Þvottahúsið og Geimsýran

Þvottahúsið og Geimsýran

By Boxing David - Cliff W - Nóri BreiðholtComedySociety & CultureTechnology
Download on the App Store

Þvottahúsið og Geimsýran episodes

  • "Þetta er ekki hægt"

    Send us Fan Mail

    „Þetta er ekki hægt!“

    Þessi orð lét ég falla í miðri ayahuasca-reynslu sem hefur fengið mig til að endurskoða hugmyndir mínar um vitundina og raunveruleikann.

    Ég upplifði stað sem mér fannst ég hafa komið á áður, samskipti án orða og veruleika sem virtist vera til óháð minni eigin ímyndun.

    Í þessum persónulega þætti Geimsýrunnar velti ég fyrir mér eðli vitundarinnar, sjálfsmyndinni, öðrum tilverusviðum og mögulegum tengslum við UFO-fyrirbærið.

    Hvað ef veruleikinn er allt annar en við höldum?

    Geimsýran – Skoðum allt, trúum engu.

    http://patreon.com/Geimsýran

    50 min
  • Möguleg aðkoma íslenskra vísindamanna í UFO heiminn

    Send us Fan Mail

    Hvað gerist þegar vísindamenn fara að horfa alvarlega á UFO-málið?

    Í þessum þætti skoðum við nokkra af þeim vísindamönnum sem hafa komið að rannsóknum á UFO/UAP og Disclosure — allt frá J. Allen Hynek og Jacques Vallée til Avi Loeb, Garry Nolan, Eric Davis, Kevin Knuth og Beatriz Villarroel.

    En svo kemur spurningin sem mér finnst sérstaklega áhugaverð: Hvað með Ísland?

    Eigum við íslenska vísindamenn sem gætu komið að alvöru rannsóknum á UAP? Stjarneðlisfræðinga, eðlisfræðinga og sérfræðinga í gagnagreiningu og mælitækni?

    Kannski er spurningin ekki hvort við eigum að trúa á UFO.

    Kannski ættum við einfaldlega að byrja að rannsaka það sem við skiljum ekki.

    Skoðum allt. Trúum engu.

    27 min
  • Hvernig forðast ég streitu í öllu amstrinu?

    Send us Fan Mail

    Í mannlega horninu í kvöld fer ég yfir hvernig ég forðast streitu í streitufullu umhverfi. Hver eru verkfærin og hvert er hugarfarið? Einnig les ég vel valin orð úr kaflanum Vitundarleg pólskifti úr bókinni UFO202. Krakkar, lífið er of stutt í línulega samhengi að eyða því í volæði og vitleysu. Lausnin er fólgin í réttum boðefnum sem leiða okkur í samkennd og engin er að fara að gera þetta fyrir okkur. Namaste elskurnar. 

    Yogashala.is

    fargufa.is

    betridagar.is

    heilsuhornid.is

    34 min
  • Dularfullu græn-geisla UFO myndböndin

    Send us Fan Mail

    Það eru til UFO-myndbönd sem maður horfir á einu sinni og hugsar: „Já, þetta er líklega eitthvað.“ Svo eru til myndbönd sem maður horfir á aftur og aftur og svo fer maður að leita í öðrum myndböndum og maður sér sömu hlutina gera það sama. Og þá verður málið allt í einu miklu áhugaverðara. Í þessum þætti ætla ég að sýna ykkur fjögur myndbönd sem birtust á internetinu haustið 2013. Þau koma frá mismunandi stöðum í Bandaríkjunum. Michigan, Ohio og Georgia. Og öll virðast þau sýna eitthvað mjög svipað bjart ljós, hamarslaga UFO ,dularfullt fyrirbæri á næturhimni. Og sérstaklega eitt smáatriði sem gerir þessa sögu mjög áhugaverða. Fyrirbærin virðast öll geisla af sér grænum skönnunargeisla. 

    33 min
  • Létt yfirferð á stöðu mála á þessum fallega föstudagsmorgni

    Send us Fan Mail

    Í þessari léttu yfirferð fer ég yfir stöðuna á mér og innihald UFO kvöldið sem haldið verður annaðkvöld, 17 okt kl 20 í Eden Yoga. Það verður Kakó og hugleiðsla á undan klst UFO fyrirlestur og spjall. Verð með bækur til sölu ef einhver vill einnig. Áskriftarþættir eru á http://patreon.com/Geimsýran
    og skráning á UFO kvöldið í Eden fer fram á https://www.edenyoga.is/booking-form?referral=booking_calendar_widget&continueShoppingUrl=%2Fbooking-calendar%2Fbókaspjall-með-gunnari-dan-ufo-202%3Ftimezone%3DAtlantic%2FReykjavik 

    20 min
  • Hið pólitíska afstöðuleysi

    Send us Fan Mail

    Mannlega hornið í dag er pólitískt. Hvernig stendur á því að ég einn daginn tek við niðurhali sem segir mér að draga mig úr allri pólitík, stjórnmálalegri, lýðræðislegri og samfélagslegri? Hvað þýðir það að taka ekki afstöðu lengur innan lýðræðis? Er það hægt? Ég fer í þessum þætti yfir sýn mína hvað varðar pólitískt afstöðuleysi. Hvernig samfélag ég er búin að skapa innra með sjálfum mér og hvernig ég vill meina að ég sé að haga mér á ábyrgan hátt sem ábyrgur samfélagsþegn, samt sem áður einn sem ekki mætir á kjörstað né tekur afstöðu í neinni samfélagslegri ádeilu. Þetta er erfitt og gerist ekki á einni nóttu. Ennþá finn ég að ég er dregin í þessar áttir og alltaf er það það sama sem dregur mig til baka og það er sársaukinn sem er samofin sundrung og tvíhyggju. 

    33 min
  • Hvenar leyfum við okkur að vera vanmáttug og takmörkuð?

    Send us Fan Mail

    Í mannlega horninu í kvöld er ég að ræða mikilvægi þess að viðhalda auðmýkt gagnvart eigin vanmætti, skilningsleysi og vanþekkingu. Lífið er svo stutt og asnalegt í bland við að vera langt og sjúklega mikil snilld. Og hvað situr eftir annað en bara að leitast eftir að gera sitt besta og taka hlutum ekki of alvarlega, bara leika sér. Mikið þakklæti í hjarta mínu fyrir alla þá sem gerst hafa borgandi áskrifendur á Patreon. Mér þykir svo vænt um það að ég get eiginlega ekki lýst því með orðum. Bara ást á ykkur öll og hjarta emoji. 
    http://patreon.com/Geimsýran

    37 min
  • UFO update á föstudagskvöldi.

    Send us Fan Mail

    Það er smá update hér á föstudagskvöldi. Geimsýran hefur hafið samrunaferli með hlaðvarpinu Hinu Yfirnáttúrulega. Ég, Dagný og Selma munum nú sameina krafta okkar einu sinni í mánuði og gera sameiginlegan þátt, einfaldlega því öll erum við svo frábær og skemmtileg. Fyrsti þáttur dropar á morgun á Patreon. Einnig eru spennandi þætti framundan á sunnudag og miðvikudag. Laugardaginn 17 okt kl 20 mun ég í samvinnu með Edenyoga.is halda hugleiðslu, kakó og UFO fyrirlestur. Það kostar 1.500,- hægt er að skrá sig á heimasíðu Eden. Annars, Geimsýran á http://patreon.com/Geimsýran SKoðum allt, trúum engu. 

    10 min

About Þvottahúsið og Geimsýran

From the publisher's feed

Geimsýran flæðir stjórnlaust og er í boði Þvottahússins. Geimsýran fjallar um allt sem snertir á UFO/NHI og uppljóstrun málaflokksins í heild sinni. Einnig er snert á málum sem  gætu…