Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Hjónin Róbert Marshall og Brynhildur Ólafsdóttir fjalla um allt sem snýr að hreyfingu, útivist og áskoranir. Ætlunin er að kafa dýpra í eilífðarviðfangsefni alls útivistarfólks eins og þjálfun, næring... more
FAQs about Útivarp:How many episodes does Útivarp have?The podcast currently has 37 episodes available.
April 07, 2020LeiðangrarHjónin Róbert Marshall og Brynhildur Ólafsdóttir fjalla um allt sem snýr að hreyfingu, útivist og áskoranir. Gestir þeirra erj Vilborg Arna og John Snorri. Stóru ævintýrin og fólkið sem leggur af stað í þau. Hvað þarf til og hvers vegna ekki bara að vera heima á sófanum?...more1h 18minPlay
April 07, 2020Þol og næringHjónin Róbert Marshall og Brynhildur Ólafsdóttir fjalla um allt sem snýr að hreyfingu, útivist og áskoranir. Gestir þeirra eru Elísabet Margeirs og Lukka Pálsdóttir. Hvað á maður að borða til að duga langt? Um það eru skiptar skoðanir og við heyrum nokkrar þeirra....more1h 18minPlay
April 07, 2020HjólaferðalögHjónin Róbert Marshall og Brynhildur Ólafsdóttir fjalla um allt sem snýr að hreyfingu, útivist og áskoranir. María Ögn Guðmundsdóttir og Kjartan Long er gestir þáttarins. Allt um hjólreiðar í spjalli við þetta hressa hjólafólk. Meðal annars hvernig á að viðhalda góðri klofheilsu....more1h 3minPlay
April 07, 2020Fjöllin kallaHjónin Róbert Marshall og Brynhildur Ólafsdóttir fjalla um allt sem snýr að hreyfingu, útivist og áskoranir. Gestir þeirra eru Þorvaldur V. Þórsson og Jón Gauti Jónsson sem ræða um fjöll. Þetta eru svakalegar sögur af fjallafrekum stórum og smáum. Hundraðshöfðingin Olli og fjallaleiðsögumaður Íslands, Jón Gauti Jónsson, flytja fjöll....more1h 7minPlay
April 07, 2020Göngur, langar og stuttarHjónin Róbert Marshall og Brynhildur Ólafsdóttir fjalla um allt sem snýr að hreyfingu, útivist og áskoranir. Göngur, langar og stuttar. Allt um það að koma sér yfir þröskuldinn og út að ganga í styttri göngur sem síðan lengjast út í það óendanlega. Gestir þáttarins eru Rósa Sigrún Jónsdóttir og Páll Ásgeir Ásgeirsson....more1h 18minPlay
January 20, 202018. Vitaverðirnir á Flannan eyjumFlannan-eyjur eru örlítill eyjaklasi sem tilheyrir Ytri-Suðureyjum í Skotlandi - varla meira en sker og hólmar sem rísa upp úr Norður-Atlantshafi. Þar eru engir mannabústaðir og engin mannvirki að finna fyrir utan það að á einni eyjunni, þeirri stærstu, stendur viti. Í þessum vita gerðist dularfullur atburður í desembermánuði árið 1900. Í miklu illviðri slökknaði á vitanum og þrír vitaverðir hurfu sportlaust. Hrifsaði sjórinn mennina til sín - eða gerðist eitthvað ennþá verra á þessum afskekkta stað?...more0minPlay
January 13, 202017. Týnda borgin í AmazonÁrið 1925 lagði breski landkönnuðurinn Percy Fawcett af stað inn í Amazon-regnskóginn í Brasilíu í leit að rústum höfuðborgar horfinnar siðmenningar, sem hann kallaði týndu borgina Zetu. Þessarar borgar er einungis getið í einu gulnuðu handriti frá átjándu öld, en Fawcett var handviss um að hana væri að finna einhverstaðar djúpt inni í regnskógarþykkninu - og varð heltekinn af þeirri tilhugsun um að sjá borgina með eigin augum....more0minPlay
January 06, 202016. Líkið í álminumVorkvöld eitt árið 1943 voru nokkrir táningspiltar á flækingi um skóg í nágrenni borgarinnar Birmingham í Bretlandi, í leit að fugslhreiðrum. En í stað hreiðra fundu þeir beinagrind ungrar konu, sem var falin inni í holum álmi í útjaðri skógarins. Nokkru síðar birtust svo torkennilegt veggjakrot í bæjum í nágrenni skógarins og ljóst einhver vissi meira um líkið í álminum en hann lét uppi. Rannsókn lögreglu stóð í áratugi, og komu þar við sögu nornir, njósnarar og kabarettsöngvarar....more0minPlay
December 30, 201915. Dauðsfallið á SuðurskautslandinuÞað er varla nokkur staður á jörðinni afskekktari og einangraðri en Amundsen-Scott-rannsóknarstöðin á Suðurskautslandinu. Yfir heimskautaveturinn er þar stöðugt myrkur, stöðugt hvassviðri og svo mikið frost að enginn flugvél getur lent þar. Þeir vísindamenn sem þar dvelja yfir vetrartímann búa í því algerri einangrun og kolniðamyrkri mánuðum saman, og eiga sér engrar undankomu auðið. Það var eina slíka eilífa vetrarnótt sem dularfullt dauðsfall átti sér stað í Amundsen-Scott-rannsóknarstöðinni....more0minPlay
December 23, 201914. Aleppó handritiðEitt dýrmætasta fornhandrit Gyðingdómsins, sem talið er vera eitt fullkomnasta eintak af hebresku biblíunni sem til er, Aleppó-handritið, er geymt við stranga öryggisgæslu í neðanjarðarhvelfingu á þjóðminjasafni Ísraelsríkis í Jerúsalem. Handritið er kallað Aleppó-handritið því í meira en sex hundruð ár geymdu Gyðingar í sýrlensku borginni Aleppó handritið eins og sjáaldur augna sinna....more0minPlay
FAQs about Útivarp:How many episodes does Útivarp have?The podcast currently has 37 episodes available.