Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Á Umræðunni, efnis- og fréttaveitu Landsbankans, birtist fjölbreytt umfjöllun um efnahagsmál, fjármál einstaklinga, og fleira.... more
FAQs about Umræðan:How many episodes does Umræðan have?The podcast currently has 67 episodes available.
June 12, 2024Þarftu að endurfjármagna?Fjölmargir lántakendur standa frammi fyrir því að fastir vextir á íbúðalánum þeirra eru að losna og horfa fram á að taka ákvörðun um hvað skuli gera næst. Í þætti Umræðunnar förum við yfir stöðuna, hvernig endurfjármögnun virkar og kynnum nýja lausn í appinu sem gerir endurfjármögnun þægilegri....more25minPlay
June 04, 2024Aukin verðbólga og 4% samdrátturVerðbólga var umfram spár í maí og jókst milli mánaða. Hagkerfið dróst saman um 4% á fyrsta ársfjórðungi og þar með varð samdráttur í fyrsta sinn síðan í byrjun árs 2021.Hagfræðingarnir Hildur Margrét Jóhannsdóttir, Hjalti Óskarsson og Una Jónsdóttir ræða stöðuna í efnahagsmálum í nýjasta hlaðvarpsþætti Umræðunnar....more20minPlay
May 03, 2024Þrautseigt hagkerfi við háa vextiHagfræðideild spáir því í nýrri hagspá að enn sé þó nokkur bið eftir fyrstu vaxtalækkun. Verðbólgan hjaðni smám saman á næstu árum og efnahagsumsvif aukist eftir því sem vextir lækka.Hagfræðingarnir Hildur Margrét Jóhannsdóttir, Hjalti Óskarsson og Una Jónsdóttir ræða hagspána í nýjasta hlaðvarpsþætti Umræðunnar. ...more24minPlay
March 21, 2024Lengist biðin eftir vaxtalækkun?Seðlabankinn hélt vöxtum óbreyttum á miðvikudag og sló harðari tón en búist var við. Markaðsaðilar gerðu flestir ráð fyrir að vaxtalækkunarferli gæti hafist í maí, en lengist biðin kannski fram í haust? Hvað þarf að gerast áður en hægt verður að slaka á taumhaldinu?...more22minPlay
February 15, 2024Stormasamt stjórnmálaár og varkár vaxtalækkunJames Ashley, forstöðumaður markaða og stefnumála í Goldman Sachs, er gestur í nýjasta þætti Umræðunnar. Hann ræðir efnahagshorfur í heiminum, óvissuþætti í tengslum við komandi kosningar í Bandaríkjunum og ólgu í alþjóðastjórnmálum.Karítas Ríkharðsdóttir, sérfræðingur í Samskiptum, stýrir þættinum og með henni er Hildur Margrét Jóhannsdóttir hagfræðingur....more32minPlay
February 02, 2024Vaxtalækkun ólíkleg þótt verðbólga hjaðniHagfræðideild Landsbankans spáir því að vöxtum verði haldið óbreyttum í næstu viku. Þótt verðbólguhorfur hafi batnað stígi peningastefnunefnd varlega til jarðar, ekki síst í ljósi óvissu í tengslum við náttúruhamfarir og kjaraviðræður.Hagfræðingarnir Hildur Margrét Jóhannsdóttir og Hjalti Óskarsson ræða meðal annars vaxta- og verðbólguhorfur í nýjasta hlaðvarpsþætti Umræðunnar....more22minPlay
December 08, 2023Íbúðaverð á uppleið en hægir á hagvextiVerðbólguhorfur hafa versnað lítillega á síðustu vikum. Seðlabankinn hefur haldið stýrivöxtum óbreyttum í vetur, íbúðaverð er aftur á uppleið en hagvöxtur er mun minni en í upphafi árs. Hagfræðideildin ræðir þetta og fleira í nýjasta hlaðvarpsþættinum....more19minPlay
October 19, 2023Spjall um spá: Hagkerfi í leit að jafnvægiHófstilltur hagvöxtur, háir vextir og hjaðnandi verðbólga. Þetta er á meðal þess sem einkennir efnahaginn næstu ár, samkvæmt nýrri hagspá Hagfræðideildar Landsbankans. Í nýjasta þætti Umræðunnar ræða hagfræðingarnir Hildur Margrét Jóhannsdóttir og Hjalti Óskarsson efnahagshorfurnar og fara yfir það helsta úr spánni. ...more21minPlay
June 27, 2023Rými til bætinga í fjármálum ungs fólksFjármál ungs fólks hafa verið sérstaklega til umfjöllunar hjá fræðsludeild Landsbankans að undanförnu.Helgi Teitur Helgason, framkvæmdastjóri einstaklingssviðs Landsbankans, og Guðrún H. Bjarnadóttir, sérfræðingur í viðskiptalausnum, ræða við Karítas Ríkharðsdóttur um hvað gögn bankans segja um fjárhagsstöðu ungs fólks.Meðal annars kemur fram að nokkuð sé um að ungt fólk geymi háar fjárhæðir á veltureikningum og að ungir karlar fjárfesti í hlutabréfum í meiri mæli en ungar konur. Þá eru ungar konur síður skráðar einar fyrir fasteignalánum....more35minPlay
June 13, 2023Hagvöxtur, spenna á vinnumarkaði og þrálát verðbólgaFjölgun ferðamanna og aukin einkaneysla eru á meðal þeirra þátta sem halda uppi hagvexti. Laun hafa hækkað, enda spenna á vinnumarkaði og skortur á starfsfólki. Þrátt fyrir háa vexti kyndir kröftug eftirspurn undir verðbólgu, sem þó vonandi er á niðurleið.Hagfræðingarnir Hildur Margrét Jóhannsdóttir og Hjalti Óskarsson spjalla um þetta og ýmislegt fleira í nýjasta þætti Umræðunnar....more16minPlay
FAQs about Umræðan:How many episodes does Umræðan have?The podcast currently has 67 episodes available.