Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Hjónin Róbert Marshall og Brynhildur Ólafsdóttir fjalla um allt sem snýr að hreyfingu, útivist og áskoranir. Ætlunin er að kafa dýpra í eilífðarviðfangsefni alls útivistarfólks eins og þjálfun, næring... more
FAQs about Útivarp:How many episodes does Útivarp have?The podcast currently has 37 episodes available.
December 16, 201913. Eitraða konanKvöld eitt árið 1994 veiktust tugir starfsmanna á bráðamóttöku sjúkrahúss í Kaliforníu, fengu heiftarleg flog og misstu meðvitund í hrönnum. Veikindi þeirra virtust tengjast komu ungrar krabbameinssjúkrar konu á bráðamóttökuna fyrr um kvöldið. Grunur lék á að einhverskonar dularfullar eiturgufur hafi lagt frá konunni, en enginn botn fékkst í málið fyrr en kjarnefnafræðingar voru fengnir til rannsóknar....more0minPlay
December 09, 201912. Morðið við refaturninnÁ köldum vetrarmorgni í janúar 1937 fannst illa útleikið lík ungrar, evrópskrar stúlku í útjaðri gömlu Peking. Rannsókn lögreglu á dauða hennar bar lítinn árangur, enda voru flestir Pekingbúar frekar með hugann við yfirvofandi innrás Japana en dularfullan dauðdaga ungrar stúlku. En faðir hennar, fyrrverandi konsúll á áttræðisaldri, gafst ekki svo auðveldlega upp....more0minPlay
December 02, 201911. Konan í ÍsdalnumÁ fallegum vetrardegi 1970 rakst maður á göngu um Ísdalinn í nágrenni Bergen á illa brunnið lík konu í fjallshlíðinni. Við eftirgrennslan lögreglu kom í ljós að mánuðina fyrir andlát sitt hafði konan ferðast vítt og breitt um Noreg og Evrópu, en notast á ferðum sínum við ótal mismunandi fölsk nöfn og fölsuð skilríki....more0minPlay
November 25, 201910. Skrímslið með 21 andlitLeðurblakan fjallar um eitt furðulegasta sakamál í sögu Japans. Í sautján mánuði, árin 1984 og 1985, hélt dularfullur óvættur sem kallaði sig Skrímslin með 21 andlit japönsku samfélagi í heljargreipum. Skrímslið svokallaða herjaði á japanskar sælgætisgerðir og matvælafyrirtæki, rændi forstjórum þeirra og kveikti í verksmiðjum, og laumaði sælgætismolum með blásýru í búðir....more0minPlay
November 19, 2019Staða loftslagsmála á Íslandi og Taylor SwiftÍ áttunda þætti Hnotskurn verður farið yfir stöðu loftslagsmálanna á Íslandi í tilefni af borgarafundi Kastljóss um loftslagsmál sem fram fer í kvöld. Þá skoðum við hvers vegna bandarískir nýnasistar og hvítir þjóðernissinnar sjá poppstjörnunaTaylor Swift í dýrðarljóma....more0minPlay
November 18, 20199. Morðin í HinterkaifeckÍ byrjun þriðja áratugarins, á miklum ólgutímum í Þýskalandi, fundust lík sex manna fjölskyldu á litlum bóndabæ þeirra í Bæjaralandi. Öll höfðu þau verið myrt, og það sem vakti hvað mestan óhug var að morðinginn virtist hafa setið um fjölskylduna, legið í leyni á bænum og jafnvel dvalist þar eftir að morðin voru framin....more0minPlay
November 12, 2019Menntasjóður námsmanna og boxbardagi Logan Paul og KSIÁ Alþingi er nú til umfjöllunar frumvarp um Menntasjóð námsmanna sem ætlað er að koma í stað LÍN, við skoðum frumvarpið nánar og ræðum við Sigrúnu Jónsdóttur, forseta Landsamtaka íslenskra stúdenta. Svo skoðum við einar stærstu YouTube erjur sögunnar milli Logan Paul og KSI sem börðust í hnefaleikahringnum í annað sinn um helgina....more0minPlay
November 11, 20198. Hvarf Michaels RockefellersÁrið 1961 hvarf ungur Bandaríkjamaður sportlaust langt inni í regnskógi Nýju Gíneu, á yfirráðasvæði herskárrar frumbyggjaþjóðar sem fáir Vesturlandabúar höfðu heimsótt áður. Ungi maðurinn hét Michael Rockefeller og var sonur ríkisstjóra New York og verðandi varaforseta Bandaríkjanna, og langafabarn eins ríkasta manns sögunnar....more0minPlay
November 05, 2019CrossFit-kaos og frelsaður Kanye WestÍ Hnotskurn vikunnar skoðum við CrossFit og lyfjanotkunarumræðu síðustu daga og rýnum í nýjustu plötu tónlistarmannsins Kanye West....more0minPlay
November 04, 20197. Morðin við Bodom-vatnLeðurblakan fjallar um eitt óhugnanlegasta morðmál í sögu Finnlands, sem aldrei hefur verið leyst þrátt fyrir áralanga rannsókn. Ókunnur maður réðst þá á fjóra unglinga sem sváfu í tjaldi við Bodom-vatn, friðsælt stöðuvatn í nágrenni Helsinkis, snemma á sjöunda áratuginum. Þrír unglingar voru myrtir en sá fjórði komst með naumindum lífs af....more0minPlay
FAQs about Útivarp:How many episodes does Útivarp have?The podcast currently has 37 episodes available.