Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Í Skaparanum hittir tónlistarkonan Hildur Kristín Stefánsdóttir aðra listamenn og spjallar við þá um sköpunarferli þeirra, lífið sem listamenn og tilveruna eins og hún leggur sig.... more
FAQs about Skaparinn:How many episodes does Skaparinn have?The podcast currently has 38 episodes available.
November 26, 20198. þáttur - Ingi Vífill GuðmundssonÁttundi gestur Hildar í Skaparanum er fagurskriftarfrömuðurinn Ingi Vífill Guðmundsson. Hann er nemandi í grafískri hönnun í LHÍ og rekur einnig fyrirtækið Reykjavík Lettering þar sem hann heldur skriftarnámskeið og tekur einnig að sér ýmis verkefni tengd hönnun og skrift. Ingi gaf líka nýverið út bókina Skriftarbók fyrir fullorðna. Í þessum þætti ræða Ingi og Hildur um ýmsa hluti eins og stafinn D, japanska aðferð til að samtvinna núvitund og skrift, hvernig að vera leikskáld var of hægt ferli fyrir Inga, danskt uppeldi með lykkjuskrift og mikilvægi þess að æfa sig....more0minPlay
November 25, 201910. Skrímslið með 21 andlitLeðurblakan fjallar um eitt furðulegasta sakamál í sögu Japans. Í sautján mánuði, árin 1984 og 1985, hélt dularfullur óvættur sem kallaði sig Skrímslin með 21 andlit japönsku samfélagi í heljargreipum. Skrímslið svokallaða herjaði á japanskar sælgætisgerðir og matvælafyrirtæki, rændi forstjórum þeirra og kveikti í verksmiðjum, og laumaði sælgætismolum með blásýru í búðir....more0minPlay
November 19, 20197. þáttur - Björk GuðmundsdóttirBjörk Guðmundsdóttir spunaleikari og leiklistarnemi í LHÍ er sjöundi viðmælandi Skaparans. Hún hefur verið í sýningarhóp Improv Ísland spunahópsins síðustu 5 ár eftir að hafa farið á spunanámskeið 2014. Þá hafði hún bara viljað prófa eitthvað nýtt og varð hugfangin af spunanum. Nú er hún á öðru ári í leiklist í LHÍ og sýnir meðfram því spunasýningar á hverju miðvikudagskvöldi í Þjóðleikhúskjallaranum með Improv Ísland. Við ræddum um þegar hún sýndi spuna sem innihélt krabbadans fyrir fullu húsi í New York, að hafa þurft að lifa í skugga nöfnu sinnar, áhrif kvíða á spuna og svo margt fleira...more0minPlay
November 18, 20199. Morðin í HinterkaifeckÍ byrjun þriðja áratugarins, á miklum ólgutímum í Þýskalandi, fundust lík sex manna fjölskyldu á litlum bóndabæ þeirra í Bæjaralandi. Öll höfðu þau verið myrt, og það sem vakti hvað mestan óhug var að morðinginn virtist hafa setið um fjölskylduna, legið í leyni á bænum og jafnvel dvalist þar eftir að morðin voru framin....more0minPlay
November 12, 20196. þáttur - Björn Leó BrynjarssonSjötti gestur Skaparans er handritshöfundurinn og leikskáldið Björn Leó Brynjarson. Hann skrifaði handritið fyrir bíómyndina Þorsta ásamt því að skrifa verkið Stórskáldið sem var nýlega frumsýnt í Borgarleikhsúsinu. Hann var einnig valinn hirðskáld Borgarleikhússins 2017-2018. Hann er búsettur í Berlín, hefur brennandi áhuga á teknótónlist og kvikmyndum. Við ræddum um kosti og galla þess að vera skáld með athyglisbrest, hvernig hann lenti óvart í því að skrifa, hvernig hann býr líka til tónlist og finnst það vera hreinasta form listsköpunnar og hvernig hann upplifir skrif ekki sem vinnu - þótt það sé vissulega það sem hann gerir daglega....more0minPlay
November 11, 20198. Hvarf Michaels RockefellersÁrið 1961 hvarf ungur Bandaríkjamaður sportlaust langt inni í regnskógi Nýju Gíneu, á yfirráðasvæði herskárrar frumbyggjaþjóðar sem fáir Vesturlandabúar höfðu heimsótt áður. Ungi maðurinn hét Michael Rockefeller og var sonur ríkisstjóra New York og verðandi varaforseta Bandaríkjanna, og langafabarn eins ríkasta manns sögunnar....more0minPlay
November 05, 20195. þáttur - Halldór EldjárnFimmti gestur Skaparans er tónlistarmaðurinn og tölvunarfræðingurinn Halldór Eldjárn. Hann er í hljómsveitinni Sykur ásamt því að gera tónlist undir eigin nafni. Hann gaf út tvær plötur á síðustu vikum, plötuna Poco Apollo og JÁTAKK með Sykur. Hann er einnig þekktur fyrir nýstárlega blöndu af tónlist, tækni og forritun en hann hefur til dæmis unnið með Ólafi Arnalds í að hanna sjálfspilandi píanó og sjálfur spilað tónleika þar sem vélmenni spiluðu á hljóðfæri. Við ræðum meðal annars um hvernig hann safnar drasli, hvernig hann byrjaði að gera bíómyndir 8 ára, innblástur frá pabba og besta ráð sem hann hefur fengið....more0minPlay
November 04, 20197. Morðin við Bodom-vatnLeðurblakan fjallar um eitt óhugnanlegasta morðmál í sögu Finnlands, sem aldrei hefur verið leyst þrátt fyrir áralanga rannsókn. Ókunnur maður réðst þá á fjóra unglinga sem sváfu í tjaldi við Bodom-vatn, friðsælt stöðuvatn í nágrenni Helsinkis, snemma á sjöunda áratuginum. Þrír unglingar voru myrtir en sá fjórði komst með naumindum lífs af....more0minPlay
October 29, 20194. þáttur - María GuðjohnsenFjórði gestur Hildar er María Guðjohnsen grafískur- og þrívíddarhönnuður. Hún er búsett í Berlín þar sem hún fór í nám í grafískri hönnun. Á síðustu mánuðum hefur hún fært sig meira yfir í þrívíddarhönnun og segir okkur frá því áhugaverða starfi. Hún segir okkur frá sýningu sem varð til út frá skrýtnum leigubílstjórum, samstarfi við Adidas, hvernig hún les alltaf bara fyrsta kaflann í bók og hvernig hún skrifar niður fullt af nafnorðum til þess að fá nýjar hugmyndir....more0minPlay
October 28, 20196. þáttur - Bókaþjófurinn í StokkhólmiÁrið 2003 komst upp um ótrúlegan bókaþjófnað frá Konunglega-bókasafninu í Stokkhólmi. En atburðarásinni var ekki lokið þar, því fyrst átti eftir að verða dauðsfall....more0minPlay
FAQs about Skaparinn:How many episodes does Skaparinn have?The podcast currently has 38 episodes available.