Temjum tæknina

Temjum tæknina

By Háskólinn á AkureyriTechnology
Download on the App Store

Temjum tæknina episodes

  • #S2-10 Eyjólfur Guðmundsson - Hvað setur þú í magnarann?

    Samtal við Eyjólf Guðmundsson — fyrrverandi rektor Háskólans á Akureyri, deildarforseta við Landbúnaðarháskóla Íslands og fyrrverandi hagfræðing hjá CCP (EVE Online). Gervigreindin sem magnari, LLM eins og Minecraft, fatan sem hver kynslóð fyllir, velviljaða búrið og fullveldi yfir eigin gögnum — og af hverju þetta snýst um stjórnarhætti, ekki tækni.

    1 hr 31 min
  • #S2-09 Pietro Segreto - Hvað verður um útgáfuiðnaðinn þegar gervigreind tekur völdin?

    Íslenska:

    Hvað verður um útgáfuiðnaðinn þegar gervigreind tekur völdin? Ég ræði við Pietro Segreto, ítalskan doktorsnema sem rannsakar gervigreind í útgáfu, um hvers vegna útgefendur eru í kjarnann hliðverðir þekkingar, hvernig þeir færast frá því að selja bækur yfir í að selja þjónustu byggða á gögnum sínum, og af hverju gögn — ekki líkönin sjálf — eru raunverulega verðmætið. Samtal um sköpun, sjálfstæði (sovereignty), stjórnarhætti og hvers vegna við ættum kannski að tala um stór mállíkön frekar en „gervigreind". (Þátturinn er á ensku.)

     

    English:

    What happens to publishing when AI enters the picture? I sit down with Pietro Segreto, an Italian PhD student researching AI in the publishing industry, to explore why publishers are at heart the gatekeepers of knowledge, how they're shifting from selling books to selling services built on their data, and why data — not the models themselves — is the real value. A wide-ranging conversation on creativity, sovereignty, governance, and why we might do better to talk about large language models rather than "AI."

    1 hr 25 min
  • #S2-08 Guðmundur Smári Gunnarsson - Valhöll range-boltanna: Dans, golf, gervigreind og einlendu tegundirnar

    Í þessum þætti mætir Guðmundur Smári Gunnarsson. Við ræðum hvernig flókin mannleg færni mótast í taugakerfinu og hvernig líkamsvitund nýtist jafnt í dansi, flugveiði og golfi. Magnús deilir tilraun sinni þar sem hann notar gervigreind til að greina Trackman-gögn og hreyfimyndbönd til að endurbyggja golfsveifluna. Saman velta þeir upp „prompt-prófi“ Guðmundar um einlendu dýrin á Íslandi, „2026-stimplinum“ sem frystir vinnustaði í fortíðinni og húmor tækninnar gagnvart range-boltum á leið til Valhallar.

    1 hr 22 min
  • #S2-07 Dr. Sigrún Stefánsdóttir - Hvað á frystihúsvinna á Akureyri sameiginlegt með framrás gervigreindar?

    Í þessum þætti fær Magnús Smári til sín dr. Sigrúnu Stefánsdóttur, fjölmiðlafræðing og fyrrum dagskrárstjóra RÚV.

    Þau ræða þróun fjölmiðla, stöðu íslenskrar tungu og hvernig gervigreindin breytir námi og fréttamennsku. Sigrún deilir athyglisverðri tilraun þar sem nemendur kepptu við tæknina og veltir því upp hvort við séum að ræna ungt fólk dýrmætri lífsreynslu. Samtal um dýpt, gagnrýna hugsun og mikilvægi þess að halda í manneskjuna í stafrænum heimi.

    39 min
  • #S2-06 Smári Sigurðsson - "Við erum búin að hlaða múra í kringum okkur."

    Í þessum þætti er gestur minn Smári Sigurðsson, múrarameistari og faðir minn. Saman ræðum við breytta tíma, frá uppvexti í sveit og vinnu við Laxárvirkjun yfir í tækniöldina sem við lifum í dag. Smári hefur haldið sig fjarri tölvum og snjallsímum stærstan hluta ævinnar og hefur einstaka sýn á hvernig tæknin hefur breytt samskiptum okkar – eða eins og hann segir: „Við erum búin að hlaða múra í kringum okkur.“


    Helstu umræðuefni:
    Meistarinn og lærisveinninn: Að læra með því að horfa og framkvæma.
    Ábyrgð og vinnusemi: Að klára verkin og standa við orð sín.
    Stafræni múrinn: Hvernig tæknin getur hindrað raunveruleg mannleg samskipti.
    Sögur úr fortíðinni: Frá innrásinni í Tékkóslóvakíu 1968 til páfaheimsóknar í Póllandi.
    Einlægt og tímalaust spjall um gildi sem aldrei fara úr tísku.

    2 hr 19 min
  • #S2-05 Lilja Dögg Jónsdóttir - Hvernig lifir lítið tungumál af á öld gervigreindar?

    Í þessum þætti af ræðir Magnús Smári við Lilju Dögg Jónsdóttur, framkvæmdastjóra Almannaróms, miðstöðvar um máltækni á Íslandi.

    Samtalið er ferðalag um fortíð, nútíð og framtíð íslenskunnar í stafrænum heimi. Lilja rekur sögulega baráttu þjóðarinnar fyrir íslenskum stöfum á lyklaborðum, útskýrir þá brýnu þörf sem er á íslenskum þjálfunargögnum fyrir gervigreind og lýsir þeim metnaðarfullu verkefnum sem Almannarómur leiðir til að tryggja að tæknin tali okkar tungu.

    46 min
  • #S2-03 Sigurður Óli Árnason - Hvernig sköpum við raunverulegt virði með gervigreind?

    Í þessum þætti af "Temjum tæknina" sest Magnús Smári niður með Sigurði Óla, vöruþróunarstjóra hjá Datalab, og þeir rýna í eina af stærstu spurningum samtímans: Hvernig sköpum við raunverulegt virði með gervigreind? Í hlaðvarpinu er m.a. fjallað um muninn á "gamaldags" spálíkönum og nýrri spunagreind/skapandi-gervigreind á borð við ChatGPT. Sigurður deilir hagnýtri reynslu sinni af því að hanna lausnir fyrir fyrirtæki og ræðir áskoranir eins og óvissu, "hallucinations" og hið svokallaða "AI Productivity Paradox". Hvaða færni verður mikilvægust í framtíðinni þegar tæknin getur leyst sífellt fleiri verkefni? Er skortur á forriturum, eða skortur á tæknifólki með samkennd og heildarsýn? Þátturinn veltir upp stórum spurningum um menntun, ábyrgð og hvernig við sem samfélag getum tryggt að tæknin þjóni mannlegum gildum, en ekki öfugt. Þetta er ómissandi samtal fyrir alla sem vilja skilja ekki bara hvað gervigreind er, heldur hvað hún þýðir fyrir okkur.

    1 hr 32 min
  • #S2-02 Pia Susanna Sigurlína Viinikka - Sönnunardrifin nálgun og ný aðferðafræði

    Sérstakur þáttur" af Temjum tæknina, þar sem óljóst er hvor sé gestur eða hlaðvarpsstjórnandi, en Pia Sigurlína langaði að ræða við Magnús um Scite sem nemendur og starfsmenn HA hafa aðgang að í tilefni að Open Access.

    Sagt verður frá hvers vegna Scite.ai varð fyrir valinu og hvernig innleiðingin gengur. Hvaða hlutverk bókasafnið hefur í ferlinu? Einnig verður rætt um hvað sönnunardrifin nálgun er og hvernig nemendur ættu að nota gervigreind. Gerir gervigreind námið erfiðara, ekki auðveldara? Síðast en ekki síst verður rætt um mikilvægi þess að hafa gagnrýna hugsun ávallt í fyrirrúmi. Hér er hlekkur í viðtal á ensku sem Magnús Smári tók fyrr á árinu við Sean Rife, meðstofnanda Scite.ai, um hlutverk gervigreindar í vísindum og menntun.

    1 hr 6 min

About Temjum tæknina

From the publisher's feed

Temjum tæknina er hlaðvarp um gervigreind og fólk. Magnús Smári Smárason, verkefnastjóri við Háskólann á Akureyri, tekur á móti gestum og ræðir tækni, spunagreind, sjálfvirkni og áhrif tæknibyltinga á daglegt líf.