
Sign up to save your podcasts
Or


Send us Fan Mail
Jæja krakkar. Það er ekki hægt að lýsa ástinni sem umlykur okkur. Orðin ljúga einfaldlega og því þögnin því kannski bara best þegar allt kemur til alls. Engu að síður, reyndi ég að koma þessu i orð þó svo að sumt er svo skrítið og heilagt að ekki má einu sinni tala um það.
http://patreon.com/geimsyran
Send us Fan Mail
Elskurnar. Ég var beðin um fjölbreyttari umræðu í Geimýrunni, ekki bara UFO og Ayahuasca. Þeirri beiðni var hafnað og samþykkt á sama tíma. Allt snýst þetta um þessa leið vitundarlegu pólskifta sem einstaklingurinn og hóparnir feta þessa dagana. Uppljómunin er hafin og allt tengist þetta, UFO, Sækadelika, þjónusta, fjölskylda, tilfinningar, úrvinnsla, hugsun, vísindi, athöfn, eirð og eirðarleysi. Ég er nú farin í síðustu Ayahuasca athöfnina á þessu ári og mun greina fyrir niðurstöðunni í fyrramálið þegar ég kem aftur tilbaka í bækistöðvarnar. Ég elska hreinlega allt og okkur og bara hreint namaste til ykkar. Om og friður og Om.
http://patreon.com/Geimsýran
Send us Fan Mail
Hvað ef við erum að skapa veruleikann?
Hvað ef við erum ekki bara áhorfendur að veruleikanum – heldur þátttakendur í því hvernig hann verður til?
Í þessum þætti tengi ég saman UFO, meðvitund, DNA, skammtafræði, fornar hugmyndir um eðli mannsins, AI og disclosure. Hvað ef UFO-fyrirbærið snýst ekki bara um „þau“ heldur líka um okkur? Og hvað ef ofurgreind framtíðarinnar á eftir að sýna okkur eitthvað sem við höfum ekki enn áttað okkur á?
Kannski er stærsta spurningin ekki lengur: Eru þau til?
Heldur: Hvað erum við – og hvað erum við að gera hér?
Send us Fan Mail
Stundum er maður bara brjálaður á þessu öllu. Þessir djöfulls UFO kallar sem benda allir á hvorn annan og segja hitt og þetta og gefa út sína memoir bækur og væla svo yfir hvað þeir eru fátækir. Það er verið að spila með okkur. Raunveruleikinn er svo miklu skrítnari en við höldum hvað þetta varðar. Hið upplýsta alvaled mun stíga hér niður einn daginn og skilja okkur eftir agndofa á undrun. Þá mun allur efi verða hreinsaður úr hjörtum okkar og við munum vita tilgang okkar hér í þessum líkama, í þessu lífi.
http://patreon.com/geimsyran
Send us Fan Mail
UFO-UPPLJÓSTRUNIN – HVAR ERU EINKAVERKTAKARNIR?
Sjö gagnadropp frá bandarískum stjórnvöldum, hundruð skjala og sífellt fleiri frásagnir af óþekktum fyrirbærum. En hvar eru stóru varnartæknifyrirtækin?
Lockheed Martin, Northrop Grumman, Raytheon og Boeing hafa öll verið nefnd í umræðunni um meint leynileg endurheimtarverkefni. Samt hefur lítið heyrst frá þeim.
Nú þegar þingkosningar nálgast í Bandaríkjunum vaknar spurningin: Er Donald Trump að undirbúa stærstu uppljóstrun mannkynssögunnar eða erum við að horfa á stýrt upplýsingaflæði?
Og ef raunverulegar sannanir eru til, gætu þær þá verið í höndum einkafyrirtækja frekar en stjórnvalda?
Geimsýran – Skoðum allt, trúum engu.
http://patreon.com/geimsyran
Send us Fan Mail
Ég hef sent dómsmálaráðuneytinu formlega fyrirspurn um hvort íslenskur ríkisborgari geti sjálfviljugur og varanlega afsalað sér kosningarétti án þess að missa ríkisborgararétt sinn.
Ég hef ekki lengur trú á lýðræðinu í þeirri mynd sem það birtist okkur í dag og hef tekið þá ákvörðun að standa utan pólitískrar þátttöku. En hvers vegna ætti ég ekki að geta gert þá ákvörðun formlega og lagalega bindandi?
Ég vil áfram greiða mína skatta, hlíta lögum og vera virkur samfélagsþegn. Ég vil einfaldlega ekki taka þátt í því pólitíska umboði sem kerfið byggir á.
Í þessum þætti Geimsýrunnar velti ég fyrir mér mörkum einstaklingsfrelsis, sjálfsákvörðunarréttar og lýðræðis.
Er rétturinn til að kjósa líka rétturinn til að hafna kosningaréttinum?
Skoðum allt, trúum engu.
http://patreon.com/geimsyran
Send us Fan Mail
Í þessum þætti Geimsýrunar fer ég yfir þessa togstreitu sem hlýst að því að vera strengdir milli tveggja heima. Þegar rifan í sviðsmyndinni fer að vera sýnileg og maður stendur frammi fyrir því að þurfa að umbera blekkinguna þrátt fyrir að ljósið s´kýni svo skýrt í gegn.
Minni á þætti Geimsýruar á http://patreon.com/Geimsýran
Send us Fan Mail
Í þessum þætti kynni ég fyrir Sambíóin sem nýjan samstarfsfélaga Geimsýrunar. Sambíóin er mekka íslenskrar kvikmyndamenningar og með stolti kynnir Geimsýran þau til leiks. Það mun fela í sér sameiningu á kvikmyndum, UFO, NHI, vísindum, tilfinningum og hughrifum. Geimsýran mun verða með gagnrýnisþætti á þær kvikmyndir sem passa inn í þessa ofangreindu þætti og þykir þetta ekki bara gríðarlega mikill heiður heldur alveg stórkostlega skemmtileg viðbót í jöfnuna. Geimsýran flæðir stjórnlaust og ekkert fær stöðvað hana. Mér þykir vænt um ykkur, namaste.
http://patreon.com/geimsyran
Send us Fan Mail
Smá follow up á Ayahuasca ferðalaginu. Nú er mánudagurinn að verða búin að svefninn komin í lag og maður búin að melta þetta aðeins. Hverju skilar þetta allt og hvað á maður að gera við þessar upplýsingar, þessar breytingar sem manni eru færðar? Lífið er svo æðislegt og plantan, Ayahuasca svo ótrúlega öflugur kennari. Ég er svo þakklátur fyrir að vera settur á þessa vegferð, það er nó turning back!!
Send us Fan Mail
Í þessu mannlega horni fór ég yfir þessi rosalegustu Ayahuasca ferð. Var tekin í skömm og myrkur sem einungis var hægt að losa úr kerfinu í gegnum uppkast eða "purge"
Þar eftir tók við ferli sem er ekki hægt að lýsa öðruvísi en að ég hvarf og varð andardráttur, eina mantran sem situr eftir er allt annað er strípað. Dásamlegur leikur lífið, fullt af allskonar, sumt ber að halda í á meðan annað okkur ber að losa okkur við, enda ekki okkar.
Þykir vænt um ykkur á sunnudagsmorgni.
http://patreon.com/Geimsýran
From the publisher's feed
Geimsýran flæðir stjórnlaust og er í boði Þvottahússins. Geimsýran fjallar um allt sem snertir á UFO/NHI og uppljóstrun málaflokksins í heild sinni. Einnig er snert á málum sem gætu…