Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Á Umræðunni, efnis- og fréttaveitu Landsbankans, birtist fjölbreytt umfjöllun um efnahagsmál, fjármál einstaklinga, og fleira.... more
FAQs about Umræðan:How many episodes does Umræðan have?The podcast currently has 67 episodes available.
September 28, 2022Ekki nóg að huga bara að fjárhagnumÞað er ekki lengur nóg fyrir fjármálafyrirtæki að huga eingöngu að fjárhagslegum þáttum og birta aðeins upplýsingar um fjárhagslega þætti. Samfélagið ætlast til þess að þau hafi jákvæð samfélagsleg áhrif og þessi þáttur í upplýsingagjöfinni er ekki síður mikilvægur að mati Tjeerd Krumpelman alþjóðasviðsstjóra í sjálfbærni hjá hollenska bankanum ABN AMRO sem er gestur hlaðvarpsins.Tjeerd annast m.a. sjálfbærniráðgjöf hjá ABN AMRO sem er í fararbroddi fjármálafyrirtækja í sjálfbærni og hefur verið leiðandi í að meta áhrif af lánum og fjárfestingum bankans (e. impact assessment). Þannig geti bankinn í senn unnið að sjálfbærni og minnkað áhættu til langs tíma.Hann ræðir við Aðalheiði Snæbjarnardóttur, sjálfbærnistjóra Landsbankans og Rún Ingvarsdóttur, sérfræðing í samskiptamálum hjá bankanum....more24minPlay
September 07, 2022Staðan versnar áður en hún batnar - James Ashley frá Goldman SachsVerðbólgan er erfið viðureignar. Seðlabankar heims hækka vexti og víða er hætta á samdrætti. Við fengum til okkar góðan gest, James Ashley frá eignastýringu Goldman Sachs og ræddum við hann um horfur á markaði og efnahagsmálin í alþjóðlegu samhengi.Ashley er forstöðumaður stefnumála og ráðgjafalausna fyrir Evrópu, Miðausturlönd, Afríku og Asíu hjá eignastýringu Goldman Sachs. Hann ræðir við Unu Jónsdóttur, forstöðumann Hagfæðudeildar og Rún Ingvarsdóttur, sérfræðing í samskiptamálum hjà bankanum....more35minPlay
August 24, 2022Hvaða áhrif hefur stýrivaxtahækkun?Hvað þýðir það að stýrivextir hækki og hvaða áhrif hefur það á fólkið í landinu? Hvernig hafa vaxtahækkanir áhrif á verðbólgu og af hverju fer kaupmáttur lækkandi? Hvernig er staðan í löndunum í kringum okkur og hver er reynslan af því að lækka vexti í mikilli verðbólgu?Í hlaðvarpinu ræða Gústaf Steingrímsson og Ari Skúlason, hagfræðingar hjá Landsbankanum, við Rún Ingvarsdóttur sérfræðing á samfélagssviði bankans, um stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans, vinnumarkaðinn, verðbólguhorfur og þróun efnhagslífsins. ...more24minPlay
May 19, 2022Hagvöxtur í skugga verðbólguÍ hlaðvarpinu ræðum við um nýja hagspá Hagfræðideildar Landsbankans. Almennt má segja að útlitið sé bjart og gert er ráð fyrir 5,1% hagvexti í ár sem er drifinn áfram af fjölgun ferðamanna. Búist er við metfjölda ferðamanna í lok spátímabilsins. Gert er ráð fyrir að Seðlabankinn muni bregðast við meiri og þrálátari verðbólgu með því að hækka vexti verulega, áður en hægt verður að lækka vexti á nýjan leik. Það flækir stöðuna talsvert að kjarasamningar eru lausir, á sama tíma og verðbólgudraugurinn herjar á landann....more22minPlay
May 05, 2022Af hverju eru stýrivextir að hækka?Af hverju er Seðlabankinn að hækka vexti um heilt prósentustig og hvaða áhrif hefur það á efnahagslífið og fólkið í landinu? Af hverju tekur Seðlabankinn þetta stóra skref núna og hvernig lítur framhaldið út varðandi verðbólgu og efnahagsþróun? Í hlaðvarpinu ræða Gústaf Steingrímsson hagfræðingur hjá Landsbankanum, Ægir Örn Gunnarsson sérfræðingur í verðbréfaviðskiptum og Rún Ingvarsdóttir sérfræðingur á Samfélagssviði hjá bankanum, um efnahagsmál og þróunina á fjármálamörkuðum....more24minPlay
April 07, 2022Íbúðauppbygging á tímum verðhækkana. Hvert stefnum við?Í hlaðvarpinu ræðum við um þróunina á fasteignamarkaði og íbúðauppbyggingu á tímum mikilla verðhækkana. Markaðurinn kallar á hagkvæmara og sjálfbærara húsnæði, hvatinn til uppbyggingar hefur sjaldan verið meiri en hvað gerist ef að eftirspurnin hættir skyndilega? Áhrifin af hækkandi húsnæðisverði og óvissa úti í heimi veldur hárri verðbólgu, vextir hækka, og er til nægt húsnæði fyrir aukinn fólksflutning?Una Jónsdóttir, aðalhagfræðingur bankans og sérfræðingur í fasteignamarkaðinum, og Dóra Gunnarsdóttir viðskiptastjóri Mannvirkjafjármögnunar, ræða málin ásamt Rún Ingvarsdóttur, sérfræðingi í samskiptamálum....more19minPlay
March 24, 2022Hækkandi fasteignaverð og salan á ÍslandsbankaÍ hlaðvarpinu er rætt um þróunina á fjármálamörkuðum erlendis og hér heima, söluna á hlut ríkisins í Íslandsbanka, hækkandi fasteignaverð og fleira. Ægir Örn Gunnarsson, sérfræðingur í verðbréfaviðskiptum hjá Landsbankanum og Una Jónsdóttir forstöðumaður Hagfræðideildar taka þátt í umræðunum ásamt Rún Ingvarsdóttur, sérfræðingi í samskiptamálum hjá bankanum....more27minPlay
March 10, 2022Efnahagsleg áhrif stríðsins í ÚkraínuÍ hlaðvarpinu ræðum við um efnahagsleg áhrif stríðsins í Úkraínu, viðskiptaþvinganir og þróunina á hlutabréfamarkaði hér heima og erlendis. Mikil óvissa ríkir, sveiflur á mörkuðum, olíuverð er í hæstu hæðum og verðbólguhorfur versna. Ægir Örn Gunnarsson, sérfræðingur í verðbréfaviðskiptum hjá Landsbankanum, og hagfræðingarnir Ari Skúlason og Gústaf Steingrímsson taka þátt í umræðunum ásamt Rún Ingvarsdóttur, sérfræðingi í samskiptamálum hjá bankanum....more27minPlay
February 10, 2022Efnahagshorfur og stýrivaxtahækkunÍ hlaðvarpinu er fjallað um þróunina á hlutabréfamarkaði, verðbólgu hér heima og erlendis og stýrivaxtahækkun Seðlabanka Íslands um 0.75 prósentustig. Ægir Örn Gunnarsson, sérfræðingur í verðbréfaviðskiptum hjá Landsbankanum, dr. Daníel Svavarsson, forstöðumaður Hagfræðideildar og Gústaf Steingrímsson hagfræðingur, taka þátt í umræðunum ásamt Rún Ingvarsdóttur, sérfræðingi í samskiptamálum hjá bankanum....more30minPlay
January 27, 2022Hækkandi fasteignaverð og yfirvofandi vaxtahækkanir í BNAÍ hlaðvarpinu er rætt um þróunina á fjármálamörkuðum erlendis og hér heima, áhrif vaxtahækkana í Bandaríkjunum, hækkandi fasteignaverð, atvinnumarkaðinn og efnahagshorfur. Ægir Örn Gunnarsson, sérfræðingur í verðbréfaviðskiptum hjá Landsbankanum, dr. Daníel Svavarsson, forstöðumaður Hagfræðideildar og Una Jónsdóttir, okkar helsti sérfræðingur um fasteignamarkaðinn, taka þátt í umræðunum ásamt Rún Ingvarsdóttur, sérfræðingi í samskiptamálum hjá bankanum....more27minPlay
FAQs about Umræðan:How many episodes does Umræðan have?The podcast currently has 67 episodes available.