Alveg er þetta makalaust, þrjár vikur þegar búnar af nýja árinu og við farin að undirbúa næsta partý, búin að setja í súr enda ekki seinna vænna því bóndadagurinn er á föstudaginn. Svona er þetta, ár eftir ár eftir ár, sumt breytist og annað ekki og næsta klukkutímann ætlum við Bergsson og Blöndal að skoða hvernig var umhorfs í íslenskri tilveru um miðjan janúar árin 1982, 1972, 1962 og 1952.
Tímaflakk með Bergsson og Blöndal er alla sunnudaga kl. 15.02 á Rás 2