Tvær á báti

Tvær á báti

By Álfrún Tryggvadóttir og Linda HeiðarsdóttirSportsHealth & FitnessRunning
Download on the App Store

Tvær á báti episodes

  • Næstum komnar á beinu brautina og ræðum brautina!

    Linda og Álfrún eru næstum komnar aftur á beinu brautina eftir að hafa lagt allt í sölurnar í maraþoni fyrir tæpum þremur mánuðum. Þær ræða einnig brautina, MÍ öldunga, MÍ 2026, hálft í París eftir viku og langan aðskilnað í febrúar.

    49 min
  • Þjálfari ársins

    Þjálfari ársins hjá Þrótti, Jens Elvar Sævarsson mætti sem gestur og gestastjórnandi í fjarveru Álfrúnar. Hann er án gríns alltaf í góðu skapi og segist tileinka sér jákvæða hluti í fari annarra. Haustið 2025 byrjaði hann með hlaupahóp Þróttar og stefnir á að ná fjöldanum upp í 100 meðlimi. Það skemmir svo ekki fyrir að honum finnst hrikalega gaman að rausa um hlaup og heilbrigðan lífsstíl og smellpassaði því í settið.

    1 hr 27 min
  • Reiknum okkur góðar

    Í þættinum ræða Linda og Álfrún við Fríðu Rún hlaupakempu með meiru. Hlaupari á heimsmælikvarða í sínum aldursflokki. Hún sagði frá mjög áhugaverðum ferli, gaf góð ráð og kom á óvart með skemmtilegum sögum af sjálfri sér. Frábær hlustun fyrir langa hlaupið um helgina.

    1 hr 29 min
  • Raus um janúarlægðina

    Tvær á báti eru að komast upp úr janúarlægðinni og fóru um víðan völl í rausi dagsins. Félagaskipti, sól í perlu, hvernig þær komast reglulega í tísku og síðast en ekki síst mini körfuboltahorn.

    53 min
  • Hulda Guðný-fimmtug á árinu og í fantaformi!

    Í þættinum fá Álfrún og Linda hlauparann Huldu Guðnýju Kjartansdóttur í viðtal en hún hljóp sitt besta maraþon í Valencia á dögunum. Þær þrjár fóru yfir hlaupaferil Huldu og markmiðin hennar fyrir 2026. Þegar þessar þrjár hittast er heldur betur malað og nauðsynlegt að hafa framhaldsþátt.

    1 hr 21 min
  • Uppgjör nýliðans (65'E)

    Í þessum fyrsta þætti 2. seríu hlaðvarpsins Tvær á báti kemur nafnlausi nýliðinn Kristín Þóra Haraldsdóttir leikkona og gerir upp hennar Valencia eða Gamlárshlaup ÍR. Virkilega skemmtileg og hvetjandi yfirferð fyrir hlaupara sem eru að koma sér af stað á nýju ári.

    1 hr 5 min
  • 40'E

    Í þessum lokaþætti ársins hjá Tveimur á báti fá Linda og Álfrún nafnlausa nýliðann með sér í settið. Uppleggið í Gamlárshlaupinu er rætt og farið yfir síðustu æfingarnar fyrir stóra daginn. Nýliðinn kom færandi hendi með tvennar Costco buxur og er brattur fyrir hlaupinu þann 31.12.

    40 min
  • 60'E

    Í 11. þætti hlaðvarpsins Tvær á báti fara Álfrún og Linda yfir alla vegferðina í Valencia. Ekki bara uppgjör á hlaupinu sjálfu heldur öll helstu smáatriðin í ferðinni, allar áhyggjurnar sem geta fylgt maraþonhlaupi kvíðann fyrir veðrinu og klósettferðir.

    1 hr 2 min
  • 85'E

    Í 10. þætti hlaðvarpsins Tvær á báti fá Álfrún og Linda sjálfan Arnar Pétursson einn besta hlaupara landsins og þjálfara þeirra beggja í settið. Í þættinum fara þau yfir lokametrana í vegferðinni til Valencia og ræða undirbúning fyrir maraþon.

    1 hr 24 min
  • 50'E

    í 9. þætti hlaðvarpsins Tvær á báti hringja Álfrún og Linda til Danmerkur og heyra í nýju uppáhalds hlaupafyrirmyndinni sinni, Jónu Dóru Óskarsdóttur. Hún hefur náð þvílíkum bætingum í öllum hlaupavegalengdum og er 53 ára gömul. Alveg svakalega þreyta einkennir Valencia vegferðina og Nafnlausi nýliðinn er örlítilli brekku.

    55 min

About Tvær á báti

From the publisher's feed

Álfrún Tryggvadóttir og Linda Heiðarsdóttir eru tvær miðaldra hlaupakonur sem hafa náð góðum árangri í hlaupum í aldursflokknum 40 – 49 ára. Þær þreytast ekki á að tala um hlaup og setja sér ný…