Bergsson og Blöndal eru Margrét Blöndal og Felix Bergsson. Og þau eru föst í fortíðinni,
Það er kominn 22 desember og við ætlum að skoða þennan dag árin 1953, 1963, 1973 og 1983. Tónlistin er í aðalhlutverki en einnig raddir liðinna áratuga og fréttir og auglýsingar sem okkur finnst gaman að rifja upp. En hefjum leik árið 1953 og leyfum hinum geysivinsæla Guðmundi Jónssyni ásamt Karlakór Reykjavíkur að koma okkur í karlmennskugírinn...
Tímaflakk með Bergsson og Blöndal er alla sunnudag kl. 15.02 á Rás 2