Í þætti dagsins fjöllum við um sögur eins og venjan er á fimmtudögum. Við höldum áfram að hlusta á smásögur, samt engar smá sögur því við heyrum verk eftir unga rithöfunda sem þóttu skara fram úr á Sögum verðlaunahátíð barnanna í fyrra.
34 sögur voru valdar og birtar í rafrænu smásagnasafninu Risastórar smásögur og það má finna á vef Menntamálastofnunnar, https://vefir.mms.is/flettibaekur/namsefni/risastora/
Höfundar og smásögur:
Agla Eik Frostadóttir, 8 ára - Kötturinn og músin
Amelíanna Anna Söndrudóttir Dudziak, 10 ára - Sjóræninginn
Embla Guðný Jónsdóttir, 11 ára - Rófulausi hundurinn og hárlausi kötturinn
Eyvör Stella Þeba Guðmundsdóttir, 11 ára - Bella og dularfulla mamman
Þorsteinn Jakob Jónsson, 7 ára - Ég opnaði hurðina
Umsjónarmaður:
Jóhannes Ólafsson