Mururimi, Álfkonuhvarf, Hlemmiskeið, Júllatún, Svarthöfði, Helgamagrastræti, Glerárgata, Einbúablá...
Þetta eru allt götuheiti, en þau eru mjög mörg skrítin og skemmtileg hér á landinu okkar. Í þættinum köfum við ofan í götuheiti á Íslandi, heyrum í krökkum um allt land segja frá götuheitinu sínu og fáum svör við því hverjir nefna göturnar okkar og hvernig.
Innsend innslög:
Arnaldur Orri Gunnarsson, 8 ára í Skipholti
Björgvin Svan Mánason, 9 ára á Ljónastíg
Bragi Fjölnisson, 8 ára í Karfavogi
Brynjólfur Róbert Kristjánsson, 8 ára í Vesturtúni
Hanna Sólveig Björnsdóttir, 8 ára í Einbúablá
Hilmar Hrafn Gunnarsson, 13 ára í Hjálmholti
Hlynur Atli Harðarson, 7 ára á Haukdælabraut
Katla, 11 ára á Kvíabólsstíg
Maísól Erla Sindradóttir, 2 ára á Ljónastíg
Ragnar Már Mánason, 8 ára á Ljónastíg
Regína Diljá Rögnvaldsdóttir, 6 ára í Tjarnarlundi
Þorgerður Kolbrá Hermundardóttir, 8 ára á Strandgötu og Sefgörðum
Þórhalla Guðný Daníelsdóttir, 9 ára á Dvergabakka
Sérfræðingur þáttarins: Nikulás Úlfar Másson, byggingarfulltrúi Reykjavíkurborgar
Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir