Umræðan

Umræðan

Download on the App Store

All Umræðan episodes

  • Áhrif COVID-19 á hlutabréfamarkaði og efnahagslífið

    Arnar Ingi Jónsson, Daníel Svavarsson og Sveinn Þórarinsson í Hagfræðideild Landsbankans ræða um áhrif COVID-19 á hlutabréfamarkaði og efnahagslíf hér á landi og erlendis. Rætt er um aðgerðir sem ríkisstjórnin og Seðlabankinn hafa kynnt til að sporna gegn samdrætti, uppnámið sem varð á olíumörkuðum, áhrif á gengi krónunnar og fleira.

    31 min
  • Hlutdeildarlán, kaup TM á Lykli og fjarskiptamarkaðurinn

    Í þættinum ræða Arnar I. Jónsson og Sveinn Þórarinsson við Unu Jónsdóttur um Hlutdeildarlán á fasteignamarkaði. Stjórnvöld hafa boðað frumvarp um hlutdeildarlán, að breskri fyrirmynd, sem er ætlað að auðvelda tekju- og eignalitlum einstaklingum að eignast íbúð. Einnig er fjallað um kaup TM á Lykli og þróun skráðra félaga á fjarskiptamarkaði. Auk þess sem áskoranir í rekstri eru ræddar og rýnt inn í framtíðina. 

    47 min
  • Lucinity og baráttan gegn peningaþvætti

    Í þættinum ræða Arnar og Sveinn við Guðmund Rúnar Kristjánsson stofnanda Lucinity um peningaþvætti og hvaða leiðir eru færar í baráttunni gegn því. Lucinity er íslenskt sprotafyrirtæki sem sérhæfir sig í notkun hjálpargreindar í baráttunni gegn peningaþvætti.

    44 min
  • Staða og horfur hjá Icelandair

    Í þættinum ræða Arnar I. Jónsson og Sveinn Þórarinsson um þróun í rekstri Icelandair undanfarin ár. Þeir velta fyrir sér verðlagningu félagins, áskorunum í rekstri og líta inn í framtíðina.

    44 min
  • Smásala, eldsneyti og stýrivextir

    Í þættinum er fjallað um smásölumarkaðinn á Íslandi og eldsneytismarkaðinn. Rætt er um yfirvofandi orkuskipti og áhrif þeirra á skráð félög á markaði. Auk þess er farið yfir nýlegar stýrivaxtaákvarðanir og horfur næstu misseri

    Markaðsumræðan er vettvangur fyrir verðbréfagreinendur í Hagfræðideild Landsbankans til að koma á framfæri skoðunum sínum og greiningum á félögum á hlutabréfamarkaði og hvernig nýjustu vendingar á mörkuðum og í hagkerfinu geta haft áhrif á félögin. Umfjöllunin á að vera á mannamáli og er tilgangurinn að auka áhuga og umræðu um hlutabréfamarkaði.

    28 min
  • Ungt fólk og íbúðamarkaðurinn

    Íbúðamál geta virst algjör frumskógur við fyrstu sýn. Er betra fyrir ungt fólk að leigja, búa með vinum, í foreldrahúsum eða kaupa íbúð? Ef tekin er ákvörðun um íbúðarkaup, hvernig safnar maður þá fyrir útborgun?

    Landsbankinn í samstarfi við Útvarp 101 fékk Pétur Kiernan, 22 ára háskólanema, til að kynna sér íbúðamál ungs fólks, kosti þess að leigja og kaupa, húsnæðissparnað og viðbótarlífeyrissparnað, sem er ein hagstæðasta leiðin til að spara fyrir útborgun í fyrstu fasteign.

    Í þessu hlaðvarpi ræðir Pétur við Ara Skúlason, hagfræðing hjá Landsbankanum sem svara m.a. spurningunni „Á ég að kaupa íbúð?“.

    Nánar á Umræðunni: https://umraedan.landsbankinn.is/umraedan/samfelagid/ungt-folk-og-ibudamarkadurinn/

    16 min
  • Iceland Airwaves 20 ára

    Iceland Airwaves er 20 ára í ár - eldri en margir sem koma fram á hátíðinni. Enda er hún fyrst og fremst hátíð nýjabrumsins í íslenskri tónlist, tækifæri fyrir unga listamenn til að opna bílskúrshurðina, lofta út og hleypa ljósinu inn.

    Í hlaðvarpi Umræðunnar að þessu sinni ræðir Atli Bollason m.a. sögu Iceland Airwaves, áhrif hennar á íslenska tónlistarmenningu, þróun hátíðarinnar og tækifærin fyrir ungt tónlistarfólk. Viðmælendur hans eru Árni Matthíasson, blaðamaður og tónlistargagnrýnandi, Anna Ásthildur Thorsteinsson, vefstýra Iceland Airwaves, og Katrín Helga Andrésdóttir, tónlistarkona sem hefur starfað með RVK DTR, Hljómsveitt og Special K.

    36 min
  • Fjármál stúdenta: Atvinnumál og atvinnuleit

    Háskólamenntað fólk hefur alltaf haft mjög góðan aðgang að vinnumarkaði. En nú er staðan orðin erfiðari og atvinnuleysi meðal háskólamenntaðra hefur aukist. Í þessu hlaðvarpi er m.a. fjallað um hvernig stúdentar geta undirbúið sig fyrir vinnumarkaðinn og hvað getur mögulega gefið þeim forskot.

    43 min