Vorið er ein af árstíðunum fjórum. Eins og náttúran breytist milli árstíðanna þá breytist menningin okkar líka, við förum til dæmis ekki í sólbað á veturna eða grillum mikið, það er bara hægt að tína villt bláber á haustin, jólin koma um vetur og Eurovision á vorin!
Í þessum þætti fjöllum við um vorhátíðir, Eurovision, sauðburð, Sævar segir okkur frá farfuglum og Maístjörnunni, við hlustum á vortónlist og hittum fálkaskáta úr skátafélaginu Skjöldungum sem segja okkur frá hátíðarhöldum á sumardaginn fyrsta.
Viðmælendur:
Birta Sól Helgadóttir, 12 að verða 13 ára
Halldór Óli Arnarsson, 10 að verða 11 ára
Forskólabörn úr Tónlistarskóla Grafarvogs
Náttúruvísindahornið: Sævar Helgi Bragason
Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir