Stéttir Landsins

Stéttir Landsins

By StéttarfélagiðBusinessEducationCareers
Download on the App Store

Stéttir Landsins episodes

  • Sería 2 - Litið yfir farinn veg

    Í vetur höfum við fengið 16 starfsstéttir í heimsókn til okkar, allt frá sóknarprests til stjörnuspekings. 

    Við félagarnir fengum okkur uppáhelling og fórum yfir seríuna, hringdum meðal annars í bókasafnsfræðing til að heyra hvað væri að frétta úr bókasöfnum landsins. Slóum einnig stuttlega á þráðinn til hlustenda til að fá hugmyndir fyrir næstu seríu.

    Við þökkum styrktar- og samstarfsaðilum kærlega fyrir stuðninginn í vetur. Við mætum sprækir til baka að nýju eftir sumarfrí. Það er alltaf hægt að gauka að okkur fyrirspurnum á Instagram (@stettirlandsins) eða á netfangið [email protected].

    Takk fyrir okkur - Hinrik og Óli.

    22 min
  • #33 - Réttarmeinafræðingur - Pétur Guðmann Guðmannsson

    Réttarmeinafræðingurinn Pétur Guðmannsson hefur um árabil verið eini réttarlæknir landsins í fullu starfi. 

    Í þætti vikunnar köfum við dýpra í eitt sérstæðasta starf landsins og spyrjum stóru spurningarinnar: hvernig er að vinna við það að kryfja lík?

    Spjallið leiðir okkur víða. Við ræðum meðal annars hvernig dánartími er metinn, hvað gerist í líkamanum þegar við tökum okkar hinsta andardrátt, nálykt, samstarf við lögreglu, rannsóknarskýrslur og þau óútskýrðu dauðsföll sem koma upp á Íslandi.

    Samstarfsaðilar þáttarins: 
    🔍Alfreð -⚕️Sjúkraliðafélag Íslands - 🎓Endurmenntun HÍ
    --- 

    🎵Elephant - Tame Impala
    🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs 

    56 min
  • #32 - Afbrotafræðingur - Margrét Valdimarsdóttir

    Afbrotafræðingurinn Margrét Valdimarsdóttir sýndi okkur miskunn þegar við viðurkenndum nýlegar stöðumælasektir og við fórum yfir sviðið með henni í klukkustund eða svo.

    Við fórum um víðan völl: afglæpavæðingu fíkniefna, innflytjendamál og þróun glæpa á Íslandi og á Norðurlöndum, vopnaburð ungmenna, áhrif CSI á hennar feril, hvað einkennir svæði með háa glæpatíðni og að sjálfsögðu sjálft fagið og námið.

    Góðar stundir!

    Samstarfsaðilar þáttarins: 
    🔍Alfreð -⚕️Sjúkraliðafélag Íslands - 🎓Endurmenntun HÍ
    --- 

    🎵Elephant - Tame Impala
    🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs 


    1 hr 4 min
  • #31 - Dýrahjúkrunarfræðingur - Eva Rún Freygerðard. Árnadóttir

    Dýrahjúkrunarfræðingurinn Eva Rún er sannarlega öflugur talsmaður gæludýra landsmanna og talaði þeirra máli í þætti vikunnar.

    Við fórum víða um sviðið og ræddum meðal annars lífstílssjúkdóma dýra, umræðuhópa á samfélagsmiðlum, gullfiskaæðið í upphafi 21. aldar, samband dýrahjúkrunarfræðinga og dýra, hetjuleg augnablik á skurðstofunni, smitsjúkdóma tengda leðurblökum og hundaæði.

    Að sjálfsögðu fórum við einnig yfir það góða starf sem unnið er á dýraspítölum um allt land, hvernig dæmigerður dagur lítur út og hver helstu verkefnin eru frá morgni til kvölds.

    Samstarfsaðilar þáttarins: 
    🔍Alfreð &⚕️Sjúkraliðafélag Íslands
    --- 

    🎵Elephant - Tame Impala
    🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs 

    59 min
  • #30 - Þingmaður - Sigmar Guðmundsson

    Alþingismaðurinn alþýðlegi, Sigmar Guðmundsson, tók sér hlé frá þingstörfum og kíkti í uppáhelling til okkar.

    Fyrst og fremst brann á okkur sú spurning hvort þetta væri raun og veru skemmtilegt starf. Hversu gíraður þarftu að vera í kosningaframboði, hjá hverjum maður situr í mötuneyti Alþingis, sitja undir málþófi korter í sumarfrí og hvort það sé hægt að hafa skoðanir á öllu.

    Síðan var snert á alþjóðamálum, ESB og NATO. Þjóðlegar og hressandi umræður.

    Samstarfsaðilar þáttarins: 
    🔍Alfreð &⚕️Sjúkraliðafélag Íslands
    --- 

    📷 @sigmarg
    🎵Elephant - Tame Impala
    🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs 

    1 hr 9 min
  • #29 - Sjúkraliði - Elísa Finnsdóttir & Saga Ólafsdóttir

    Sjúkraliðarnir síkátu, Elísa Finnsdóttir og Saga Ólafsdóttir, gáfu okkur innsýn í starf og umhverfi sjúkraliða á Íslandi.

    Sjúkraliðar ganga með marga hatta innan heilbrigðiskerfisins og var komið víða við. Félagslíf og virkni eldri borgara var í brennidepli, opnar skurðaðgerðir, heldri menn með mótþróa, samskipti við skjólstæðinga, boccia, hvernig á að taka á því þegar einstaklingar eru á síðustu metrunum, og meðferðargeitur í Eyjafjarðarsveit.

    Sannarlega augu og eyru heilbrigðiskerfisins! Kynntu þér málið hjá Sjúkraliðafélagi Íslands á slfi.is

     Samstarfsaðilar þáttarins: 
    🔍Alfreð &⚕️Sjúkraliðafélag Íslands
    --- 
    🎵Elephant - Tame Impala
    🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs 

    51 min
  • #28 - Fornleifafræðingur - Hildur Gestsdóttir

    Fornleifafræðingurinn Hildur Gestsdóttir lagði múrskeiðina til hliðar og spjallaði við okkur. Það var farið aftur til fortíðar og meðal annars rætt um mannabeinarannsóknir en Hildur sérhæfir sig í þeirri áhugaverðu undirgrein fornleifafræðarinnar.

    Það var rætt m.a. um merka uppgrefti, tæki og tól fornleifafræðinga, umhverfi fornleifafræðinga á Íslandi, gömul sverð, myntasöfnun, fallega bæjarhóla, og fornleifauppgröft framtíðarinnar (rafsígarettur og annað eins). 

    Samstarfsaðili þáttarins: 
    🔍Alfreð & Giggó 

    ---

    📷@beinakerling
    🎵Elephant - Tame Impala
    🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs 

    55 min
  • #27 - Íþróttafréttamaður - Jóhann Páll Ástvaldsson

    Íþróttafréttamaðurinn Jóhann Páll Ástvaldsson er iðulega staðsettur í Efstaleiti hjá Ríkisútvarpi allra landsmanna. Hann leit við hjá okkur í spjall og fór yfir landslagið í sportinu. 

    Handboltinn tröllríður umræðunni í dag og við fórum aðeins yfir stöðu handboltans á alþjóðavísu og fyrirkomulag stórmóta. 

    Auðvitað var ekki hægt að tala um íþróttir án þess að ræða uppgang krullunnar, en einnig var komið inn á friðarverðlaun FIFA og HM 2026, klisjur í viðtölum, íþróttaskandala, aukið fjármagn í íslenska fótboltanum og Evrópuævintýri.

    Alltaf í boltanum (og krullunni)! 🥌

    Samstarfsaðili þáttarins: 
    🔍Alfreð & Giggó & ✈️ Isavia ANS

    ---

    📷@joiastvalds
    🎵Elephant - Tame Impala
    🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs 

    56 min
  • #26 - Flugumferðarstjóri - Diljá Mjöll Kolár Hreiðarsdóttir

    Flugumferðarstjórinn Diljá Mjöll steig úr flugturninum og leit við til okkar í stúdíóið. 

    Við ræddum námið hjá Isavia og hið daglega starf flugumferðarstjóra, allt frá samskiptum, ákvarðanatöku og öllu sem starfinu fylgir. 

    Einnig bar á góma flugvélalingóið, óvænt atvik í háloftunum, áhrif veðurfars, flugvöllinn á Gjögur, mikilvægi rýmisgreindar í starfi flugumferðarstjóra, listflug í steggjunum og ferlið sem fer í gang ef til flugslyss kemur.

    Í janúar er opið fyrir umsóknir í nám í flugumferðarstjórn ➡️ isavia.is

    Samstarfsaðili þáttarins: 
    🔍Alfreð & Giggó & ✈️ Isavia 
    --- 
    🎵Elephant - Tame Impala
    🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs 

    55 min
  • #25 - Fangavörður - Heiðar Smith

    Fangavörðurinn Heiðar Smith fór yfir stöðuna í fangelsismálum á Íslandi, starf fangavarða og hið daglega líf innan veggja fangelsanna. Heiðar starfar í fangelsinu á Hólmsheiði og er jafnframt formaður Félags fangavarða.

    Í spjallinu var farið yfir þær fjölmörgu áskoranir sem fangelsisyfirvöld standa frammi fyrir í nútímasamfélagi. Að vanda var farið um víðan völl og einnig komið inn á stigskiptingu afplánunar, félagsstarf fanga, samneyti fanga og fangavarða, Fangavarðaskólann, Stóra-Hraun og margt fleira sem mótar fangelsiskerfið á Íslandi í dag.

    Stéttir Landsins fagnar eins árs afmæli og er einstaklega viðeigandi að halda upp á það með því að gægjast inn fyrir dyr fangelsanna á Íslandi.

    Samstarfsaðili þáttarins: 
    🔍Alfreð & Giggó 
    --- 
    📷 @heidarsmith
    🎵Elephant - Tame Impala
    🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs 

    1 hr

About Stéttir Landsins

From the publisher's feed

Hvað gera leikarar á virkum dögum? Hvernig er stemningin í vinnunni hjá útfararstjóra? Fyrir hverja er ljósmæðranám? Get ég orðið atvinnudansari eftir þrítugt? Er hagfræði hin döpru…