Í þættinum kemur hún Bergrún Íris Sævarsdóttir til okkar og segir okkur frá nýju bókinni sinni Kennarinn sem hvarf. Hún segir okkur líka frá því hvernig hún fær hugmyndir í sögurnar sínar og segir að það að skrifa sögur er eins og að hoppa á trampólíni!
Við heyrum einnig brot úr Sögum - verðlaunahátíð barnanna frá 2018 frá því að Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands afhenti Guðrúnu Helgadóttur Sögusteininn.
Viðmælandi: Bergrún Íris Sævarsdóttir
Þáttastjórnandi: Jóhannes Ólafsson
Tónlist:
Skrímslin í skápnum - Memfismafían
Innipúkinn - Memfismafían