VAKTINN E.A.

VAKTINN E.A.

Download on the App Store

VAKTINN E.A. episodes

  • S03E02 - “Hvítt í tappa!”

    Kæru vinir

    Mikil veisla framundan. Georg vantar aðstoðarmann og færum vel og vandlega yfir hvaða hættur leynast á vinsælustu sumaráfangastöðum íslendinga.

    Njótið vel kæru vaktarbrósar.

    2 hr 11 min
  • S03E01 - "Heimsveldi heimskunnar"

    Fyrsti þáttur í yfirferð okkar á seríu 3. 

    Skriðdýrahornið á sínum stað og við förum "back to the roots"

    Skoðum linoleum dúka og dyslexíu. Njótið vel kæru vinir.

    1 hr 46 min
  • S03E00 - Kuldakast í Kringlunni

    Kæru vaktarbrósar og brósur.

    Loksins er komið að því. Ný syrpa að hefjast og í þætti dagsins leggjum við á borð fyrir veisluna sem framundan er. 

    Förum yfir skemmtilega keppni sem haldin var í Kringlunni á sínum tíma og heyrum í skipuleggjendum og sigurvegara. Skriðdýrahornið fékk frí þessa vikuna og verður því tvöfallt í næsta þætti.

    Njótið vel kæru vinir.

    1 hr 33 min
  • Atvinnuviðtalið - Guðjón Smári

    Guðjón Smári er útvarpsmaður á FM957 og mikill aðdáandi vaktarseríanna.

    Guðjón Smári hefur líkt og Ólafur Ragnar tekið þátt í söngvakeppni á Stöð 2 og unnið í útvarpinu á FM. Hann mætir til okkar með faglega yfirferð sína á Dagvaktinni og kynnumst við honum og hans tengingu við þættina vel. 

    Minnum á Pubquiz á fimmtudag næstkomandi kl. 21:00

    1 hr 59 min
  • Viðhafnarútgáfa Vaktans - Dagvaktin edition

    Þorvar og Grétar einir bestu vinir okkar vaktarbrósa eru mættir í settið og eru tilbúnir til að gefa okkur nýja sýn á seríuna. Við förum í verðlaunaafhendinguna frægu og síðasta skriðdýrahorn seríunnar þar sem við kynnumst manninum Professor Alfred Romer en hann var langt á undan sinni samtíð. 
    Takk fyrir samfylgdina í gegnum Dagvaktarseríuna og heyrumst fljótt aftur.

    1 hr 54 min
  • Dagvaktin Grand Final - "Þú ert besti vinur minn."

    Í þessum grand final förum við yfir margt. Skoðum ræðuna hans Georgs og hvaðan hún sótti innblástur. Förum yfir Phoenix Reptile Expo 2018 og til hvers eru snúningsprikin sem börn og fáránlingar veifa á 17. júní? Síðast en ekki síst svörum við að sjálfsögðu spurningunni sem allir spurðu sig um eftir síðasta þátt, er Gugga að rísa upp eins og fönix?
    Framundan er að sjálfsögðu Viðhafnarútgáfan og njótið vel þessara lokaþáttar af Dagvaktinni kæru vinir.

    1 hr 52 min
  • S02E10 - "Ert þú hrísmóðir?"

    Loksins er komið að næsta þáttarþætti. Margt, mjög margt, sem þarf að fara yfir í dag. Bolsévikar og Romanov, hvað er það eiginlega? Hver er munurinn á hrísmóðir og ljósmóðir og heyrum í Bergþóri stórsöngvara. Þessi þáttur er einfaldlega úr efstu hillu. Vægast sagt. 
    Góðar stundir.

    2 hr 24 min
  • Atvinnuviðtalið - Kristín og Starkaður Pétursbörn

    Kæru hlustendur, í Oranjeboom þætti vikunnar fáum við í heimsókn systkinin Kristínu og Starkað í Georgstof stúdíóið. Þau eru mun dýpri í vaktarheimum en flestir og var einstaklega gaman að fá þeirra sýn á seríurnar. 
    Glöggt er gests augað eins og sagt var fyrir hart nær 50 árum og þau orð eru jafn sönn í dag og þau voru þá. Njótið einstaklega vel.

    2 hr 21 min

About VAKTINN E.A.

From the publisher's feed

Almyrkvinn markaði kaflaskil í lífi Íslendinga.

Fylgið okkur á Instagram og TikTok - VAKTINN
[email protected]