
Sign up to save your podcasts
Or


Send us Fan Mail
Nýjasti gestur Alkasts Þvottahússins er engin annar en sagnfræðingurinn og refsari strengjanna Flosi Þorgeirsson.
Flosi hefur í áratugi verið gítarleikari einnar vinsælustu rokkhljómsveitar Íslands, HAM. Þar að auki er hann annar tveggja þáttastjórnenda í einu af vinsælustu hlaðvörðum landsins, Draugum fortíðar.
Send us Fan Mail
Nýjasti gestur Þvottahússins er Jósa Goodlife sem er íslenskur orkuheilari búsett í Kaliforníu BNA. Jósa sem Gunnar kynntist fyrir um 20 árum síðan þegar þau bæði voru búsett í Kaupmannahöfn hefur fengið að ganga í gegnum eld og brennistein og mætt öllu því mótvægi sem lífið hefur boðið henni upp á með opnu hjarta. Þessi eiginleiki hennar hvað varðar opið hjarta og skýra úrvinnslu hefur komið henni á þann stað í dag þar sem hún virðist vera orðin að alkemista eða gullgerðarkonu með vald yfir beislun orku.
Send us Fan Mail
Nýjasti gestur Alkasts Þvottahússins er tölvunarfræðingurinn Gísli Guðmundsson.
Gísli sem einnig situr í stjórn Sálarrannsóknarfélagsins hefur áhugaverða sögu að segja hvað varðar andleg ferðalög og sýnir tengt UFO. Frá því að hann var drengur hefur hann haft aðgengi að veru eða innri rödd sem gefur honum leiðbeiningar um hvernig hann skuli haga lífi sínu. Svolítið svipað og skrifað var um í bókaflokknum “Samræður við Guð” sem naut mikilla vinsælda fyrir nokkrum árum síðan.
Þar að auki sagði Gísli einnig um að frá því hann var ungur hefur hann lent í því sem hann kallar sálnaflakk. Sálnaflakk segir Gísli vera er sálin í einföldu máli fari úr líkamanum og öðlist getu til að fara nánast hvert sem er, hvort sem sé um á aðra staði í hans nærumhverfi eða hreinlega flakki á milli sólkerfa og heimsæki aðra menningarheima eins og hann lísti vel í viðtalinu.
Send us Fan Mail
Í þessum þætti fóru strákarnir yfir kenningar um Galactic Federation og Schumann Resonans.
Enn ein af áhugaverðustu kenningunum sem tengjast UFO og geimverum eru hugmyndir um Galactic Federation, eða bandalag vetrarbrautarinnar, sem samanstendur af verum frá mörgum mismunandi plánetum og vetrarbrautum.
Kenningin um þessi bandalög hefur verið viðurkennd af ákveðnum hópum innan andlegra og vísindalegra samfélaga, þar sem hún varpar ljósi á möguleg tengsl okkar við geimverur og hið óþekkta. Megináherslan á þessum kenningum er að Galactic Federation, sé “alþjóðlegt” bandalag sem sér um að fylgjast með og vernda þróun jarðar og lífverur hennar, stuðla að friði, samvinnu og allt í nafni stöðugrar þróunar alheimsins.
Gunnar vill meina að þetta bandalag sé í tengslum við þróun okkar sem tegund, og það hafi mikil áhrif á þróun okkar á jörðinni í gegnum háþróuð og vísindarleg verkefni, sem jafnvel snúa að því að hækkun á tíðni mannlegrar meðvitundar.
Hvað það varðar þá er talið að menn séu nú að ganga í gegnum ákveðna þróun sem er tengd við hækkun á orkutíðni – sem í raun tengist Schumann resonans.
Schumann resonans vísar til náttúrulegra hljóðbylgna sem myndast í lofthjúp jarðarinnar. Gunnar segir þessa tíðni venjulega í kringum 7,83 Hz, sem hefur verið talin náttúrulegur „hjartsláttur“ plánetunnar. Þessar bylgjur hafa mikil áhrif á lífverur jarðarinnar, sérstaklega menn, þar á meðal gríðarleg áhrif á heilastarfsemi okkar og almennt líkamlega heilsu.
Send us Fan Mail
Í nýjasta þætti Alkasts Þvottahússins er engin annar en metalhausinn, veganinn, feministinn, samgönguhjólarinn og faðirinn Birkir Fjalar Viðarson.
Birkir er og hefur alltaf verið mikil áhugamaður um rokktónlist og segir hann í viðtalinu að rokkið hafi í raun haldið honum á jörðinni í gegnum hina ýmsu öldudali sem lífið hefur upp á að bjóða. Hann heldur sjálfur út útvarps- og hlaðvarpsþætti sem heita Stokkið í eldinn þar sem þungarokkið er rætt og skilgreint niður minnstu eindir.
Birkir er mikill eldmóðsmaður og tekur hlutverk sín og skyldur mjög alvarlega og kemur það best fram í hlutverki hans sem faðir þriggja barna. Hann segir það svo mikið verkefni fyrir sig að mynda þessi nauðsynlegu tengsl við börnin sín og gefa sig algjörlega í því ferli. Hann vill meina að allt annað falli á undan tíma og samneyti með börnunum sínum og gerir sér grein fyrir að ef ekki er haldið rétt á spilinum í þessum málum geti maður sitið uppi með sárt ennið þjakaður af skömm og sektarkennd.
Send us Fan Mail
Í nýjasta þætti Alkasts Þvottahússins settust þeir félagarnir Gunnar Dan Wiium og Arnór Jónsson í áframhaldandi umræðu um fljúgandi furðuhluti.
Í þættinum fóru strákarnir yfir nokkrar nýjar frásagnir íslendinga sem þeim hefur borist. Flestir kusu að segja sína sögu í nafnleynd og talsvert myndefni fylgdu frásögnunum. það sem vakti mestu athyglina voru myndbönd sem tekin voru í Njarðvík og Gravarvogi í nóvember og desember á síðasta ári.
Myndböndin sýna það sem virðist vera óvenju skærar stjörnur en þegar zoomað er inn sést að ekki er um hefðbundnar stjörnur að ræða. Það sem sést er að um svokallað hnetti eða orbs að ræða, þeir virðast iða af einkennilegri orku eða einna heldur virðast vera hrein orka.
Send us Fan Mail
Í nýjasta þætti Alkasts Þvottahússins settust þeir niður álhattarnir Gunnar Dan Wiium og Arnór Jónsson í framhaldi af hinum stóra UFO þætti sem kom út í síðustu viku.
Í kjölfar síðasta þáttar sem 2% þjóðarinnar hlustuðu og horfðu á höfðu margir samband við þáttastjórnendur Alkasts Þvottahússins með frásagnir og teikningar sem lýsa allskonar undarlegu. Engin þessara einstaklinga sagðist vera klár til að koma fram undir nafni en strákunum væri frjálst að deila sögunum. Ein sagan þótti afar athyglisverð en kona ein hafði samband og er frásögn hennar hér fyrir neðan í fullri lengd ásamt mynd sem hún málaði af flygildinu sem hún sá.
Send us Fan Mail
Í nýjasta þætti Alkasts Þvottahússins settust þeir niður kumpánarnir Gunnar Dan Wiium og Arnór Jónsson og ræddu í þaula málin sem snúa að gríðarlegri aukningu meintra tilfella fljúgandi furðuhluta.
Síðan í lok nóvember á síðasta ári hefur tilfellum fjölgað alveg gríðarlega þar sem venjulegt fólk segist verða vitni af fljúgandi furðuhlutum eða UFO. Ferlið sem virtist hefjast með dularfullum hnetti sem virtist bara svífa um á flugvellinum í Manchester varð svo að dularfullri atburðarrás í New Jersey í BNA sem ekki er útséð hvernig muni enda.
Send us Fan Mail
Sölvi Tryggvason er nýjasti gestur Arnórs og Gunnars í Alkasti Þvottahússins.
Í viðtalinu við Sölva fóru drengirnir um víðan völl og má segja að samtalið hafi að miklu leiti snúist um heiðarleika og það hugrekki sem til þess þarf. Sölvi er búin að vera lengi viðriðinn fjölmiðlun og þegar hann hóf feril sinn í hlaðvarpi hafði hann langan og farsælan feril að baki sem einn af vinsælustu fjölmiðlamönnum landsins.
Send us Fan Mail
Nýjasti gestur Alkasts Þvottahússins er Ívar Örn Katrínarson sem gekk einnig undir listamannsnafninu Dr. Mister í dúetnum Dr. Mister & Mr. Handsome hér um árið.
Ívar hefur vakið talsverða eftirtekt síðustu mánuði fyrir útgáfu bókar, Ég ætla að djamma þar til ég drepst, þar sem hann fer yfir söguna sína í heljargreipum fíkniefna, glæpa og ofbeldis. Eftir að hafa framið rán í 10/11 og útfært misheppnaða handrukkun þar sem hann skaut á útidyrahurð þess sem skuldaði honum peninga með haglabyssu var hann dæmdur í 2 ára fangelsi.
From the publisher's feed
Geimsýran flæðir stjórnlaust og er í boði Þvottahússins. Geimsýran fjallar um allt sem snertir á UFO/NHI og uppljóstrun málaflokksins í heild sinni. Einnig er snert á málum sem gætu…