Þvottahúsið og Geimsýran

Þvottahúsið og Geimsýran

By Boxing David - Cliff W - Nóri BreiðholtComedySociety & CultureTechnology
Download on the App Store

Þvottahúsið og Geimsýran episodes

  • Project Blue Beam, false Alien Invasion

    Send us Fan Mail

    Í þessum þætti af Geimsýrunni förum við inn í eina af furðulegustu og umdeildustu hugmyndum UFO-sögunnar — Project Blue Beam.

    Við byrjum hjá Serge Monast árið 1994 og förum í gegnum kenninguna um falskar fornleifauppgötvanir, hologram á himninum, skilaboð inn í huga fólks og að lokum sviðsetta „geimveruárás“ sem gæti sameinað mannkynið gegn sameiginlegum óvini.

    En svo förum við lengra.

    Við skoðum frásagnir Carol Rosin um Wernher von Braun og hið svokallaða „alien card“, kenningar Steven Greer um false flag-aðgerðir og svo tengjum við þetta við það sem Jeremy Corbell og Chris Bledsoe hafa sagt um árið 2027, „incoming craft“ og hið dularfulla orð Armada.

    Og þá kemur stóra spurningin:

    Erum við að horfa á gamla samsæriskenningu sem hefur einfaldlega lifað af í nýrri mynd — eða erum við að verða vitni að raunverulegri breytingu á því hvernig stjórnvöld og mannkynið tala um ógnir frá geimnum?

    Við skoðum líka kalda stríðið, þróun geimhernaðar, UAP-uppljóstranir, 3I/ATLAS og nýja áherslu Bandaríkjanna á hernaðarlegt geimkerfi.

    Að lokum förum við aftur til ársins 1987.

    Þá stóð Ronald Reagan fyrir framan Sameinuðu þjóðirnar og spurði:

    Hvað myndi gerast ef við stæðum frammi fyrir sameiginlegri ógn utan úr geimnum?

    Það sem hann sagði þá hljómar ótrúlega áhugavert í dag.

    Velkomin í Geimsýruna á patreon.com/geimsyran



    50 min
  • Svo fallegar Tall Whites og ógeðslegar reptilian Gorillaz!!

    Send us Fan Mail

    Ok kids. Ég get ekki Hætt að hugsa um þessar fullyrðingar David Grusch. Fór í viðtal í dag hjá Frosta Loga sem er prýðisdrengur. Ræddum þessi mál þar í þaula en niðurstaðan er að ef ég væri djúpríkispési og ætlaði að framkalla sviðsetta innrás geimvera, þá myndi é gera það nákvæmlega svona, dropa þessu í war . gov og svo henda Grusch í Rogan viðtal og leyfa honum að tala um fallegar Tall Whites og ógeðslega hættulega reptilian gorillaz!! You cant make this shit up!!!


    28 min
  • Geimsýran flæðir stjórnlaust á Patreon

    Send us Fan Mail

    Smá update á að Geimsýran er komin í áskrift á http://patreon.com/geimsyran 

    Þar eru birtir 2-3 frétta og topic-þættir á hverri viku. Allar nýjustu fréttirnar og vangaveltur tengt andlegum, trúarlegum og heimspekilegum vinklum. Fyrir 10 dollara á mánuði færðu aðgang að mér og efni tengt UFO og frá öllum vinklum. 

    8 min
  • AsthangaYoga, Vipassana, Sauna, Sveppir og kósíheit

    Send us Fan Mail

    Í þessu mannlega horni Geimsýrunar fór ég yfir söguna tengt YOGA, Vipassana og svo framvegis og þá í tengslum við nýjan samstarfsaðila Geimsýrunar, Yogashala. Yogashala hefur síðustu 25 árin eða svo verið leiðandi í Yoga iðkun og kennslu á Íslandi. Ingibjörg Stefánsdóttir, stofnandi Yogashala er án efa ein einn af stærstu áhrifavöldum á Íslandi þegar kemur að YOGA. Geimsýran er þakklát fyrir þetta samstarf, eins og með samstarfið við Heilsuhornið og Betri Daga, sem og Fargufuna sem einnig á stóran hluta í andlegri velferð stjórnanda Geimsýrunar. Beint frá hjartanu segi ég takk til þessara fyrirtækja og allra annara sem veita vörur og þjónustu sem stuðla að heilbrigðum lífstíl, náttúrulegum lífstíl, sjálfbærni, vitundarlegri sjálfbærni, skilvirkni innan mennskunar og vitundarlegri umpólun, með öðrum orðum, upprisu mannsins. 

    34 min
  • Mannlega hornið tekið einn laugardagsmorgun

    Send us Fan Mail

    Í þessum þætti var gerð tilraun. Ég óð í míkróphóninn áður en ég talaði við sálu og enn í hálfgerðu draumaástandi. Ég fór á svið sem ég hef aldrei farið áður. Persónuleg mál sem ég finn tilbúin til að ræða um loksins. Hvað ætlum við lengi að burðast með allt þetta drasl í bakpokanum sem engin bað okkur um að burðast með?´

    55 min
  • Þegar hlaðvarp fjallar um hlaðvarpsviðtal er eitthvað mikið í gangi

    Send us Fan Mail

    ÞETTA VAR EKKI VENJULEGT JOE ROGAN VIÐTAL.

    David Grusch fór mun lengra en áður.

    Hann segist hafa séð upptökur af látnum, mannlegum verum úr UFO retrieval-aðgerð. Hann ræðir Grays, sjö feta reptilian-verur, lifandi verur úr hrapaðri farkostum og möguleg átök milli ólíkra NHI-hópa.

    Svo koma risastórar neðansjávarstöðvar, cloaking, telepathy, remote viewing, meðvitundartengd tækni, fornar siðmenningar — og möguleikinn á að saga mannsins sé allt önnur en við höldum.

    Og disclosure?

    Grusch telur að Trump vilji koma sannleikanum út — en varar við því að AI gæti púslað þessu saman á undan stjórnvöldum.

    Ég fer yfir svakalegustu fullyrðingarnar úr nýja Rogan-viðtalinu og spyr einfaldlega:

    Hvað í fjandanum er David Grusch eiginlega að segja okkur?

    Geimsýran – Skoðum allt, trúum engu.


    34 min
  • Þegar maður þarf að ná áttum innan UFO

    Send us Fan Mail

    Ok, ég er búin að jafna mig á brjálæðiskast gærkvöldsins. Lendingin er alltaf sú sama. Uppljóstrunin verður að vera in the end vitundarleg pólskipti og er af andlegum toga. Það þýðir ekki að maður eigi ekki að fylgjast með hvað varðar uppljóstrun inn Goverment. Við Geimsýruhausar skoðum allt en trúum engu. Öllu ber að taka með fyrirvara. 

    34 min
  • Díatryptamín og Ayahuasca

    Send us Fan Mail

    Í þessum þætti fer ég ítarlega yfir eiginleika og einkenni Díatryptamín og Ayahuasca. Tengsl þessara efna við mögulegan skammtaheim UFO og NHI. Einnig í þættinum fer ég yfir tilraun sem gerð var í stúdíói Geimsýrunar með notkun DMT og lazer sem Danny Goler hefur rannsakað mikið síðustu ár. Hann vill meina að með því að stara í endurkast rauða lazers af möttu fleti og undir áhrifum DMT sértu komin í stöðu þar sem þú sérð striga efnisveruleikans og kóðana sem halda öllu saman. Þetta var reynt og viti menn, það er ekki öll vitleysan eins. 

    40 min
  • Húsið á sléttunni og endajaxlar

    Send us Fan Mail

    Þetta mannlega horn er svo mannlegt að það nær eiginlega engri átt. Hversdagsleikinn umlykur okkur og því mikilvægt að horfast í augu við að glasið er alltaf hálffullt eða einfaldlega bara fullt. Vandamálin eru bara eitthvað ogguponsu en hvað þýðir það? Þýðir það að maður eigi bara að skammast sín fyrir að líða ekki nógu illa? Nei, svo aldeilis ekki. Ég owna þetta yndislega líf sem mætti halda að tilheyrði húsinu á sléttunni. Mér þykir vænt um ykkur Geimsýruhausar. 

    22 min
  • UFO brottnámið við Miklubraut 1995

    Send us Fan Mail

    Í þessum þætti fjalla ég um brottnámstilfellið við Miklubraut 1995. Þá varð par fyrir því að missa hálftíma um miðja nótt úr lífi sínu eftir að bíll þeirra var lýstur upp. Ég fór einnig yfir brottnámið við Lake Shasta, Álafoss og brjálað dæmi í Vesturbænum er kona var rifin tvisvar í svaka UFO ferðalag sömu nóttina.

    29 min

About Þvottahúsið og Geimsýran

From the publisher's feed

Geimsýran flæðir stjórnlaust og er í boði Þvottahússins. Geimsýran fjallar um allt sem snertir á UFO/NHI og uppljóstrun málaflokksins í heild sinni. Einnig er snert á málum sem  gætu…