Í þættinum í dag fjöllum við um Sögur eins og venjan er á fimmtudögum. Við tökum fyrir smásögur í dag, þó engar smá sögur því við heyrum verk eftir unga rithöfunda sem þóttu skara fram úr á Sögum verðlaunahátíð barnanna í fyrra.
34 sögur voru valdar og birtar í rafrænu smásagnasafninu Risastórar smásögur og það má finna á vef Menntamálastofnunnar, https://vefir.mms.is/flettibaekur/namsefni/risastora/
Höfundar og smásögur:
Alma Bergrós Hugadóttir, 11 ára - Spiladósin
Árni Hrafn Hallsson, 9 ára - Bókavandræði
Baldvin Barri Guðmundsson, 9 ára - Refurinn og maðurinn
Dagný Sara Viðarsdóttir, 12 ára - Englar
Hrafnar Jökull Kristinsson, 9 ára - Flutningur
Pálína Sara Guðbrandsdóttir, 10 ára - Draugaskólinn
Umsjónarmaður:
Jóhannes Ólafsson