Stéttir Landsins

Stéttir Landsins

By StéttarfélagiðBusinessEducationCareers
Download on the App Store

Stéttir Landsins episodes

  • #24 - Stjörnuspekingur - Guðrún Bergmann

    Stjörnuspekingurinn Guðrún Bergmann er með marga hatta og einn þeirra er stjörnuspekin. 

    Nýtt ár er í vændum og því tímabært að rýna í stjörnukortin og kanna hvað þau segja um það sem fram undan er. 

    Við ræddum hvort stjörnuspeki geti nýst við að velja réttu lottótölurnar, taka skynsamlegar ákvarðanir á fasteignamarkaði og í lífi og leik.

    Guðrún dró upp persónuleg stjörnukort fyrir okkur félagana og þar kom margt áhugavert í ljós. Rísandi Venus, loftmerki, mikil sól og ýmis persónuleg einkenni.

    Ef horft er til himins þá er ljóst að það eru stórar dagsetningar á næsta ári. Út frá því skoðuðum við hvort ríkisstjórnin haldi velli og hvaða vendingar megi búast við í alþjóðlegum stjórnmálum. Samkvæmt Guðrúnu mun allt þetta skýrast með hjálp stjarnanna.

    Samstarfsaðili þáttarins: 
    🔍Alfreð & Giggó 
    --- 
    📷 @gudrun_bergmann
    🎵Elephant - Tame Impala
    🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs 

    52 min
  • #23 - Jólasveinn - Bjúgnakrækir

    Jólasveinninn gjafmildi, Bjúgnakrækir, hélt að hann væri á leið á jólaball þegar hann sparkaði upp hurðinni á stúdíóinu. Við fengum hann þó til að setjast niður með okkur á þessum háannartíma.

    Það var rætt um þennan fjölskyldubransa og mikla eftirspurn í desember, kjarasamninga jólasveina, hvort Kertasníkir væri uppfullur af sjálfum sér, og þá gagnrýni sem Gluggagægir hefur sætt undanfarin ár. 

    Bjúgnakrækir kom einnig inn á það að Grýla væri ekki jafn ógnvænleg og áður, enda komin á safakúr og hætt að borða börn. Hann sagði einnig Leppalúði væri orðinn latur og eyddi megninu af tímanum í að horfa á boltann í hellinum.

    Gleðilega hátíð! Næsti þáttur kemur 31. desember.

     Samstarfsaðili þáttarins: 
    🔍Alfreð & Giggó 
    --- 
    📷 @bjugsi
    🎵Elephant - Tame Impala
    🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs 

    24 min
  • #22 - Lýtalæknir - Þórdís Kjartansdóttir

    Lýtalæknirinn Þórdís Kjartansdóttir er alla jafna með skurðhnífinn á lofti hjá DeaMedica, en að þessu sinni settist hún niður með okkur og fór yfir þennan áhugaverða bransa. 

    Í þætti vikunnar er komið víða við, allt frá bótoxi og til Simon Cowell, andlitslyftinga, BBL, hárígræðslna, calf implants, nýjustu tískubólur og margt fleira. 

    Þórdís, sem hefur starfað sem lýtalæknir um árabil, fékk misgáfulegar spurningar frá okkur drengjunum og erum við aðeins fróðari fyrir vikið.

    Samstarfsaðili þáttarins: 
    🔍Alfreð & Giggó 
    --- 
    📷 @thordiskjartansdottir
    🎵Elephant - Tame Impala
    🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs 

    58 min
  • #21 - Tölvuleikjaframleiðandi - Halldór Snær Kristjánsson

    Tölvuleikjaframleiðandinn, Halldór Snær Kristjánsson, stofnaði Myrkur Games ásamt tveimur félögum sínum úr HR. Þó nokkrum árum síðan og talsverðri mikilli vinnu er leikurinn þeirra, Echoes of the End, loks kominn út.

    Við félagarnir vorum að vanda forvitnir um hvernig svona ferli gengur fyrir sig og Halldór fræddi okkur um það hvernig hægt er að taka bjartsýna hugmynd úr háskóla og fylgja henni eftir alla leið.

    Við ræddum ekki eingöngu leikinn sjálfan, heldur einnig leikjabransann á Íslandi, framtíðarhorfur hans, Crash Bandicoot, fjármögnun, hvernig val á leikurum fer fram í svona verkefnum og margt fleira.

     Samstarfsaðili þáttarins: 
    🔍Alfreð & Giggó 
    --- 
    📷 @halldor.kristjansson
    🎵Elephant - Tame Impala
    🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs 


    1 hr 15 min
  • #20 - Brúðkaupsplanari - Alína Vilhjálmsdóttir

    Brúðkaupsplanarinn skipulagði, Alína Vilhjálmsdóttir, gaf okkur nokkur góð ráð fyrir stóra daginn. Við fórum yfir allt litrófið í brúðkaupsplaneríi og getum sagt að við séum skrefi nær því að verða tilbúnir að ganga í það heilaga. 

    Hvernig á að tækla langar og leiðinlegar ræður, litapallettur og smekksatriði, kostnað, hversu mörgum gestum á að bjóða, furðulegar hefðir og auðvitað starfið sjálft var til umræðu í þættinum.

    Tilvalið fyrir þau sem eru brúðkaupshugleiðingum eða bara almenna rómantíkusa!

     Samstarfsaðili þáttarins: 
    🔍Alfreð & Giggó 
    --- 
    📷 @ogsmaatridin
    🎵Elephant - Tame Impala
    🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs 


    1 hr 3 min
  • #19 - Veðurfræðingur - Einar Sveinbjörnsson

    Veðurfræðingurinn vinalegi, Einar Sveinbjörnsson, kom í heimsókn og leit með okkur til veðurs eins og honum einum er lagið. 

    Veðrið er okkur hugleikið á hverjum degi og því lá ekki á spurningunum. Við fórum yfir helstu spálíkön, ræddum hvort það væri á einhvern hátt skynsamlegt að flytja höfuðborgina miðað við veðurfar, hvernig það reynir á sálartetrið að spá fyrir heilli þjóð og rýndum í helstu vindáttir og strauma.

    Við veltum einnig fyrir okkur hvar á höfuðborgarsvæðinu veðrið væri best og komu fram ýmsar skoðanir eftir því hver átti í hlut. 

    Veðrátta og viska í þætti vikunnar!

    Samstarfsaðili þáttarins: 
    🔍Alfreð & Giggó 
    --- 
    🎵Elephant - Tame Impala
    🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs 

    1 hr 4 min
  • #18 - Prestur - Guðmundur Karl Brynjarsson

    Sóknarpresturinn síungi, Guðmundur Karl Brynjarsson, hefur gengið Guðs veg síðan á tíunda áratug síðustu aldar. Guðfræðin kallaði þó ekki sterkt til hans á æskuárum og kom mörgum á óvart þegar hann gerðist prestur. 

    Gummi Kalli þjónar hjá Lindakirkju í Kópavogi og hefur getið sér góðs orðs sem sóknarprestur. Hann ræddi við okkur um ýmislegt sem tengist trúnni, meðal annars hvort það væri rými til að bæta við boðorðum, lagaval í kirkjukórum, hlutverk djákna, messuvínið og hvort kristileg gildi séu enn í hávegum höfð hjá yngri kynslóðinni.

    Fyrsti þáttur í annarri seríu. Sannarlega kræsilegur og kristilegur þáttur!

     Samstarfsaðili þáttarins: 
    🔍Alfreð & Giggó 
    --- 
    🎵Elephant - Tame Impala
    🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs 

    1 hr 2 min
  • Sería 1 - Litið yfir farinn veg

    Við drengirnir settumst niður í stutta stund og litum yfir farinn veg í svokölluðum „wrap up“ þætti. Líkt og flestar stéttir landsins ætlum við að skella okkur í sumarfrí.

    Í þessari stuttu samantekt rifjuðum við upp skemmtileg atvik og eftirminnileg augnablik. Við þökkum öllum kærlega fyrir hlustunina og hlökkum við til að byrja ferskir í ágúst.

    Gleðilegt sumar ☀️

    Samstarfsaðili þáttarins: 
    🔍Alfreð & Giggó 
    --- 
    🎵Elephant - Tame Impala
    🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs 

    14 min
  • #17 - Bráðatæknir - Höskuldur Friðriksson

    Bráðatæknirinn reynslumikli, Höskuldur Sverrir Friðriksson, hefur starfað sem sjúkraflutningamaður og bráðatæknir í tæp 40 ár. Hann hefur sannarlega upplifað ýmislegt og séð tímana tvenna.

    Höskuldur fór um víðan völl og sagði okkur meðal annars frá starfi sínu í Bandaríkjunum, Nígeríu og Líbanon. Þar upplifði hann skotárásir og sinnti störfum á jarðsprengjusvæðum.

    Starfsferill hefur ekki alltaf verið dans á rósum og var þetta sannarlega áhugaverð sögustund.

     Samstarfsaðili þáttarins: 
    🔍Alfreð & Giggó 
    --- 
    🎵Elephant - Tame Impala
    🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs 


    1 hr 13 min
  • #16 - Kokkur - Snædís Xyza

    Kokkurinn kraftmikli, Snædís Xyza Mae Jónsdóttir, er margverðlaunaður matreiðslumeistari og hefur verið hluti af kokkalandsliðinu um árabil.

    Við spjölluðum meðal annars um trendin í matarmenningu Reykjavíkur, fáum góð ráð um hvernig á að elda fisk, kíkjum á bakvið tjöldin hjá íslenska kokkalandsliðinu og ræðum fyrir hverja kokkanámið er.

    Matur, menning og metnaður í þætti vikunnar.

     Samstarfsaðili þáttarins: 
    🔍Alfreð & Giggó 
    --- 
    📷 @snaedisxyza
    🎵Elephant - Tame Impala
    🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs 

    59 min

About Stéttir Landsins

From the publisher's feed

Hvað gera leikarar á virkum dögum? Hvernig er stemningin í vinnunni hjá útfararstjóra? Fyrir hverja er ljósmæðranám? Get ég orðið atvinnudansari eftir þrítugt? Er hagfræði hin döpru…