
Sign up to save your podcasts
Or


By RÚV Hlaðvörp
Hosted on Acast. See acast.com
... moreThe podcast currently has 15 episodes available.
The most played episodes among Podcast App listeners.

Í þessum þætti færum við okkur inn í nútímann og skoðum hvað tvær yngstu kynslóðir Vatnsendaerfingja hafa þurft að glíma við. Því það er eins og það verði sífellt erfiðara að bera ábyrgð á þessu verðmæta landi. Kvaðirnar og málaferlin hafa stundum yfirskyggt kostina við arfinn. Hinn 23 ára gamli Magnús Pétur er nú orðinn þungamiðja í flóknum málaferlum og þarf að stunda búskap í miðri byggð í Kópavogi til að missa ekki jörðina frá sér. Við sögu koma Þórður Bragason vinur Þorsteins Hjaltested, Vilborg Hjaltested systir Þorsteins, Víðir Smári Petersen prófessor í eignarrétti, Guðjón Ármannsson fyrrum lögmaður Kópavogsbæjar, Pálmi Þór Másson bæjarritari Kópavogs og Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri. Dagskrárgerð: Þóra Tómasdóttir Hljóðblöndun: Kormákur Marðarson Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Fyrir síðustu aldamót fóru bæði Kópavogur og Reykjavík að ásælast Vatnsendajörðina. Erfingjar jarðarinnar urðu þá óvænt lykilviðsemjendur stjórnmálamanna sem vildu reisa þar fjölmenna byggð. 90 ára gömul erfðaskrá kom hins vegar í veg fyrir að hægt væri að selja jörðina. Gunnar Birgisson, þáverandi bæjarstjóri í Kópavogi, ákvað að höggva á hnútinn með umdeildum samningi við Vatnsendaerfingjann. Í þessum þætti er fjallað um tímabilið sem fjölmenn byggð reis á Vatnsenda og átökin sem urðu á bæjarskrifstofum Kópavogs, í Hjaltested-ættinni og dómsölum landsins. Við sögu koma meðal annars Guðjón Ármannsson, Víðir Smári Petersen, Guðríður Eldey Arnardóttir, Ármann Kr. Ólafsson, Gunnar Birgisson, Ásgeir Þór Davíðsson, Magnús Hjaltested, Þorsteinn Hjaltested, Magnús Pétur Hjaltested og Kristrún Ólöf Jónsdóttir. Dagskrárgerð: Þóra Tómasdóttir Tónlist: Atli Örvarsson (Úr kvikmyndinni Hrútum) Hljóðblöndun: Markús Hjaltason Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Áratugum saman hefur Hjaltested-ættin tekist á um hver eigi og megi búa á hinni flennistóru Vatnsendajörð sem umlykur Elliðaárvatn í Kópavogi. Hatrammar deilur hafa sprottið upp vegna umdeildrar erfðaskrár sem eigandi jarðarinnar gerði 1938. Erfðaskráin færði útvöldum ómæld auðæfi en lagði líka á þá kvaðir sem verður sífellt erfiðara að framfylgja. Enn í dag ræður 90 ára erfðaskrá för á framtíðar byggingarlandi höfuðborgarsvæðisins og þvingar rúmlega tvítugan erfingja til að stunda búskap inni í byggð. Dagskrárgerð: Þóra Tómasdóttir Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Þegar Elon Musk skrifaði á samfélagsmiðilinn X að hann ætti í viðræðum við skapara Eve Online um samvinnu að gervigreindartölvuleik, þá óskaði RÚV eftir viðtali við Hilmar Veigar Pétursson, einn stofnenda leiksins. Þegar Hilmar var loks tilbúinn í viðtal kom hann með allt aðra og óvænta sögu. Í þessum þætti segir Hilmar Veigar frá því sem gerðist bak við tjöldin áður en fyrirtækið sem hann stýrir var selt fyrir 15 milljarða króna. Hann segir frá óvenjulegum samskiptum sínum við Elon Musk, en líka við aðra og ekki síður lítríka einstaklinga úr hópi fremstu tæknifrömuða heims. Meðal annars, nóbelsverðlaunahafa í efnafræði, Demis Hassabis. Umsjón: Þóra Tómasdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Í dag heyrum við frásögn konu sem tók þá afdrifaríku en sjálfstæðu ákvörðun að selja aðgang að líkama sínum. Um 20 ár eru liðin. Þó tími hennar í vændi hafi aðeins varað um sex mánaða skeið hefur hann markað líf hennar allar götur síðan. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
The podcast currently has 15 episodes available.