Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Í þáttaröðinni Tónlist frá A - Ö rannsakar Arndís Björk Ásgeirsdóttir leyndardóma tónlistarinnar með aðstoð sérfræðinga.... more
FAQs about Tónlist frá a til ö:How many episodes does Tónlist frá a til ö have?The podcast currently has 71 episodes available.
November 02, 2019Victor JaraChileanska baráttusöngvaskáldsins Victor Jara er minnst í tilefni þess að nú rís mótmælaalda í Chile enn á ný. Victor Jara varð að einskonar táknmynd andstöðuhreyfingarinnar í Byltingunni í Chile árið 1973 þegar Augusto Pinochet steypti hinum lýðræðislega kjörna forseta Salvator Allende af stóli með öllum þeim hörmungum sem það hafði í för með sér. Victor Jara var fæddur árið 1932 og var fylgjandi umbótasinnuðum Alliende. Hann var handtekinn, pyntaður og tekinn af lífi á þjóðarleikvanginum í Santiago í október 1973. Viðmælendur í þættinum eru Steinunn Jóhannesdóttir leikkona og rithöfundur, Hólmfríður Garðarsdóttir prófessor í spænsku og spænskum bókmenntum við háskóla Íslands og Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur og alþingismaður og þau rifja upp kynni sín af tónlist hans og þeim áhrifum sem hún hafði og hefur enn....more0minPlay
October 26, 2019Sögur úr óperunni, síðari þátturViðmælendur Hanna Dóra Sturludóttir og Gissur Páll Gissurarson....more0minPlay
October 19, 2019Sögur úr óperunniGunnar Guðbjörnsson, Kristján Jóhannsson og Signý Sæmundsdóttir rifja upp skemmtilegar sögur úr óperuuppfærslum sem þau hafa tekið þátt í....more0minPlay
October 12, 2019Tónlist og dýrFjallað er um tónlist og dýr - hvernig þau skynja tónlist og hvernig áhrif tónlist getur haft á dýr. Farið verður í heimsókn til tveggja hunda þeirra Snókers og Spörtu sem elska að syngja og einnig hljómar undarlegt háttalag hunds þáttarstjórnanda. Sérfræðingur þáttarins er Hanna María Arnórsdóttir dýralæknir og dýraatferlisfræðingur. Umsjón: Arndís Björk Ásgeirsdóttir....more0minPlay
October 05, 2019Klapp á klassískum tónleikumÍ þættinum er fjallað um klapp - á klassískum tónleikum - hvenær á að klappa og hvenær á ekki að klappa. Viðmælendur eru Halla Oddný Magnúsdóttir tónlistar-og fræðakona, Jökull Torfason sem starfar á markaðsdeild Sinfóníuhljómsveitar Íslands og hljóðfæraleikararnir Una Sveinbjarnardóttir, Þórir Jóhannsson og Herdís Anna Jónsdóttir....more0minPlay
September 28, 201928.09.2019Í þættinum ræðir umsjónarmaður við Þórð Magnússon tónskáld um sónötuformið og hina klassísku sónötu. Umsjón: Arndís Björk Ásgeirsdóttir....more0minPlay
September 21, 2019Hörður ÁskelssonÍ þættinum er rætt við Hörð Áskelsson organista og kórstjóra um messuformið og leikin brot úr nokkrum messum frá ýmsum tímum tónlistarsögunnar....more0minPlay
September 14, 2019Hvernig velur tónlistarfólk hljóðfæri?Farið í Hörpu og rætt við nokkra hljóðfæraleikara Sinfóníuhljómsveitar Íslands um það hvernig þeir völdu sér sín hljóðfæri. Einnig er rætt við Önnu Rún Atladóttur skólastjóra Tónmenntaskóla Reykjavíkur um hvernig ungir nemendur velja sér hljóðfæri til að læra á....more0minPlay
September 07, 2019Gísli Magna SigríðarsonRætt er við Gísla Magna Sigríðarson stjórnanda Léttsveitar Reykjavíkur um starf hans með kórnum og undrið að syngja í kór. Einnig hljóma viðtalsbrot við Auði Aðalsteinsdóttur og Valgerði Rúnarsdóttur sem báðar syngja í kórnum....more0minPlay
FAQs about Tónlist frá a til ö:How many episodes does Tónlist frá a til ö have?The podcast currently has 71 episodes available.