Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Á Umræðunni, efnis- og fréttaveitu Landsbankans, birtist fjölbreytt umfjöllun um efnahagsmál, fjármál einstaklinga, og fleira.... more
FAQs about Umræðan:How many episodes does Umræðan have?The podcast currently has 67 episodes available.
December 02, 2021Áhrif Ómíkron og nýtt fjárlagafrumvarpÍ hlaðvarpinu fjöllum við um áhrif nýs afbrigðis af kórónuveirunni á fjármálamarkaði, nýtt fjárlagafrumvarp, nýjar upplýsingar um hagvöxt og fleira. Sveinn Þórarinsson, sérfræðingur í markaðsviðskiptum hjá Landsbankanum og dr. Daníel Svavarsson forstöðumaður Hagfræðideildar, taka þátt í umræðunum ásamt Rún Ingvarsdóttur, sérfræðingi í Markaðs- og samskiptadeild bankans....more28minPlay
November 04, 2021Góð uppgjör og loftslagsráðstefnan í GlasgowÍ hlaðvarpinu fjöllum við um lofstlagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Glasgow og hlutverk fjármálageirans í baráttunni við loftslagsbreytingar. Auk þess tölum við um þróunina á fjármálamörkuðum, góð uppgjör hérlendis og erlendis og fleira. Ari Skúlason, hagfræðingur í Hagfræðideild Landsbankans, og Sveinn Þórarinsson, sérfræðingur í markaðsviðskiptum, taka þátt í umræðunum ásamt Rún Ingvarsdóttur, sérfræðingi í Markaðs- og samskiptadeild bankans....more32minPlay
October 21, 2021Ný þjóðhagsspá: Kröftugur efnahagsbati hafinnÍ hlaðvarpinu er ítarlega fjallað um nýja þjóðhagsspá Hagfræðdeildar Landsbankans. Efnahagsbatinn er hafinn af fullum krafti og horfur eru á kröftugum hagvexti 2021 og 2022. Ferðaþjónustan er vöknuð úr dvala, horfur eru á sérstaklega góðri loðnuvertíð og atvinnuleysi heldur áfram að minnka. Töluverðar áskoranir eru í ríkisfjármálum og kröftugur efnahagsbati og þrálát verðbólga munu knýja á um töluverða hækkun stýrivaxta, áður en aðstæður skapast til að lækka þá á nýjan leik.Una Jónsdóttir, sérfræðingur í fasteignamarkaðnum og Dr. Daníel Svavarsson, forstöðumaður Hagfræðideildar, taka þátt í umræðunum ásamt Rún Ingvarsdóttur, sérfræðingi í Markaðs-og samskiptadeild bankans....more40minPlay
October 14, 2021Jákvæð tíðindi af sjávarútvegi og ferðaþjónustuÍ hlaðvarpinu er rætt um efnahagshorfur, þróun á fjármálamörkuðum og ferðaþjónustuna. Meðal annars er komið inn á nýja verðbólguspá Hagfræðideildar, áhrif síðustu stýrivaxtahækkunar, hækkandi bensínverð og álverð, minnkandi atvinnuleysi og áhrif góðrar loðnuvertíðar á hagvöxt.Dr. Daníel Svavarsson, forstöðumaður Hagfræðideildar Landsbankans, Sveinn Þórarinsson, sérfræðingur í markaðsviðskiptum og Gústaf Steingrímsson, sérfræðingur í Hagfræðideild taka þátt í umræðunum ásamt Rún Ingvarsdóttur, sérfræðingi í Markaðs-og samskiptadeild bankans....more33minPlay
October 01, 2021Efnahagshorfur og hækkun fasteignaverðsÍ hlaðvarpinu er rætt um efnahagshorfur, þróun á fjármálamörkuðum og fasteignamarkaðinn. Meðal annars er komið inn á mikið líf á innlendum hlutabréfamarkaði, hækkandi fasteignaverð sem drífur verðbólguna áfram, breytt neyslumynstur ferðamanna og að Hagfræðideild bankans geri ráð fyrir hækkun stýrivaxta um 0,25 prósentustig við næstu stýrivaxtaákvörðun. Sveinn Þórarinsson, sérfræðingur í markaðsviðskiptum hjá Landsbankanum, Una Jónsdóttir einn okkar helsti sérfræðingur í fasteignamarkaðnum og Dr. Daníel Svavarsson, forstöðumaður Hagfræðideildar, taka þátt í umræðunum ásamt Rún Ingvarsdóttur, sérfræðingi í Markaðs-og samskiptadeild bankans....more35minPlay
May 27, 2021Ítarleg umfjöllun um nýja þjóðhagsspáÍ hlaðvarpinu er farið yfir nýja þjóðhags- og verðbólguspá Hagfræðideildar 2021-2023. Gert er ráð fyrir að efnahagsbatinn hefjist fyrr en áður var spáð og að landsframleiðslan vaxi um tæp 5% á árinu. Góður gangur í bólusetningum, bæði innanlands og í helstu viðskiptalöndum, bendir til þess að ferðaþjónustan taki fyrr við sér en áður var reiknað með....more33minPlay
April 29, 2021Hvað er að gerast á fasteignamarkaði?Í þættinum er farið yfir þróunina á innlendum fjármálamörkuðum. M.a. er rætt um verðbólguhorfur og aukna bjartsýni vegna bólusetninga. Una Jónsdóttir, sérfræðingur í Hagfræðideild Landsbankans og einn helsti sérfræðingur okkar um fasteignamarkaðinn, ræðir ítarlega um þróunina á þeim markaði. Hún bendir á að eftirspurn sé ekki sama og þörf. Íbúðaþörf hafi í raun dregist saman þótt eftirspurn sé mikil og verð hækki. Varasamt sé að byggja inn í eftirspurn sem jókst skyndilega og skynsamlegt væri að horfa í gegnum skammtímasveiflur og byggja í takt við langtímaþörf....more31minPlay
March 19, 2021Efnahagshorfur, vaxtahækkanir í BNA og aukinn áhugi á hlutabréfumÍ þættinum er farið yfir þróunina á innlendum fjármálamörkuðum í stuttu máli. Rætt er við Dr. Daníel Svavarsson og Gústaf Steingrímsson frá Hagfræðideild Landsbankans, um horfur í þjóðarbúskapnum á þessu ári. Einnig er farið yfir hvernig árinu 2020 lauk miðað við upphaflegar spár. Við ræðum hækkandi vexti í Bandaríkjunum og hugsanleg áhrif á alþjóðavettvangi. Að lokum skoðum við aukinn áhuga almennings á fjárfestingu í hlutabréfum....more37minPlay
February 19, 2021Hvernig á að byrja að spara og fjárfesta?Hvenær og hvernig er best að byrja að spara eða fjárfesta? Hvar liggja tækifærin? Hvernig er hægt að fá betri ávöxtun og meta áhættuna? Elín Dóra Halldórsdóttir, viðskiptastjóri Eignastýringar Landsbankans, ræðir við Ægi Örn Gunnarsson, starfandi forstöðumann Eignastýringar og Guðnýju Erlu Guðnadóttur, sjóðstjóra hjá Landsbréfum....more33minPlay
February 04, 2021Salan á Íslandsbanka, Gamestop og verðbréfamarkaðurinnÍ þættinum er farið yfir sölu ríkisins á Íslandsbanka og muninn á stóru bönkunum þremur. Auk þess er farið yfir þróun mála í Bandaríkjum hvað varðar Gamestop og svipuð fyrirtæki. Þórunn Björk Steingrímsdóttir verðbréfamiðlari hjá Landsbankanum kíkir í heimsókn og ræðir um markaðinn og hennar vegferð í heim verðbréfamiðlara. ...more51minPlay
FAQs about Umræðan:How many episodes does Umræðan have?The podcast currently has 67 episodes available.