Stéttir Landsins

Stéttir Landsins

By StéttarfélagiðBusinessEducationCareers
Download on the App Store

Stéttir Landsins episodes

  • #15 - Ljósmyndari - Þráinn Kolbeinsson

    Ljósmyndarinn ævintýragjarni, Þráinn Kolbeinsson, hefur lent í ýmsum ævintýrum á ferli sínum sem ljósmyndari. Hann flakkar um landið og á fjarlægar slóðir til að grípa besta mögulega augnablikið.

    Allt frá því að mynda reiðhjólakappa á Vestfjörðum til ísbjarna á Baffin-eyjum í Kanada. Hann fór meðal annars yfir það hvernig hann skipti úr stöðugri vinnu á sálfræðistofu yfir í óútreiknanlegt líf sem ævintýraljósmyndari. 

    Ljósmyndun og léttleiki í fyrirrúmi í þætti vikunnar.

     Samstarfsaðili þáttarins: 
    🔍Alfreð & Giggó 
    --- 
    📷 @thrainnko
    🎵Elephant - Tame Impala
    🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs 

    52 min
  • #14 - Þáttastjórnandi - Arnar Þór Ólafsson

    Þáttastjórnandinn geðþekki, Arnar Þór Ólafsson, er með marga bolta á lofti í sjónvarpi og hlaðvarpsheimum.

    Eftir að hafa verið í atvinnuleit eftir heimsfaraldur stökk hann um borð á hlaðvarpsvagninn og hefur það leitt af sér eitt og annað. Við ræddum við hann um hans helstu verkefni, flest fjármálatengt afþreyingarefni, líkt og Pyngjuna og Viltu Finna Milljón? á Stöð 2. 

    Við vildum vita hvernig fyrirtæki brugðust við því þegar Pyngjumenn fóru að grúska í ársreikningum þeirra, helstu ráðin í heimilisbókhaldinu og ásamt því að ræða stóra stökkið í sjónvarpið ásamt fleiru til.

    Samstarfsaðili þáttarins: 
    🔍Alfreð & Giggó 
    --- 
    📷 @arnarthor24
    🎵Elephant - Tame Impala
    🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs

    53 min
  • #13 - Miðill - Sigríður Elín Olsen

    Miðillinn og heilarinn, Sigríður Elín Olsen, ræddi við okkur um andleg málefni og deildi því með okkur, hvað býr í fólkinu að handan.

    Við fengum ýmis svör, heyrðum um okkar verndarverur og hvernig orku við búum yfir. Við ræddum starf miðilsins, hvernig skilaboðin berast frá þeim liðnu, hvort það sé erfitt að vera sjáandi í margmenni, og hvað taki við eftir jarðneska tilveru.

    Við fórum einnig yfir Tarot-spilin, huldufólk og heilun dýra, þar sem við fengum að vita að ýmsar verur vaka einnig yfir dýrunum okkar.

    Samstarfsaðili þáttarins: 
    🔍Alfreð & Giggó 
    --- 
    📷 @siggaolsen
    🎵Elephant - Tame Impala
    🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs

    1 hr
  • #12 - Förðunarfræðingur - Rakel María Hjaltadóttir

    Förðunarfræðingurinn fótfimi, Rakel María Hjaltadóttir, fór yfir heims- og tískumálin með okkur. Það var tekinn 360 gráðu greining á heitustu trendunum í förðunarbransanum í dag, hvað væri heitt og hvað væri kalt.

    Rakel er hlaupari mikill og við ræddum um hið stórmerkilega hlaup sem er kennt við Bakgarðinn. Við vildum forvitnast hvað færi í gegnum hausinn á hlaupurum eftir næstum sólarhring á hlaupum og hvers vegna einhver myndi vilja leggja þetta á sig.

    Einnig tókum við snúning á ferðalögum Rakelar en hún skellti sér í langt ferðalag til S-Ameríku á dögunum og lenti alls kyns ævintýrum.

    Samstarfsaðili þáttarins: 
    🔍Alfreð & Giggó 
    --- 
    📷 @rakelmariah
    🎵Elephant - Tame Impala
    🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs

    59 min
  • #11 - Óperusöngvari - Kristján Jóhannesson

    Óperusöngvarinn tónelski, Kristján Jóhannesson, er gullbarki með meiru. Þrátt fyrir að vera ekki nema rétt rúmlega þrítugur hefur hann lært og starfað sem óperusöngvari víða um Evrópu um árabil.

    Kristján sagði okkur frá hinum litla en harða heimi óperunnar í Evrópu og hinu rólega lífi í svissneskum smábæ. Við vorum meðal annars forvitnir að vita hvort hann væri stöðvaður út á götu til þess að gefa áritanir og hvort við ættum erindi í óperuna, enda á besta aldri.

    Sannarlega þrjár einstakar útvarpsraddir í einum þætti!

    Samstarfsaðili þáttarins: 
    🔍Alfreð & Giggó 
    --- 
    🎵Elephant - Tame Impala
    🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs

    58 min
  • #10 - Töframaður - Lárus „Lalli töframaður“ Blöndal

    Töframaðurinn dulræni, Lárus „Lalli töframaður“ Blöndal, er vægast fjölhæfur skemmtikraftur. Lalli hefur töfrað og skemmt fyrir unga jafnt sem aldna. 

    Þrátt fyrir að Lalli megi ekki gefa upp hvernig helstu töfrabrögð eru framkvæmd þá leysti hann úr skjóðunni um margt annað sem tengist töframannasenunni hér á landi. Upphaf töfraferilsins, töframannafélagið, hvort hann hefði töfrað á fyrsta stefnumóti, skemmtanir í barnaafmælum og blöðrutrix voru meðal annars til umræðu í þætti vikunnar.

    Sannarlega töfrandi spjall á léttu nótunum.

    Samstarfsaðili þáttarins: 
    🔍Alfreð & Giggó 
    --- 
    📷@lallitoframadur 
    🌐lallitoframadur.is
    🎵Elephant - Tame Impala
    🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs

    1 hr
  • #9 - Fréttamaður - Kristín Ólafsdóttir

    Fréttakonan orðheppna, Kristín Ólafsdóttir, stendur á tímamótum um þessar mundir en hún lagði blaðamannapennann á hilluna á dögunum, í bili allavega.

    Hún ræddi við okkur um starf fréttamanns og var af nægu að taka. Hún lýsti því hvernig hún endaði fyrir algjöra tilviljun sem fréttamaður á Vísi, hvers vegna hún á það til að flytja fréttir úr sundlaugum landsins, sviðsljósið og vinabeiðnir á Facebook og síðast en ekki síst, Eurovision.

    Við ræddum einnig hennar næsta skref en Kristín hefur hafið störf sem aðstoðamaður forsætisráðherra.

    Samstarfsaðili þáttarins: 
    🔍Alfreð & Giggó 
    --- 
    📷@krolafs
    🎵Elephant - Tame Impala
    🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs

    1 hr 4 min
  • #8 - Garðyrkjubóndi - Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir

    Garðyrkjubóndinn glaðbeitti, Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir, brá sér frá bændastörfum á Flúðum og fór yfir það helsta með okkur. Það kennir ýmissa grasa í garðyrkjunni hjá Höllu en hún rekur meðal annars Sólskins vörumerkið og ræktar tómata, gúrkur, sellerí og fleira til.

    Í þættinum var meðal annars farið yfir hvernig maður eignast allt í einu stærðarinnar garðyrkjustöð á Flúðum, hækkandi raforkuverð, smáauglýsingar í Bændablaðinu og hvernig tómatar þroskast og dafna. 

    Það fá allir græna fingur eftir þessa hlustun!

    Samstarfsaðili þáttarins: 
    🔍Alfreð & Giggó 
    --- 
    📷@halsifswag
    🎵Elephant - Tame Impala
    🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs

    1 hr 7 min
  • #7 - Listamaður - Almar „í kassanum“ Atlason

    Listamaðurinn fjölhæfi, Almar Steinn Atlason, er flestum landsmönnum kunnugur eftir stórbrotinn gjörning á göngum Listaháskólans árið 2015.

    Almar dvaldi nakinn í glerkassa í viku og hreif alþjóð með hug og djörfung í listsköpun sinni. Hann hefur gert margt fleira en setið í kassa og ræddi við okkur um hin ýmis verk og ævintýri ásamt athyglinni sem fylgdi kassanum.

    Almar tjaldaði í nokkrar vikur á folfvelli á Hornafirði og málaði myndir, lét gesti og gangandi húðflúra á sér bakið á listsýningu og sagaði KitchenAid vél í sundur skömmu eftir skilnað.

    Samstarfsaðili þáttarins: 
    🔍Alfreð & Giggó 
    --- 
    📷@almarsteinn
    🎵Elephant - Tame Impala
    🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs

    1 hr 12 min
  • #6 - Útfararstjóri - Frímann Andrésson

    Útfararstjórinn yfirvegaði, Frímann Andrésson, ræddi við okkur um lífið, veginn og dauðann.

    Starf útfararstjóra getur tekið á sálartetrið eins kom fram í spjalli okkar. Við ræddum um hvaða viður væri vinsælastur fyrir líkkistu, hvort að almenningur mætti keyra um á líkbíl og bestu smáréttina í erfidrykkju.

    Frímann er einnig plötusnúður en spilar ekki hvaða tónlist sem er. Hann á það til að þeyta skífum á Kaffibarnum fram á rauða nótt og vakti það mikinn áhuga spyrla.

    Samstarfsaðili þáttarins: 
    🔍Alfreð & Giggó 
    --- 
    📷@frimann303
    🎵Elephant - Tame Impala
    🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs

    53 min

About Stéttir Landsins

From the publisher's feed

Hvað gera leikarar á virkum dögum? Hvernig er stemningin í vinnunni hjá útfararstjóra? Fyrir hverja er ljósmæðranám? Get ég orðið atvinnudansari eftir þrítugt? Er hagfræði hin döpru…