Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Á Umræðunni, efnis- og fréttaveitu Landsbankans, birtist fjölbreytt umfjöllun um efnahagsmál, fjármál einstaklinga, og fleira.... more
FAQs about Umræðan:How many episodes does Umræðan have?The podcast currently has 67 episodes available.
January 14, 2021Af hverju hækkuðu hlutabréf og fasteignir í heimsfaraldri?Í þættinum er fjallað um hlutabréfa-, skuldabréfa og gjaldeyrismarkaðinn á árinu 2020. Rætt er um það sem mörgum kann að koma spánskt fyrir sjónir, að hlutabréfamarkaðir hækkuðu í miðjum heimsfaraldri. Una Jónsdóttir, sérfræðingur í Hagfræðideild Landsbankans og einn helsti sérfræðingur okkar um fasteignamarkaðinn ræðir þróunina á þeim markaði á árinu 2020 og horfurnar....more43minPlay
December 16, 2020Fjármálamarkaðir, vinnumarkaðurinn og ríkisfjármál.Í þættinum er farið yfir þróunina á innlendum fjármálamörkuðum. Einnig er farið yfir þróunina í nýskráningum í Bandaríkjanum þar sem sérstaklega er litið til eins fyrirtækis með íslenska tengingu. Auk þess er rætt við Ara Skúlason frá Hagfræðideild Landsbankans um stöðuna á íslenska vinnumarkaðnum og ríkisfjármál....more46minPlay
December 03, 2020Krónan, gjaldeyrismarkaðurinn og óvænt vaxtaákvörðun SeðlabankansÍ þættinum er farið yfir þróunina á innlendum fjármálamörkuðum í nóvember, nýjustu verðbólgutölur frá Hagstofunni, hagvaxtartölur á þriðja fjórðungi og síðustu vaxtaákvörðun Seðlabankans. Að auki er rætt við Stefni Kristjánsson hjá gjaldeyrisviðskiptum Landsbankans um gjaldeyrismarkaðinn og þróunina á íslensku krónunni að undanförnu....more33minPlay
November 27, 2020Sjálfbærni og græn fjármálÍ þættinum er fjallað um sjálfbær fjármál frá ýmsum hliðum. Hvað eru græn skuldabréf og regnbogafjármögnun? Hver eru raunveruleg umhverfisáhrif fjármálafyrirtækja og hver er þróunin í ábyrgum fjárfestingum? Rætt er við Hrefnu Ösp Sigfinnsdóttur, framkvæmdastjóra eignastýringar og miðlunar hjá Landsbankanum og Reyni Smári Atlason, sérfræðing bankans í sjálfbærni....more39minPlay
October 21, 2020Hagspá Landsbankans og fasteignamarkaðurinnÍ þættinum er rætt við Daníel Svavarsson, forstöðumann Hagfræðideildar og Unu Jónsdóttur sérfræðing, um nýja hagspá Landsbankans. Farið er yfir stöðu og horfur í efnahagsmálum og sérstaklega rætt um fasteignamarkaðinn. Ný þjóðhags- og verðbólguspá Hagfræðideildar Landsbankans fyrir árin 2020 -2023 var birt þann 20. október....more37minPlay
October 19, 2020Ungir fjárfestar: Sparnaður og fjárfestingar – að byggja upp eignasafnÍ þessu hlaðvarpi er fjallað um fjárfestingar út frá sjónarhorni ungs fólks. Hvernig byrjar maður að fjárfesta og af hverju ungt fólk ætti að huga að sparnaði. Meðal annars er rætt um mikilvægi eignardreifingar, hvernig megi fjárfesta með ábyrgum hætti og að ekki megi missa sjónar af áhættunni. ...more40minPlay
May 15, 2020Efnahagsáfall aldarinnar - ný hagspá HagfræðideildarArnar Ingi Jónsson, Daníel Svavarsson og Gústaf Steingrímsson fjalla um nýja hagspá Hagfræðideildar Landsbankans sem gefin var út 15. maí. Samkvæmt spánni mun landsframleiðsla dragast saman um tæplega 9% á árinu 2020 en við taki hægur bati. Mikil óvissa sé þó um efnahagshorfur....more25minPlay
March 11, 2020Áhrif COVID-19 á hlutabréfamarkaði og efnahagslífiðArnar Ingi Jónsson, Daníel Svavarsson og Sveinn Þórarinsson í Hagfræðideild Landsbankans ræða um áhrif COVID-19 á hlutabréfamarkaði og efnahagslíf hér á landi og erlendis. Rætt er um aðgerðir sem ríkisstjórnin og Seðlabankinn hafa kynnt til að sporna gegn samdrætti, uppnámið sem varð á olíumörkuðum, áhrif á gengi krónunnar og fleira....more31minPlay
December 17, 2019Hlutdeildarlán, kaup TM á Lykli og fjarskiptamarkaðurinnÍ þættinum ræða Arnar I. Jónsson og Sveinn Þórarinsson við Unu Jónsdóttur um Hlutdeildarlán á fasteignamarkaði. Stjórnvöld hafa boðað frumvarp um hlutdeildarlán, að breskri fyrirmynd, sem er ætlað að auðvelda tekju- og eignalitlum einstaklingum að eignast íbúð. Einnig er fjallað um kaup TM á Lykli og þróun skráðra félaga á fjarskiptamarkaði. Auk þess sem áskoranir í rekstri eru ræddar og rýnt inn í framtíðina. ...more47minPlay
December 10, 2019Lucinity og baráttan gegn peningaþvættiÍ þættinum ræða Arnar og Sveinn við Guðmund Rúnar Kristjánsson stofnanda Lucinity um peningaþvætti og hvaða leiðir eru færar í baráttunni gegn því. Lucinity er íslenskt sprotafyrirtæki sem sérhæfir sig í notkun hjálpargreindar í baráttunni gegn peningaþvætti....more44minPlay
FAQs about Umræðan:How many episodes does Umræðan have?The podcast currently has 67 episodes available.