Úti

Úti

By Búi Bjarmar Aðalsteinsson og Kristín Ýr LyngdalSportsWilderness
Download on the App Store

Úti episodes

  • 8. Óhjólandi grísir

    Þáttur númer 8 er samsuða tveggja hlaðvarpsþátt - Hjólavarpið og Grísirnir þrír.

    Í þættinum er farið yfir hvernig grísunum gengur að hjóla og farið síðan um víðan völl, bæði tengt hjólreiðum og mörgu örðu.

    Að grísunum standa félagarnir Guðmundur Einar, Guðmundur Felixsson og Pálmi Freyr Hauksson. Grísirnir þrír er illa skipulagt grínpodcast sem er mjög gaman að hlusta á. Í þáttunum eru ýmsir skemmtilegir liðir en það sem stendur uppúr er spruðlið milli þáttastjórnendanna. Ég hef þekkt þáttastjórnendur í nokkurn tíma og kynntist þeim eflaust best þegar ég var hluti af sýningarhóp improv ísland. Ég mæli eindregið með því að hlusta á Grísina sem gefa út nýja þætti í hverri viku. 

    1 hr 6 min
  • 7. Reiðhjólabændur

    Þátturinn fjallar um Reiðhjólabændur sem eru félagasamtök hjólreiðafólks og hafa verið virk í umræðu um hjólreiðaöryggi ásamt því að koma að ýmsum átaksverkefnum, fræðslu og innanbæjarsamhjóli. Í þættinum er rætt við Birgi Birgison sem er ein aðalsprautan í samtökunum um þessar mundir.  Félagið var stofnað fyrir um 15 árum síðan og hefur vaxið og breyst umtalsvert á þeim tíma.

    Í þættinum ræðum við um samgöngumál á Íslandi, breytingar sem hafa orðið og þau mál sem þarf að bregðast við svo að hjól verði útbreiddari.

    Hjólavarpið er í boði Örnu

    33 min
  • 6. Sönn Íslensk Hjólamál - Glundroði á Grenimel

    Í þessum þætti spjalla Búi og Arna um æfingar, keppnir og lífið í Ástralíu. Arna segir frá svaðilför með nýju vinkonu sinni Glam-Ma og tilraunum sínum við að hitta hjólavinkonu sína Tiffany Cromwell og fylgifisk hennar Valtteri Bottas.

    Síðar í þættinum snúum við okkur svo að hjólaráni sem átti sér stað á Grenimel. Þar er farið yfir atburði ránsins og eftirmála.

    Hjólavarpið er í boði Örnu

    43 min
  • 5. Samgönguhjólreiðar

    Í þessum þætti förum við yfir samgönguhjólreiðar og ræðum við Jökul Sólberg Auðunsson og Brynhildi Bolladóttur sem eru bæði virkir samgönguhjólarar. Jökull hefur lengi skrifað um samgöngur og skipulag í fréttabréfinu Reykjavík Mobility og haldið úti síðunni örflæði.is þar sem hægt er bera saman rafhjól sem seld eru á Íslandi. Brynhildur varð nýlega virk í umræðunni um hjól þar sem hún hélt erindið „Bara venjuleg gella á hjóli“ á viðburðinum Léttum á umferðinni sem var á vegum Reykjavíkurborgar og fjallaði um samgöngumál í borginni. Þau fara bæði yfir sína vegferð og sömuleiðis stærra samhengið, hjólamenningu og innviði.

    Hjólavarpið er í boði Örnu.

    53 min
  • 2. Tempúr koddi

    Við förum yfir fyrstu æfingar á erlendri grundu og hugleiðingar um hjólreiðamenningu í Þýskalandi. Eins kíkjum við í heimsókn til kírópaktorsins míns.

    Hjólavarpið er í boði Örnu

    43 min
  • 4. Mælingar

    Í þessum þætti förum við aðeins yfir uppleggið í þáttunum og dembum okkur síðan í mælinga pælingar. Við skeltum okkur í álagsmælingu í Greenfit og förum aðeins yfir það og tökum svo stöðuna á æfingum hjá Búa og Örnu sem er komin til Ástralíu.

    Ef þig langar í lungna- og álagsmælingu geturu fengið 20% afslátt með því að nota kóðan HJOLAVARPID.

    Hjólavarpið er í boði Örnu.

    59 min
  • 3. Að byrja að hjóla

    Í þessum þætti segir Arna okkur frá því þegar hún byrjaði að hjóla. Í seinnihluta þáttar förum við síðan yfir stöðuna í hjólaæfingavegferðinni hjá Búa. Tölum um FTP og hvað það er og síðan mikilvægi þess að snúa fótunum hratt.


    Hjólavarpið er í boði Örnu

    27 min
  • 1. Ágætis byrjun

    Hjólavarpið er í boði Örnu.

    Búi og Arna fjalla um vegferð mína við það að byrja að æfa hjólreiðar og vegferð Örnu í undirbúningi fyrir Ólimpíuleika og fleira. Samhliða því verður umfjöllun og viðtöl við fjölbreytt fólk sem nýtir hjólreiðar bæði sem samgöngutæki og hreyfingu.

    25 min

About Úti

From the publisher's feed

ÚTI er hlaðvarp um útivist, ævintýri og fólkið sem er alltaf að finna sér eitthvað til að brasa úti. Í þáttunum er farið yfir fjallamennsku, hjólreiðar, ferðalög, hálendið, náttúruna og alls konar sögur úr íslenskri útivist. Umsjónarmenn eru Búi Bjarmar Aðalsteinsson og Kristín Ýr Lyngdal.