson. Hann er einnig í tónlistartvíeikinu Löv og Ljón sem gaf út sína fyrstu plötu nýlega og hefur samið lagatexta til dæmis fyrir Jón Jónsson. Einar og Hildur ræddu meðal annars um tímaritið sem Einar gaf út í grunnskóla, að skrifa í strætó, nauðsyn þess að geta talað upphátt í sköpunarferlinu og að vinna með hæfileikaríkara fólki en maður sjálfur er....more0minPlay
December 09, 201912. Morðið við refaturninnÁ köldum vetrarmorgni í janúar 1937 fannst illa útleikið lík ungrar, evrópskrar stúlku í útjaðri gömlu Peking. Rannsókn lögreglu á dauða hennar bar lítinn árangur, enda voru flestir Pekingbúar frekar með hugann við yfirvofandi innrás Japana en dularfullan dauðdaga ungrar stúlku. En faðir hennar, fyrrverandi konsúll á áttræðisaldri, gafst ekki svo auðveldlega upp....more0minPlay
December 03, 20199. þáttur - Þórunn ÁrnadóttirNíundi gestur Hildar í Skaparanum er vöruhönnuðurinn Þórunn Árnadóttir. Hún lauk námi í vöruhönnun í Listaháskóla Íslands og fór svo í mastersnám í Royal College of Arts í London og starfsnám hjá japönskum hönnuði í sömu borg. Hún starfar nú sjálfstætt sem vöruhönnuður á Ísland. Þórunn er til dæmis þekkt fyrir Pyropet kertin og Sasa klukkur. Þórunn og Hildur ræddu um hvernig hún ætlaði alltaf að vera læknir, misheppnaðar kertatilraunir, að búa til pappírsmót af hæstarétti Bretlands, að vera innblásin af tækni og hefðum og fleira....more0minPlay
December 02, 201911. Konan í ÍsdalnumÁ fallegum vetrardegi 1970 rakst maður á göngu um Ísdalinn í nágrenni Bergen á illa brunnið lík konu í fjallshlíðinni. Við eftirgrennslan lögreglu kom í ljós að mánuðina fyrir andlát sitt hafði konan ferðast vítt og breitt um Noreg og Evrópu, en notast á ferðum sínum við ótal mismunandi fölsk nöfn og fölsuð skilríki....more0minPlay
FAQs about Skaparinn:How many episodes does Skaparinn have?The podcast currently has 38 episodes available.