Sögur af landi

Sögur af landi

By RÚV
Download on the App Store

Sögur af landi episodes

  • Lok
    Fyrr eða síðar kemur að lokum. Það er sama um hvað ræðir. Endalok lífsins, lok starfsævinnar, lok ferðalagsins eða sundferðarinnar. Lokin eru umfjöllunarefni þessa þáttar og í honum ræða dagskrárgerðarmenn við fólk um ýmiskonar lok. Innslög unnu Ágúst Ólafsson, Dagur Gunnarsson og Þórgunnur Oddsdóttir.
    Umsjón Dagur Gunnarsson.
    50 min
  • Skynjun
    Það er mismunandi hvernig við skynjum heiminn. Til þess notum við skynfæri en oft er himinn og haf milli þess sem fólk skynjar. Þema þessa þáttar er skynjun, við tölum við fólk sem skynjar meira og fólk sem skynjar minna en miðlungs manneskjan. Við tölum einnig við listakonu sem hefur rannsakað skynjanir okkar og það takmarkaða svið sem mannskepnan skynjar af öllu því sem í boði er í alheiminum. Innslög unnu Dagur Gunnarsson, Jón Þór Kristjánsson og Þórgunnur Oddsdóttir.
    Umsjón: Dagur Gunnarsson
    50 min
  • Veður
    Í þessum þætti munum við fjalla um eitt af uppáhaldsumræðuefnum fólks um allan heim, nefnilega veðrið. Við munum heyra sýn ungs fólks á loftslagsmál, rifjum upp slæmt veður, skreppum í heimsókn til Veðurklúbbsins á Dalvík og tökum vegfarendur á Akureyri tali. Efni í þáttinn unnu Gígja Hólmgeirsdóttir, Úlla Árdal og Birgir Þór Harðarson. Umsjónarmaður: Gígja Hólmgeirsdóttir
    50 min
  • Ferðalag
    Við leggjum af stað í ferðalag um tilveru okkar í þessum þætti. Efni í þáttinn unnu Gígja Hólmgeirsdóttir, Rúnar Snær Reynisson og Þórgunnur Oddsdóttir. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
    50 min
  • Hæ, hó, jibbí, jei
    Sjálfstæðishetjan Jón Sigurðsson, fornt handbragð á nýjum tímum og hefðir norðlenskra stúdenta verða til umfjöllunar að þessu sinni. Efni í þáttinn unnu Gígja Hólmgeirsdóttir, Úlla Árdal og Jón Þór Kristjánsson. Umsjónarmaður: Gígja Hólmgeirsdóttir
    50 min
  • Fuglar
    Í þessum þætti munum við líta til himins og sækja innblástur í fugla landsins. Efni í þáttinn unnu Gígja Hólmgeirsdóttir, Halla Ólafsdóttir og Ágúst Ólafsson.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
    50 min
  • Sjómenn
    Í tilefni sjómannadagsins verða sjómenn og sjómennskan til umfjöllunar í þessum þætti. Efni í þáttinn unnu Gígja Hólmgeirsdóttir, Halla Ólafsdóttir og Þórgunnur Oddsdóttir.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    50 min
  • Heilbrigði
    Þemað í þessum þætti er heilbrigði. Geðheilsa jafnt sem líkamleg heilsa er viðfangsefni þáttarins að þessu sinni. Efni í þáttinn unnu Dagur Gunnarsson, Gígja Hólmgeirsdóttir og Jón Þór Kristjánsson.
    Umsjón: Dagur Gunnarsson
    50 min
  • Afmæli
    Allir eiga afmæli um það bil einu sinni á ári og því ber að fagna. Við rannsökum nokkur afmæli í Íslandssögunni í þessum þætti. Afmæli löglegrar bjórsölu og ýmissa afmæla í bæði flug- og siglingasögu á Íslandi. Innslög unnu Dagur Gunnarsson, Halla Ólafsdóttir og Úlla Árdal.
    Umsjón: Dagur Gunnarsson
    50 min
  • Strengir
    Menn deila um langa strengi til annarra landa. Í Sögum af landi eru engar deilur, við skoðum hins vegar strengi, strengi í slaghörpu, strengi sem draga net og strengi sem liggja víða um netheima. Innslög í þáttinn unnu Dagur Gunnarsson, Gígja Hólmgeirsdóttir og Rúnar Snær Reynisson.
    Umsjón: Dagur Gunnarsson
    50 min

About Sögur af landi

From the publisher's feed

Landsbyggðin, höfuðborgin og allt þar á milli.