Sumarið er ein af árstíðunum fjórum. Eins og náttúran breytist milli árstíðanna þá breytist menningin okkar líka, við förum til dæmis ekki í sólbað á veturna eða grillum mikið, það er bara hægt að tína villt bláber á haustin, jólin koma um vetur og Eurovision á vorin!
Í þessum þætti fjöllum við um það sem krakkar gera á sumrin, sumir fara í tjaldútilegur innanlands, aðrir fljúga á vit ævintýra í útlöndum og enn aðrir fara í sumarbúðir. Við fáum til okkar þrjár vinkonur sem hafa farið í sumarbúðir aftur og aftur, og þær segja okkur frá því sem þar er gert. Við fræðumst líka um sólina okkar sem skín sterkast á sumrin, breytingar í náttúrunni, dýralífinu og veðrakerfinu á sumrin.
Viðmælendur:
Borghildur Jóhannsdóttir, 12 ára
Herdís Anna Sveinsdóttir, 12 ára
Sara Ágústa Sigurbjörnsdóttir, 11 ára
Forskólabörn úr Tónlistarskóla Grafarvogs
Náttúruvísindahornið: Sævar Helgi Bragason
Fyrri þáttur af tveimur
Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir