Þvottahúsið og Geimsýran

Þvottahúsið og Geimsýran

By Boxing David - Cliff W - Nóri BreiðholtComedySociety & CultureTechnology
Download on the App Store

Þvottahúsið og Geimsýran episodes

  • Hvað gerðist fyrir Jake Barber?

    Send us Fan Mail

    Hvað gerðist fyrir Jake Barber og Skywatcherteymið hans? Möguleikarnir eru tveir. Annaðhvort voru þeir gleyptir af djúpríkinu eða að þeir voru double agentar allan tímann. Hver eru tengsl við Skywatchers við skyndilega lokun á flugvellinum í El Paso í febrúar? Djúsi spurningar sem erfitt er að svara, en við reynum, getum okkur til allavega. Skoðum allt, trúum engu.

    35 min
  • Þegar UFO101 fæst staðfest

    Send us Fan Mail

    BATTELLE, ROSWELL OG „MEMORY METAL“

    Í þessum þætti förum við ofan í ný gögn úr sjötta gagnadropi Department of War og sérstaklega 1952 hljóðupptöku þar sem Edward J. Ruppelt, þá yfirmaður Project Blue Book, talar um samband bandaríska flughersins við Battelle Memorial Institute.

    Battelle kom að Project GRUDGE og Project BEAR og rannsakaði meðal annars UFO-tilkynningar, en stofnunin hafði jafnframt á þessum árum umfangsmiklar rannsóknir á títan- og nikkelblöndum hjá Wright-Patterson.

    Þetta verður sérstaklega áhugavert í ljósi þess að ég skrifaði um „Memory Metal“ og Roswell í UFO 101. Nú skoðum við heimildirnar á nýjan hátt: hvað vitum við um Battelle, hvað sýna skjölin og hljóðupptakan frá 1952 — og hvernig tengist þetta rannsóknum á málmblöndum og síðar Nitinol?

    Geimsýran – skoðum allt, trúum engu.


    29 min
  • Útgáfuhóf og ráðstefnan Heimsljós

    Send us Fan Mail

    Minni á að á fimmtudaginn 17 sept verður útgáfuhóf á UFO202 í Eymundsson í Smáralind. Léttar veitingar í boði, upplestur og bækurnar UFO101 og UFO202 á sérstöku útgáfuverði. Einnig minni ég á að Geimsýran verður alla helgina 19-20 sept á ráðstefnunni heimljós.is í Mosfellsbæ með bókasölu, fræðslu og fyrirlestur á sunnudeginum 20 sept kl 11. Mig hlakkar til að sjá ykkur.

    2 min
  • Lífsstíls-þátturinn tekin í mannlega horninu

    Send us Fan Mail

    Í þessum þætti ætla ég aðeins að breyta um gír og fara yfir eitthvað sem ég hef fengið töluvert af spurningum um upp á síðkastið – þau bætiefni sem ég er sjálfur að nota daglega.

    Ég er með tvo stuðningsaðila sem tengjast þessum þætti, Heilsuhornið og Betri dagar, og mér fannst því upplagt að segja aðeins frá því hvað ég er sjálfur að taka og hvers vegna.

    Frá Heilsuhorninu hef ég í um tvö ár verið að nota vörur frá Upakarma, sérstaklega Shilajit og Ashwagandha. Upp á síðkastið hef ég svo bætt fleiri vörum við, meðal annars NMN, SPN og Tulsi.

    Þetta eru allt ólík efni. NMN tengist NAD⁺-kerfinu og frumuorku, Shilajit er náttúrulegt efni úr fjallabergi sem inniheldur meðal annars fulvic acid og ýmis steinefni, Ashwagandha og Tulsi eru jurtir sem hafa lengi verið notaðar í tengslum við streitu og almenna vellíðan, og SPN er fjölþætt blanda af næringarefnum og virkum efnum.

    Síðan er ég að nota Life Extension Two-Per-Day, sem er nokkuð öflugt fjölvítamín, og Medox, sem er norskt anthocyanin-þykkni úr villtum bláberjum og sólberjum. Þar er áherslan meðal annars á andoxunarvirkni og stuðning við æðakerfið.

    Og svo er nýtt á dagskránni hjá mér creatine monohydrate. Það er líklega eitt mest rannsakaða fæðubótarefnið sem til er og tengist fyrst og fremst styrk, afkastagetu og viðhaldi vöðvamassa.

    En þetta er ekki þáttur um það að segja ykkur hvað þið eigið að taka. Þetta er einfaldlega innlit í það sem ég er sjálfur að gera og af hverju þessi efni hafa orðið hluti af mínu daglega prógrammi.

    Og auðvitað eru Heilsuhornið og Betri dagar stuðningsaðilar Geimsýrunar.

    Heilsuhornið er með úrval af vörum frá Upakarma og eru þessa dagana meðal annars með 3 fyrir 2 tilboð á Shilajit.

    Og Betri dagar hefur verið stuðningsaðili Þvottahússins og síðan Geimsýrunar í meira en sex ár. Þau eru með mikið úrval af hágæða vítamínum, bætiefnum, CBD og öðrum vörum og eru staðsett í Urriðaholtsstræti 24. Þú getur líka skoðað úrvalið í vefverslun þeirra og fengið vörurnar sendar heim.

    Svo skulum við kafa aðeins í þetta – hvað er í þessum efnum, hvað eiga þau að gera og hvað er það sem ég er sjálfur að sækjast eftir með þessu prógrammi?

    heilsuhornið.is

    betridagar.is

    Og notið afsláttarkóðann Geimsýran

    28 min
  • PURSUE opnar dyrnar fyrir uppljóstrara

    Send us Fan Mail

    PURSUE – nýjar dyr opnaðar fyrir UAP-uppljóstrara?

    Bandaríska varnarmálaráðuneytið hefur gefið út sérstaka lagalega undanþágu sem gerir fólki með aðgang að trúnaðarupplýsingum um UAP kleift að koma þeim upplýsingum til PURSUE.

    Hvað þýðir þetta í raun? Hverjir geta nú komið fram og hvað gætu þessar upplýsingar innihaldið? Og gæti þetta orðið ný leið til að koma áður lokuðum UAP-gögnum í átt að afklassíferingu?

    Við skoðum hvað gerðist, hvað heimildin segir – og fyrst og fremst hvað þetta gæti þýtt fyrir UAP-uppljóstrun??

    15 min
  • Mannlega hornið, COVID og fjöldageðrofið

    Send us Fan Mail

    Í mannlega horninu mætti ég kröfum hlustanda Geimsýrunar og talaði örlítið um viðbrögð mín að aðgerðir hvað varðar COVID, fyrir öllum þessum árum síðan. Super merkilegt að fara til baka og skoða hvernig maður brást við, hvernig maður hegðaði sér og þá kannski í samræmi við hvernig maður hefði mögulega í dag hegðað sér eða brugðist við á anna hátt. 

    patreon.com/geimsyran


    19 min
  • Mannlega hornið er kallinn stendur á brúninni

    Send us Fan Mail

    Þetta er svo týpískt og þið tengið kannski við það. Þetta eirðarleysi sem fær mann til að hlaupa um eins og apaköttur. Þegar lífið er svo skemmtilegt að maður tímir varla að sofa. Í kvöld fór ég í gusu eins og ég geri vikulega og enn og aftur fékk ég hugljómun um að slaka á. Skilaboð sem ég er að fá til mín reglulega þessa dagana og hvað getur maður gert? Hvernig getur maður tamið þetta dýr sem gefur og gefur en svo auðveldlega snýst upp í andhverfu sína? Hvernig forðumst við burn-out öðruvísi en að kæla sig niður.

    29 min
  • Mannlega hornið var tekið í morgun

    Send us Fan Mail

    Geimsýran er komin á Patreon. patreon.com/geimsyran 

    Í morgun henti ég í mannlega hornið. Ég fór á per´sonulegar nótur. Í þessum þætti var gerð tilraun. Ég óð í míkróphóninn áður en ég talaði við sálu og enn í hálfgerðu draumaástandi. Ég fór á svið sem ég hef aldrei farið áður. Persónuleg mál sem ég finn tilbúin til að ræða um loksins. Hvað ætlum við lengi að burðast með allt þetta drasl í bakpokanum sem engin bað okkur um að burðast með?

    3 min
  • Project Blue Beam. Sýndar-áras úr geimnum

    Send us Fan Mail

    Í þessum þætti af Geimsýrunni förum við inn í eina af furðulegustu og umdeildustu hugmyndum UFO-sögunnar — Project Blue Beam.

    Við byrjum hjá Serge Monast árið 1994 og förum í gegnum kenninguna um falskar fornleifauppgötvanir, hologram á himninum, skilaboð inn í huga fólks og að lokum sviðsetta „geimveruárás“ sem gæti sameinað mannkynið gegn sameiginlegum óvini.

    En svo förum við lengra.

    Við skoðum frásagnir Carol Rosin um Wernher von Braun og hið svokallaða „alien card“, kenningar Steven Greer um false flag-aðgerðir og svo tengjum við þetta við það sem Jeremy Corbell og Chris Bledsoe hafa sagt um árið 2027, „incoming craft“ og hið dularfulla orð Armada.

    Og þá kemur stóra spurningin:

    Erum við að horfa á gamla samsæriskenningu sem hefur einfaldlega lifað af í nýrri mynd — eða erum við að verða vitni að raunverulegri breytingu á því hvernig stjórnvöld og mannkynið tala um ógnir frá geimnum?

    Við skoðum líka kalda stríðið, þróun geimhernaðar, UAP-uppljóstranir, 3I/ATLAS og nýja áherslu Bandaríkjanna á hernaðarlegt geimkerfi.

    Að lokum förum við aftur til ársins 1987.

    Þá stóð Ronald Reagan fyrir framan Sameinuðu þjóðirnar og spurði:

    Hvað myndi gerast ef við stæðum frammi fyrir sameiginlegri ógn utan úr geimnum?

    Það sem hann sagði þá hljómar ótrúlega áhugavert í dag.

    Velkomin í Geimsýruna á patreon.com/geimsyran


    5 min
  • Patreon þættirnir eru byrjaði að rúlla inn

    Send us Fan Mail

    Einn brjálaður þáttur komin á Patreon og tveir á leiðinni inn á næstu dögum. Jake Barber og Skywatchers, DMT og Ayahuascha og síðasti þáttur sem kemur út næstu helgi, Grænu geislarnir yfir Michigan... Full Blown langir topic þættir sem þið viljið ekki missa af. 1.500,- á mánuði fyrir 4-8 langa topic þætti um UFO, allskonar andlegt og heimspekilegt og svo má ekki gleyma mannlega horninu. Lets go, lock in!! Lock in á http://patreon.com/geimsyran

    4 min

About Þvottahúsið og Geimsýran

From the publisher's feed

Geimsýran flæðir stjórnlaust og er í boði Þvottahússins. Geimsýran fjallar um allt sem snertir á UFO/NHI og uppljóstrun málaflokksins í heild sinni. Einnig er snert á málum sem  gætu…