Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Í safnvarpinu Sögur úr raunveruleikanum leita dagskrárgerðarmenn uppi sannar sögur úr íslenskum samtíma. Hosted on Acast. See acast.com... more
FAQs about Sögur úr raunveruleikanum:How many episodes does Sögur úr raunveruleikanum have?The podcast currently has 12 episodes available.
May 25, 2026Álögin á VatnsendaÁratugum saman hefur Hjaltested-ættin tekist á um hver eigi og megi búa á hinni flennistóru Vatnsendajörð sem umlykur Elliðaárvatn í Kópavogi. Hatrammar deilur hafa sprottið upp vegna umdeildrar erfðaskrár sem eigandi jarðarinnar gerði 1938. Erfðaskráin færði útvöldum ómæld auðæfi en lagði líka á þá kvaðir sem verður sífellt erfiðara að framfylgja. Enn í dag ræður 90 ára erfðaskrá för á framtíðar byggingarlandi höfuðborgarsvæðisins og þvingar rúmlega tvítugan erfingja til að stunda búskap inni í byggð. Dagskrárgerð: Þóra Tómasdóttir Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information....more39minPlay
May 06, 2026Hilmar Veigar um Elon Musk og Demis HassibisÞegar Elon Musk skrifaði á samfélagsmiðilinn X að hann ætti í viðræðum við skapara Eve Online um samvinnu að gervigreindartölvuleik, þá óskaði RÚV eftir viðtali við Hilmar Veigar Pétursson, einn stofnenda leiksins. Þegar Hilmar var loks tilbúinn í viðtal kom hann með allt aðra og óvænta sögu. Í þessum þætti segir Hilmar Veigar frá því sem gerðist bak við tjöldin áður en fyrirtækið sem hann stýrir var selt fyrir 15 milljarða króna. Hann segir frá óvenjulegum samskiptum sínum við Elon Musk, en líka við aðra og ekki síður lítríka einstaklinga úr hópi fremstu tæknifrömuða heims. Meðal annars, nóbelsverðlaunahafa í efnafræði, Demis Hassabis. Umsjón: Þóra Tómasdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information....more53minPlay
May 05, 2026Kveikur: „Plain“ konur eins og égÍ dag heyrum við frásögn konu sem tók þá afdrifaríku en sjálfstæðu ákvörðun að selja aðgang að líkama sínum. Um 20 ár eru liðin. Þó tími hennar í vændi hafi aðeins varað um sex mánaða skeið hefur hann markað líf hennar allar götur síðan. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information....more29minPlay
April 27, 2026Fjölskyldan á Edition-hótelinuÞrítug kona og karlmaður á sextugsaldri fundust látin á Edition-hótelinu í Reykjavík í júní 2025. Móðir konunnar og eiginkona mannsins sagði lögreglu að fjölskyldan hafi komið til Íslands gagngert til þess að svipta sig lífi.Þóra Tómasdóttir rekur atburðarásina og sögu fjölskyldunnar. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information....more38minPlay
April 14, 2026Að deyja í einsemdÞegar fólk deyr í heimahúsi eða bara einhvers staðar annars staðar en á sjúkrahúsi þá er tæknideild lögreglunnar kölluð á vettvang. Tæknideildin kannar hvort andlátið hafi borið að með náttúrulegum hætti. Einstaka sinnum gerist það að tæknideildin mætir á vettvang þar sem lík hefur legið lengi. Slíkt gerist sem betur fer sjaldan en árið 2025 fannst lögreglumönnum eins og það væri einhver breyting þar á. Þeir töldu sig koma að fleiri einstæðingum en áður. Rætt er við lögreglumennina Guðmund Þ. Tómasson og Ragnar Jónsson. Við heimsækjum Ingvar Stefánsson og Helenu Björk Magnúsdóttur hjá Kirkjugörðum Reykjavíkur og Emilíu Jónsdóttur félagsráðgjafa hjá Útfararstofu kirkjugarðanna. Umsjón: Þóra Tómasdóttir Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information....more42minPlay
April 03, 2026Krossfest: Föstudagurinn langiÁ föstudaginn langa 2025 ferðaðist Sigyn Blöndal til San Fernando á Filippseyjum. Bærinn er þekktastur fyrir það að á föstudaginn langa ganga hundruðir manna um götur bæjarins í húðstrýkingum en þar hefur einnig Ruben Enaje látið krossfesta sig síðan 1986. Hann er á leiðinni á krossinn í 36. sinn og Sigyn fær tækifæri til að hanga með þeim krossfesta - ekki á krossinum heldur spjölluðu þau saman undir skugga mangótrjáa, innan um Maríulíkneski og krossinn sjálfan. Við ferðumst saman á staðinn, heyrum af upplifun þeirra sem voru á staðnum og reynum að fá svar við spurningunni, af hverju? Viðmælendur: Ruben Enaje Prófessor Xiao Chua Pétur Guðmann GuðmannssonHugo GoodsonMichael Magee Lestur: Ruben Enaje: Björn Þór SigbjörnssonXiao Chua: Hafsteinn VilhelmssonHugo Goodson: Jóhannes ÓlafssonMichael Magee: Atli Már SteinarssonDagskrárgerð, framleiðsla og hljóðvinnsla: Sigyn Blöndal Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information....more52minPlay
April 02, 2026Krossfest: SkírdagurÞað kannast flestir Íslendingar við árlegu fréttina á föstudaginn langa um krossfestingar á Filippseyjum. Við horfum og afgreiðum sem galið, sem klikkað - eitthvað sem við myndum aldrei gera. En hvað býr að baki? Hvað gerist þegar við spyrjum af hverju? Hvernig gerist það að karlmenn á Filippseyjum ganga um götur í húðstrýkingum og láta jafnvel krossfesta sig á föstudaginn langa. Sigyn Blöndal var á Filippseyjum um páskana 2025 og kynnti sér málið sem er hægt að skoða frá mörgum hliðum. Í þessum fyrri þætti ferðumst við um götur Manila á skírdag 2025 og hittum bæjarbúa sem syngja um píslargöngu krists og fylgjumst með krossfestingaræfingu. Viðmælendur: Prófessor Xiao Chua Marj EinarssonRuben Enaje Lestur: Xiao Chua: Hafsteinn VilhelmssonMarj Einarsson: Ástrós Signýjardóttir Dagskrárgerð, framleiðsla og hljóðvinnsla: Sigyn Blöndal Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information....more50minPlay
March 22, 2026Eftir að allt varð svartÞrír létust þegar lítil flugvél brotlenti við Sauðahnjúka á Austurlandi sumarið 2023. Um borð í vélinni voru náttúruvísindamennirnir Skarphéðinn Þórisson og Fríða Jóhannesdóttir auk flugmannsins Kristjáns Orra Magnússonar.Í þættinum er athyglinni beint að þeirri einstöku þekkingu á hreindýrum og náttúru sem fórst með flugvélinni. Þóra Tómasdóttir og Gígja Hólmgeirsdóttir ræddu við samferðafólk vísindamannanna ári eftir flugslysið.Tónlist: Johan Söderqvist og Shingeru UmbayashiDagskrárgerð: Þóra Tómasdóttir Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information....more45minPlay
March 02, 2026Vítahringur Margrétar Löf - 2. þátturLangur aðdragandi var að því að Margrét Halla Hansdóttir Löf var dæmd fyrir að bana föður sínum í Súlunesi í apríl 2025. Við meðferð málsins fyrir Héraðsdómi Reykjaness teiknaðist upp djúpstæður fjölskylduvandi sem varð sífellt óviðráðanlegri. Vandi sem virtist hverfast um andlegt ástand Margrétar.Í þessum þætti segir hálfbróðir Margrétar Löf frá sinni upplifun af fjölskyldulífinu. Rætt er við lögmann Margrétar, Sigurð G. Guðjónsson, lögfræðiprófessorinn Hafstein Dan og hestamanninn Sigurbjörn Bárðarson. Umsjón: Þóra TómasdóttirTæknimaður: Markús Hjaltason Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information....more48minPlay
February 23, 2026Vítahringur Margrétar Löf - 1. þátturLangur aðdragandi var að því að Margrét Halla Hansdóttir Löf var dæmd fyrir að bana föður sínum í Súlunesi í apríl 2025. Við meðferð málsins fyrir Héraðsdómi Reykjaness teiknaðist upp djúpstæður fjölskylduvandi sem varð sífellt óviðráðanlegri. Vandi sem virtist hverfast um andlegt ástand Margrétar. Í þáttunum er rætt við Margréti, samferðafólk hennar og verjanda. Umsjón: Þóra TómasdóttirTæknimaður: Mark Eldred Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information....more57minPlay
FAQs about Sögur úr raunveruleikanum:How many episodes does Sögur úr raunveruleikanum have?The podcast currently has 12 episodes available.