Fjögurra þátta sería um fjölskyldur þar sem fjallað verður um alls kyns fjölskyldur, stórar og smáar, og daglegt líf þeirra.
Í hverjum þætti verður flutt stutt útvarpsleikrit eftir nemendur í Borgarholtsskóla, sem þau unnu í samvinnu við Einar Sigurðsson hjá útvarpsleikhúsi RÚV, en þema þeirra er fjölskyldur. Við fáum líka góða gesti í spjall og heyrum í kátum krökkum úr Snælandsskóla sem segja okkur frá fjölskyldunum sínum.
Í öðrum þætti köfum við ofan í efni síðasta útvarpsleikrits, en það var skilnaður foreldra. Hvers vegna skilja foreldrar og hvað þýðir það fyrir okkur? Síðan frumflytjum við annan þáttinn úr útvarpsleikritaseríunni Ekki er allt sem sýnist. Höfundur er Rakel Sif Árnadóttir
Viðmælendur:
Hilmar Ingi Árnason, 11 ára
Björn Kári Sigurbjörnsson, 12 ára
Magnús Heiðar Scheving Jónsson, 10 ára
Nikulás Guðnason, nemandi í Borgarholtsskóla
Snædís Laura Heimisdóttir Paz, nemandi í Borgarholtsskóla
Margrét Birna Þórarinsdóttir, sálfræðingur
Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir
Annar þáttur af fjórum